Bjarni forsætisráðherra og Bjarkey Olsen verður matvælaráðherra

Á blaða­manna­fundi í Hörpu til­kynntu for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­ana um nýja skipan ráð­herra í rík­is­stjórn. Þar kom meðal ann­ars fram að Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, muni taka við sem mat­væla­ráð­herra.

Bjarni forsætisráðherra og Bjarkey Olsen verður matvælaráðherra
Formenn stjórn­ar­flokk­anna kynntu breyt­ingar á skipan rík­is­stjórn­ar­innar áðan. Mynd: Golli

 Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna mun taka við af Svandísi Svav­ars­dóttur sem mat­væla­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son mun taka við sem for­sæt­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir verður inn­við­a­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son mun taka við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þessar breyt­ingar á rík­is­stjórn­inni voru til­kynntar á blaða­manna­fundi í Hörpu kl. 14.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, for­maður Vinstri grænna, mun halda sig í félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu. Sömu­leiðis verður allt með kyrrum kjörum hjá Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, Ásmundi Einari Daðasyni, Guðlaugi Þór Þórð­ars­syni, Guðrúnu Haf­steins­dóttur, Lilju Alferðs­dóttur og Willum Þór Þórssyni.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir mun hins vegar snúa aftur í utan­rík­is­ráðu­neytið en Þórdís Kolbrún tók við sem fjár­mála­ráð­herra 14. októ­ber í fyrra af Bjarna Bene­dikts­syni og hefur því setið í því emb­ætt­inu í tæpa fimm mán­uði.

Það er stysti tími sem kven­kyns ráð­herra hefur gegnt emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var fyrsta konan til gegna emb­ætt­inu og sinnti hún því í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þetta eru nú frekar ókræsilegir upphitaðir afgangar. Verði okkur að góðu.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Óvinsælasti margráðherra landsins verður forsætisráðherra!
    1
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    lýgveldið ísland stendur undir nafni . . .
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár