Stöðugleiki í fylgi frambjóðenda – Halla Hrund enn með mælanlegt forskot

Nær engar breyt­ingar hafa orðið á fylgi efstu fram­bjóð­enda á allra síð­ustu dögum sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Ef horft er til síð­ustu kosn­inga þar sem nýr for­seti var kos­inn þurfa fram­bjóð­endur þó ekki að örvænta. Fylgið fór þá á fleygi­ferð á síð­ustu vik­unum.

Stöðugleiki í fylgi frambjóðenda – Halla Hrund enn með mælanlegt forskot
Í for­ystu Halla Hrund Loga­dóttir mælist með mest fylgi allra og hefur rúm­lega sexfaldað það á tæpum mán­uði. Mynd: Golli

Litlar breyt­ingar urðu á fylgi for­seta­fram­bjóð­enda á síð­ustu dögum. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar leiðir Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri kapp­hlaupið á Bessa­staði enn með 31 pró­sent atkvæða og Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, er önnur með 24,9 pró­sent. Það er nán­ast sama fylgi og þær mæld­ust með fyrir helgi, en fyrstu kapp­ræð­urnar þar sem allir fram­bjóð­end­urnir tólf komu saman fóru fram á föstu­dag. 

Fylgi Baldurs Þór­halls­sonar, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði. mælist nú 20,7 pró­sent sem er 0,7 pró­sentu­stigum minna en á föstu­dag. Jón Gnarr, leik­ari og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, stendur líka nán­ast í stað með 11,4 pró­sent fylgi. 

Á eftir þessum fjórum, sem hafa ein­okað efstu sætin í kosn­inga­spánni síð­ustu vikur, koma svo Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team, með 4,4 pró­sent og Arnar Þór Jónsson, sem var vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks þar til að hann sagði sig úr flokknum og fyrr­ver­andi dóm­ari, með 3,9 pró­sent. Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona mælist með 1,6 pró­sent fylgi en hinir fimm sem eru í fram­boði deila svo með sér 2,1 pró­sent fylgi. 

Fylgið flakkaði mikið 2016

Rúmar fjórar vikur til kjör­dags, sem er 1. júní næst­kom­andi. Þegar horft er til þeirrar stöðu sem var uppi þegar svo skammur tími var til stefnu síð­ast þegar nýr for­seti var kos­inn á Íslandi, sum­arið 2016, þá ætti það að kveikja von hjá ýmsum sem eiga á bratt­ann að sækja um að bar­áttan sé fjarri því búin. 

Þá mæld­ist Guðni Th. Jóhann­es­son, sem sigr­aði í kosn­ing­unum með 39,1 pró­sent atkvæða, með tæp­lega 59 pró­sent fylgi. Á þeim tíma virt­ist sem Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, væri sá fram­bjóð­andi sem myndi helst ógna Guðna. Fylgi hans mæld­ist rúm­lega 20 pró­sent á þessum tíma. Andri Snær Magnason kom þar á eftir með tæp tólf pró­sent og Halla Tóm­as­dóttir, sem var þá sem nú í fram­boði, var fjórða með ein­ungis um sex pró­sent fylgi.

Þegar atkvæðin voru talin var staðan mikið fyrir alla í þessum hópi. Guðni og Davíð höfðu tapað þriðj­ungi síns fylgis, Andri Snær bætt við sig fjórð­ungi á meðan að Halla hafði fimm­faldað fylgi sitt, og fékk á end­anum 27,9 pró­sent atkvæða. 

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spáin er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig. Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks­skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Sjö þeirra sem sækj­ast eftir emb­ætti for­seta Íslands hafa þegar mætt í kapp­ræður í Pressu á Heim­ild­inni í tveimur aðskildum þáttum. Hægt er að horfa á þá hér að neðan: 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásmundur Ásmundsson skrifaði
    Hvar er að finna kosningaspá Baldurs Héðinssonar?
    0
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Ég á erfitt með að skilja þessa kosningaspá. Aðferðafræðin virðist vera eins og að reyna að aka bíl að fyrirheitnum stað með því að horfa í baksýnisspeglana?
    Ef gerð er skoðanakönnun í dag. Hvaða máli skiptir þá skoðanakönnun gærdagsins , vikugömul skoðanakönnun eða jafnvel enn eldri könnun??
    5
    • ÁBB
      Álfur Birkir Bjarnason skrifaði
      Hún skiptir máli því úrtök kannananna eru misstór og mismunandi hópar sem svara, tímabilin sem þær eru gerðar yfir eru mislöng og skarast oft og svo getur verið breytileiki í því hvernig svörum er aflað (hringt, netkönnun í pósti eða slembival) og sitthvað annað í aðferðafræðinni.
      Við getum hugsað okkur tvær öfgar:
      * Ein könnun sem var gerð í gær og birt í dag, úrtakið 300 manns
      * Önnur könnun sem var gerð undanfarna viku og birt í gær, úrtakið 2500 manns (ATH það voru kappræður á þessu tímabili)
      Hvorug könnunin gefur góða mynd af stöðunni í dag en með því að vega þær saman (og fleiri til) út frá þáttum sem lýst er hér að ofan fæst örlítið raunsannari mynd af heildarstöðunni.
      Það má síðan líta á það sem bæði kost og galla að fyrir vikið breytist kosningaspáin hægar þar sem eldri kannanir "hanga inni" en fá sífellt minna vægi í útreikningunum.
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár