Halla Hrund hefur tapað þriðjungi fylgis síns á tveimur vikum

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hefur tekið nokkuð skýra, en þó tæpa, for­ystu í bar­átt­unni um Bessa­staði. Ein Halla er á fleygi­ferð upp vin­sælda­lista þjóð­ar­innar en önnur Halla hefur hrapað niður hann síð­ustu daga og vikur.

Halla Hrund hefur tapað þriðjungi fylgis síns á tveimur vikum
Hratt fall Stuðn­ingur við Höllu Hrund Loga­dóttur er nú nær fylgi Baldurs Þór­halls­sonar en Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Golli

Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur bætt lít­il­lega við sig fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar og mælist nú með 23,6 pró­sent. Það tryggir henni for­ystu í kapp­hlaup­inu á Bessa­staði en hinir þrír fram­bjóð­end­urnir sem hafa verið að keppa við hana um mest fylgi síð­ustu vikur hafa allir sigið síð­ustu daga og vikur. Fylgið sem Katrín er að mæl­ast með er við það minnsta sem hún hefur haft frá því að hún kynnti fram­boð sitt snemma í april. Það myndi samt sem áður duga henni að óbreyttu til að verða næsti for­seti Íslands.

Sá með­byr sem Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri hafði framan af kosn­inga­bar­átt­unni, og náði hámarki í byrjun mars­mán­aðar, virð­ist vera kyrfi­lega yfir­stað­inn. Í kosn­inga­spá sem gerð var 6. maí, fyrir um tveimur vikum síðan, mæld­ist Halla Hrund með 31 pró­sent fylgi og mark­tæka for­ystu á Katrínu, sem mæld­ist þá með 25 pró­sent. Síðan þá hefur Halla Hrund tapað um þriðj­ungi fylgis síns og mælist nú með 20,8 pró­sent. Hún er nú nær Baldri Þór­halls­syni, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, sem situr í þriðja sæti með 18 pró­sent fylgi, en hún er Katrínu, sem leiðir bar­átt­una sem stendur. 

Þrefaldast á tveimur vikum

Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team, er sá fram­bjóð­andi sem er að bæta mestu við sig. Hún er nú komin upp í 15,4 pró­sent fylgi og hefur rúm­lega þre­faldað það á tveimur vikum. Halla er eini fram­bjóð­and­inn nú sem bauð sig líka fram 2016, síð­ast þegar nýr for­seti var kos­inn, og átti þá mik­inn enda­sprett sem skil­aði henni á end­anum 27,9 pró­sent atkvæða á kjör­degi. Fylgi hennar nú mælist mun meira en það gerði þegar jafn margir dagar voru í kosn­ingar þá, en árið 2016 var Halla að mæl­ast með tæp­lega níu pró­sent fylgi tólf dögum áður en kosið var.

Leik­ar­inn og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Jón Gnarr, hefur haldið nokkuð stöð­ugu fylgi í mars­mán­uði og mælist nú með stuðn­ing 12,3 pró­sent kjós­enda. Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður og fyrr­ver­andi dóm­ari, er sá sem mælist vin­sælastur þeirra sjö sem ná ekki tveggja stafa fylgi, en alls segj­ast 5,8 pró­sent ætla að kjósa hann.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona hefur verið pikk­föst í sléttu 1,5 pró­sent fylgi vikum saman og virð­ist ekk­ert ætla að hagg­ast í aðra hvora átt­ina af þeim stað. Þeir fimm sem eru í fram­boði en hafa ekki verið nefndir hér mæl­ast svo sam­an­lagt með 2,6 pró­sent fylgi, eða tæp­lega helm­ing þess sem Arnar Þór, sá fram­bjóð­andi sem situr í sjötta sæti eins og er, mælist með. 

Allt stefnir því í að næsti for­seti Íslands verði kos­inn með stuðn­ingi undir fjórð­ungs þjóð­ar­innar. Það yrði lang­minnsta hlut­fall atkvæða sem for­seti hefur verið kos­inn með, en það met á Vigdís Finn­boga­dóttir sem stendur. Alls kusu 33,8 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði árið 1980 hana sem nýjan for­seta lýð­veld­is­ins. 

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig.

Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Unnar Unnarsson skrifaði
    Kjósum Baldur 🇮🇸💪
    0
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Það væri fróðlegt að sjá Heimildina taka saman kostnað hvers frambjóðanda við framboð, miðað við auglýsingaflóð Katrínar Jakobsdóttir virðist hún hafa aðgang að gríðarlegu fjármagni. Þá eru ótaldar hinar ótal mörgu ókeypis auglýsingar sem hún hefur fengið t.d. hjá Heimildinni í formi gríðarlangs drottningarviðtals sem hún fékk, ég hef ekki séð hina frambjóðendur fá álíka aðstoð.
    3
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvers vegna gerir skoðanakönnun ráð fyrir að þú missir eitthvað sem aldrei þú aldrei áttir ? Hver getur ábyrgst það þið eruð að gera sé rétt ?
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Allir fjórir frambjóðendur, sem voru lengst af í efstu fjórum sætunum, hafa tapað fylgi frá því sem mest var. Ástæðan er mikil fylgisaukning Höllu Tómasdóttur sem nú er komin upp fyrir Jón Gnarr.
    Fylgisaukning Höllu T virðist einkum vera á kostnað fylgis Höllu Hrundar. Þannig gætu atkvæði greidd Höllu Tómasdóttur tryggt Katrínu sigur.
    2
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Halla Hrund hefur fjórfaldað fylgi sitt frá 13 apríl á meðan Katrín hefur misst um fjórðung fylgis síns á sama tíma.
    3
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Kjósendur sem vilja annan forseta en Katrínu verða að kjósa praktískt. Búa sér til tvöfalda umferð og raða sér á þann sem kemur næstur á eftir henni í síðustu könnunum ef þær verða samhljóða.
    Það lítur út fyrir að Halla Tómasar ætli sér að endurtaka leikinn frá 2016 þegar hún skautst uppí tæp 28% á lokametrunum. Flestir sem ákváðu sig á kjördag virðast hafa kosið hana. Kannski þeir geri það aftur?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár