Eign íslenskra heimila í hlutabréfasjóðum minnkað um þriðjung

Síðasta tæpa eina og hálfa árið hafa fjár­festar leyst út hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóðum sem reknir eru að íslenskum sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum fyrir 15,9 millj­arða króna umfram það sem þeir keyptu í sjóð­unum.

Eign íslenskra heimila í hlutabréfasjóðum minnkað um þriðjung

Frá byrjun árs 2023 og út apríl síð­ast­lið­inn leystu fjár­festar hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóðum sem reknir eru af íslenskum sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum út slík skír­teini fyrir alls 63,4 millj­ónir króna á meðan að sjóð­irnir seldu ný hlut­deild­ar­skír­teini fyrir 47,5 millj­arða króna. Þeir los­uðu því um 15,9 millj­arða króna umfram það sem þeir keyptu í sjóð­unum. 

Þetta er algjör við­snún­ingur við það sem átti sér stað frá miðju ári 2020 og út árið 2022. Þá keyptu fjár­festar hlut­deild­ar­skír­teini í hluta­bréfa­sjóðum fyrir 82 millj­arða króna en inn­lausnir voru um 38 millj­arðar króna. Því voru seld hlut­deild­ar­skír­teini fyrir 44 millj­örðum krónum meira en það sem tekið var út úr sjóð­unum á þessu tíma­bili, en á því voru vextir í sögu­legu lág­marki, verð­bólga lítil og stjórn­völd gripu til marg­hátt­aðra aðgerða til að örva atvinnu­lífið og fjár­fest­ingu.

Síð­ast­liðið tæpt eitt og hálft ár hefur staðan gjör­breyst og áhugi lands­manna á því að fjár­festa í hluta­bréfa­sjóðum hríð­fallið sam­hliða. Nú eru stýri­vextir Seðla­banka Íslands 9,25 pró­sent og munu hafa verið það í eitt ár þegar kemur að næstu vaxta­á­kvörðun í ágúst. Verð­bólga fór um tíma í tveggja stafa tölu, hefur reynst þrá­lát og mælist nú sex pró­sent. Þá hefur kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna heim­ila lands­ins lækkað í fimm af síð­ustu árs­fjórð­ungum. Á tæpu einu og hálfu ári, frá árs­byrjun 2022 og út apríl síð­ast­lið­inn, minnk­aði eign heim­ila í hluta­bréfa­sjóðum úr tæp­lega 56 millj­örðum króna í 37,5 millj­arða króna, eða um þriðj­ung.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár