Á hraða snigilsins

Hæga­gangur og umferð­ar­tafir kosta Dani árlega fjár­muni sem svara til 620 millj­arða íslenskra króna. Umferðin á vegum lands­ins hefur nær þre­fald­ast á til­tölu­lega fáum árum og útlit fyrir að hún auk­ist enn frekar á næstu árum. Vega­kerfið ræður ekki við aukn­ing­una.

Margir kann­ast við lagið um mann­inn sem situr í búri úr gleri og stáli, bíður á rauðu ljósi og hlustar á útvarpið. Enn fleiri geta sam­samað sig mann­inum sem segir sög­una meðan regnið fellur á rúð­una og þótt lagið sé íslenskt er lýs­ingin á aðstæð­unum síður en svo sér­ís­lensk.

Fyrir skömmu birti danska vega­mála­stjórnin tölu­legt yfir­lit um bíla­um­ferð­ina í Danmörku á árinu 2022 en tölur síð­asta árs liggja enn ekki fyrir, nema að tak­mörk­uðu leyti.

Í Danmörku eru 2,8 millj­ónir bíla, um það bil 475 bílar á hverja 1 þús­und íbúa. Þetta er minna en í mörgum öðrum löndum Evrópu. Ástæð­urnar eru meðal ann­ars þær að bílar eru dýrir vegna skatt­lagn­ingar og sömu­leiðis eru bif­reiða­gjöld há og elds­neyti dýrt. Almenn­ings­sam­göngur voru lengi betri en í mörgum öðrum löndum og sömu­leiðis eru hjól­reiðar útbreiddar í Danmörku. Tæplega 70 pró­sent Dana eiga reið­hjól og þótt það hlut­fall sé hátt fækkar reið­hjóla­eig­endum í land­inu. Líklega helst það í hendur við aukna bíla­eign en á 35 árum hefur bílum í land­inu fjölgað um 38 pró­sent, sem er langt umfram fjölgun íbúa á sama tíma­bili. 

Uppbygging vegakerfisins hefur ekki haldið í við fjölgun ökutækja

Dönsk stjórn­völd hafa um ára­bil haft á stefnu­skrá sinni að draga úr bíla­um­ferð í land­inu. Meðal ann­ars með því að tak­marka umferð í bæjum og borgum, fækka bíla­stæðum og fjölga gjald­skyldum stæðum. Og auka hlut járn­brauta­lesta í fólks- og vöru­flutn­ingum á landi. Ástæða þess­arar stefnu stjórn­valda er fyrst og fremst vilji til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem verður sífellt meira vanda­mál.

„Í Danmörku eru 2,8 millj­ónir bíla, um það bil 475 bílar á hverja 1 þús­und íbúa. Þetta er minna en í mörgum öðrum löndum Evrópu.“

Það er ekki bara útblást­ur­inn úr bíl­unum sem mengar, ryk­meng­unin frá mal­bik­inu, dekkja­slit og hávaði. Þetta síð­ast­nefnda er vax­andi vanda­mál og má sem dæmi nefna að meira en 65 pró­sent íbúa Kaup­manna­hafnar telja sig búa við hávaða­mengun frá umferð.  

Margir ferðast langar vegalengdir til vinnu

Í stærstu borgum og bæjum Dan­merkur hefur hús­næð­is­verð farið mjög hækk­andi á und­an­förnum árum og mest er hækk­unin í höf­uð­borg­inni, Kaup­manna­höfn. Þar hefur hús­næð­is­verð rokið upp og afleið­ing­arnar eru meðal ann­ars þær að ungt fólk leitar í síauknum mæli til nágranna­sveit­ar­fé­laga þótt það sæki vinnu í höf­uð­borg­inni.

Samkvæmt upp­lýs­ingum dönsku vega­mála­stjórn­ar­innar þurfa fleiri en 800 þús­und Dana á vinnu­mark­aði að ferð­ast meira en 20 kíló­metra til að kom­ast í vinn­una og margir úr þeim hópi reyndar miklu lengra.

Barnafjölskyldur eru bíleigendur

Níu af hverjum tíu barna­fjöl­skyldum eiga bíl, það er tals­vert hærra hlut­fall en hjá öðrum þjóð­fé­lags­hópum og þetta hlut­fall hefur hækkað á síð­ustu árum. Samkvæmt rann­sókn félags danskra bif­reiða­eig­enda, FDM, eru ástæð­urnar áður­nefnd fjar­lægð frá vinnu­stað og lak­ari almenn­ings­sam­göngur í minni bæjum og dreif­býl­inu. Lausnin er bíll.

Þótt stjórn­mála­menn tali oft og mikið um að draga úr umferð hefur það litlu skilað. Rekstur fyr­ir­tækja sem sinna almenn­ings­sam­göngum hefur átt á bratt­ann að sækja, ekki síst vegna skorts á fjár­magni til end­ur­nýj­unar og við­halds, og það þýðir ein­fald­lega lak­ari þjón­ustu og það að einka­bíll­inn sækir á. Tregða stjórn­valda til að verja nægi­legum fjár­munum til upp­bygg­ingar vega­kerf­is­ins hefur orðið til að lítið ger­ist í að bæta stóru umferð­ar­göt­urnar, sem Danir kalla motor­veje. Þegar lands­menn flykkj­ast svo út á göt­urnar á leið til eða frá vinnu anna göt­urnar ekki umferð­inni og í stað þess að bruna á eðli­legum hraða breyt­ist umferðin í eins konar snigla­lest, eins og eitt dag­blað­anna komst nýlega að orði í umfjöllun um þessi mál.

32 milljarðar vegna hægagangs í umferðinni

Tíminn er pen­ingar er stundum haft á orði, ekki síst þegar eitt­hvað gengur hægar en ráð er fyrir gert. Þetta með hæga­gang­inn á sann­ar­lega við um umferð­ina víða í Danmörku , einkum á hinum svo­nefndu „álags­tímum“ á morgn­ana og síð­degis.

Í yfir­liti dönsku vega­mála­stjórn­ar­innar kemur fram að á síð­asta ári óku Danir um 600 millj­ónum kíló­metra meira á vegum lands­ins en árið áður og allt bendi til áfram­hald­andi aukn­ingar.

Tafirnar í umferð­inni kosta pen­inga og það enga smá­aura. Vega­mála­stjórnin hefur reiknað út hvað taf­irnar kosta. Það var gert með því að bera saman tím­ann sem tekur að aka til­teknar vega­lengdir án tafa og svo á „snigla­hrað­anum“. Þetta hefur svo verið marg­faldað með fjölda bíla sem um göt­urnar aka ásamt töp­uðum vinnu­tíma og töp­uðum frí­tíma og svo allt yfir­fært í pen­inga vegna taf­anna. Og útkoman er ekki smá­aurar, heilir 32 millj­arðar danskra króna (620 millj­arðar íslenskir) á einu ári. Sér­fræð­ingur vega­mála­stjórn­ar­innar sagði, í við­tali við danska útvarpið, DR, að þeim sem unnu að verk­efn­inu hefði blöskrað þessi upp­hæð og farið marg­sinnis yfir útkom­una til að full­vissa sig um að rétt væri reiknað. Hann sagði jafn­framt að ekki væri bjart­ara fram undan í þessum málum. „Það tapa allir á töf­unum nema elds­neyt­is­sal­arnir,“ sagði sér­fræð­ing­ur­inn.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár