Atli og María „Það er planið hjá okkur að fara í nám erlendis og ef María verður ólétt þá erum við bara flutt. Við munum ekki eign­ast annað barn hér ef þetta verður svona. Því miður,“ segir Atli. Mynd: Golli

Lögð inn á spítala eftir bréf frá Fæðingarorlofssjóði

Íslenskir for­eldrar sem Heim­ildin hefur rætt við segja frá harka­legum köntum á kassa­laga kerfi sem fær þau til að hugsa sig tvisvar um frek­ari barn­eignir. Læknir og bráða­tæknir sem eign­uð­ust nýlega son voru bæði komin aftur út á vinnu­markað þremur mán­uðum eftir barns­burð. Um tíma leit út fyrir að móð­irin fengi ekki fæð­ing­ar­or­lof.

Þegar María Rós Gúst­avs­dóttir læknir var á 36. viku með­göngu í fyrra barst henni bréf frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði um að hún ætti ekki rétt á fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslum. Póst­ur­inn var áfall fyrir móð­ur­ina sem hafði einmitt unnið eins og hestur mán­uð­ina á undan til þess að geta tryggt sér fæð­ing­ar­or­lof sem hún gæti lifað á. Einn mán­uður í sum­ar­frí sem hún hafði unnið sér inn hafði sett allt á hlið­ina og fjár­hags­á­hyggj­urnar fóru af stað. Daginn eftir rauk blóð­þrýst­ing­ur­inn hennar upp og fóst­ur­hreyf­ing­arnar höfðu minnkað. Hún var lögð inn á spít­ala í tvo sól­ar­hringa.

Þó að María hafi að lokum náð að klóra sig fram úr stöð­unni með hjálp vin­konu sinnar, Jónu Þóreyjar Pét­urs­dóttur lög­manns, þá er saga Maríu ekki sú eina af gloppum í kerf­inu sem á að halda utan um nýfædd börn og for­eldra þeirra.

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Ríkið þarf að greiða fæðingarorlof og ýmsan kostnað við meðgöngu og fæðingu barna. Sveitarfélögin þurfa að byggja leikskóla og grunnskóla yfir börnin, auk þess að manna þá og borga reksturinn. Rikið þarf svo að taka við börnunum eftir grunnskóla og greiða framhaldsskóla og háskóla. Ættum við ekki bara að taka betur og rausnarlegar á móti fólki utan úr heimi sem vill flytja til landsins? Velja þá svolítið eftir því hvaða menntafólk við þurfum á að halda hverju sinni? Börn hverfa aldrei alveg, það verða alltaf einhverjir sem verða tilbúnir til að leggja í þá fjárfestingu að eignast barn.
    0
    • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
      Til þess er samfélag að við getum lifað í samfélagi. Okkar samfélag gerir það ekki enda ónýtt.
      0
  • G
    GunnaSig skrifaði
    Í Ungverjalandi er fjögurra barna fjölskylda skattlaus út lífið. Í Svíþjóð fá afi og amma „fæðingarorlof“ (veit ekki alveg hvernig því er háttað}. Veit um barnafjölskyldur sem eru að flytja úr landi til Norðurlanda, vegna þess að Ísland er barnfjandsamlegt þjóðfélag eða fjölskyldufjandsamlegt kannski betra orð.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kerfi sem bregst barnafjölskyldum

Klárar hvern einasta veikindadag í meðgönguveikindi
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Klárar hvern ein­asta veik­inda­dag í með­göngu­veik­indi

Fyrir tæpum 34 árum stóð Sigrún Jóns­dóttir í pontu á Alþingi og krafð­ist þess að ófrískar konur fengju svo­kallað með­göngu­or­lof við 36. viku með­göngu svo þær þyrftu ekki að ganga á veik­inda­rétt­inn sinn. Nú, 34 árum síðar, er dóttir Sigrúnar, Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, einmitt í þeim sporum að klára veik­inda­rétt­inn sinn vegna veik­inda á með­göngu. Þegar hún kemur aftur á vinnu­markað eftir orlof mun hún ekki eiga neinn veik­inda­rétt inni.
Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“

Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir er rúm­lega þrí­tug og hefur aldrei fundið löngun til barn­eigna. Hún telur að inn í það spili ónógur stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur í íslensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í félags­fræði segir ástæð­urnar fyrir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flóknar en að kerfið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyldum, ekki síst mæðrum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár