Sósíalistaflokkurinn mælist stærri en Vinstri græn

Ný könnun sýnir svip­aða stöðu í íslenskum stjórn­málum og verið hefur að birt­ast síð­ustu mán­uði. Tveir flokkar bæta veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum, þrír standa í stað en stjórn­ar­flokk­arnir tapa stórt.

Sósíalistaflokkurinn mælist stærri en Vinstri græn
Í mót­vindi Guð­mundur Ingi Guð­brands­son tók við for­mennsku í Vinstri grænum í síð­asta mán­uði eftir að Katrín Jak­obs­dóttir steig frá borði og fór í for­seta­fram­boð. Kannanir benda til þess að flokkur hans geti þurrkast út í næstu kosn­ingum. Mynd: Golli

Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem fékk ekki nægi­lega mörg atkvæði í kosn­ing­unum 2021 til að kom­ast inn á þing, mælist nú með meira fylgi en Vinstri græn. Fyrr­nefndi flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 4,4 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt nýrri könnun Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands á meðan að 4,3 pró­sent ætla sér að kjósa þann síð­ar­nefnda, sem situr í rík­is­stjórn og hefur gert það sam­fleytt frá árinu 2017. 

Fylgi flokka sam­kvæmt könnun Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands

Félags­vís­inda­stofnun gerir ekki reglu­lega kann­anir og sú sem birt var í gær mældi einnig fylgi for­seta­fram­bjóð­enda. Það sem gerir hana frá­brugðna öðrum könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi slíkra fram­bjóð­enda og fylgi flokka und­an­farnar vikur og mán­uði er þar eru fleiri svar­endur, eða alls 2.638. Gögnin voru svo vigtuð til að end­ur­spegla þýðið sem best. 

Breiðu lín­urnar í könn­un­inni eru svip­aðar þeim og birt­ast ann­ars­staðar. Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokkur lands­ins með 25,4 pró­sent fylgi, sem er aðeins minna en hún hefur verið að mæl­ast með í öðrum könn­unum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 19 pró­sent fylgi og er á svip­uðum slóðum og hann hefur verið und­an­farna mán­uði. Mið­flokk­ur­inn mælist þriðji stærsti flokk­ur­inn með 13,4 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn kemur þar á eftir með slétt tíu pró­sent. Píratar (8,1 pró­sent), Viðreisn (7,9 pró­sent) og Flokkur fólks­ins (7,3 pró­sent) eru svo öll á svip­uðu reki líkt og verið hefur í síð­ustu könn­unum ann­arra mæl­ing­ar­fyr­ir­tækja. 

Tveir bæta við sig, þrír standa í stað en stjórnin tapar stórt

Allar vís­bend­ingar í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar eru því í takti við það sem hægt er að sjá út úr könn­unum ann­arra síð­ustu mán­uði. Sam­fylk­ingin og Mið­flokk­ur­inn eru þeir tveir stjórn­mála­flokkar sem hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólks­ins eru meira og minna á svip­uðum slóðum og þeir flokkar voru í kosn­ing­unum 2021 en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa allir tapað umtals­verðu fylgi, sam­tals um 20 pró­sentu­stigum frá því að kosið var síð­ast, og njóta nú stuðn­ings rétt um þriðj­ungs þjóð­ar­innar. 

Það sem er frá­brugðið í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar, og hefur ekki sést í öðrum könn­unum, er að eini flokk­ur­inn sem er með mæl­an­legt fylgi en án full­trúa á Alþingi, Sós­í­alista­flokkur Íslands, mælist stærri en Vinstri græn, þótt ekki sé mark­tækur munur á fylg­inu ef tekið er til­lit til skekkju­marka. Um er að ræða flokka sem sækja í sama kjós­enda­hóp­inn lengst til vinstri í íslenskum stjórn­málum. 

Fylgið dreifist svipað

Miðað við stöðu mála í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar þá er dreif­ing atkvæða milli þeirra níu flokka sem mæl­ast með eitt­hvað fylgi ekki mjög frá­brugðin því sem hún var í síð­ustu kosn­ingum. Flokk­arnir hafa hafa ein­fald­lega skipt um sæti á vin­sælda­list­anum. Þannig er hefur Sam­fylk­ingin (25,4 pró­sent) tekið við for­ystu­sæt­inu af Sjálf­stæð­is­flokknum, sem fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Sá flokkur, sem mælist nú með 19 pró­sent, hefur tekið við hlut­verki Fram­sókn­ar­flokks sem fékk 17,3 pró­sent árið 2021.

Mið­flokk­ur­inn, sem rétt náði inn á þing í síð­ustu kosn­ingum með 5,4 pró­sent hefur haft sæta­skipti við Vinstri græn, sem fékk 12,6 pró­sent haustið 2021, en mæl­ast nú minnsti flokk­ur­inn á þingi með 4,3 pró­sent á meðan að Mið­flokk­ur­inn er sá þriðji stærsti með 13,4 pró­sent.  Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem mælist með tíu pró­sent, er svo kom­inn á þann stað sem Sam­fylk­ingin var fyrir tveimur og hálfu ári, þegar hún fékk 9,9 pró­sent atkvæða þegar talið var upp úr kjör­köss­unum. 

Könnun Félags­vís­inda­stofn­unar var gerð var á tíma­bil­inu 22.-30. apríl.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Katrín skilur Vg eftir vegalaust með brotthlaupi sínu, og ríkisstjórnarsamstarfið í meira uppnámi en áður. Skv. þessari könnum falla um 9% atkvæða dauð, sem gagnast mest Samfylkingunni sem stæsta flokknum.
    2
  • Baldur Gudmundsson skrifaði
    Þó að ég sé í rauninni ekki hissa á gengi VG og þann þátt sem Katrín Jakobsdóttir á í þeirri vegferð er ég þó algerlega viss um að hún passar best í forsetembættið vegna reynslu sinnar af samskiptum við erlenda ráðamenn og konur en ég er ekki viss um að eg kjósi hana. En það eru þarna 11 aðrir frambjóðendur hver öðrum fýsilegri , frambæilegasta fólk en þau hafa frekar litla
    reynslu. En maður verður víst að nota úllin dúllin doff aðferðina eða ugla sat á kvisti.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár