„Við höfum verið að tala fyrir þeirri hugmynd að börn hefji grunnskólagönguna fimm ára“

„Ég held að það sé full ástæða til að horfa svo­lítið meira heild­stætt á leik­skóla og grunn­skóla kerfið og mynda meiri sam­fellu þarna á milli,“ sagði Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í síð­asta þætti af Pressu. Umræðu­efnið var leik­skóla­vandi Reykja­vík­ur­borgar.

Innritun leik­skóla­barna í leik­skóla Reykja­vík­ur­borgar ganga vel sagði Árelía Eydís Guð­munds­dóttur, borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs. „Við gerum þetta alveg ótrú­lega vandað,“ sagði hún. 

Leik­skóla­mál Reykja­vík­ur­borgar voru rædd af Árelíu og Hildi Björns­dóttur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í síð­asta þætti af Pressu. Stóra úthlutun leik­skóla­plássa í Reykja­vík­ur­borg fer fram núna Hún hófst 2. apríl og frá þeim degi verður unnið úr umsóknum sem hafa borist, til 10. maí. Á meðan verður ekki tekið á móti nýjum umsóknum og ekki hægt að breyta inn­sendum umsóknum fyrr en að tíma­bil­inu loknu. 

„Út frá for­eldrum og ömmum og öfum og fjöl­skyldum sem að bíða eftir plássi að þá eru nátt­úru­lega ein­hverjir sem að verða fyrir von­brigðum. Það er bara þannig. Ég sagði í fyrra að það ár yrði erfitt. Þetta ár verður líka erfitt og færri kom­ast að en að vilja. Ég held að það sé bara staðan sem að leik­skól­arnir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár