Bankasýslan vissi ekki af kaupunum á TM og vill fresta aðalfundi Landsbankans

Stofn­unin sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum seg­ist ekki hafa verið kunn­ugt um að Lands­bank­inn væri að fara að kaupa trygg­inga­fé­lag á 28,6 millj­arða króna. Formaður banka­ráðs seg­ist hafa upp­lýst stofn­un­ina „óform­lega“ í sím­tali í des­em­ber.

Bankasýslan vissi ekki af kaupunum á TM og vill fresta aðalfundi Landsbankans
For­stjóri Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri Banka­sýsl­unnar, stofn­unar sem lýst var yfir í apríl 2022 að leggja ætti niður en er enn starf­andi og fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Banka­sýsla rík­is­ins segir að henni hafi ekki verið kunn­ugt um kaup Lands­bank­ans á trygg­inga­fé­lag­inu TM af Kviku banka á 28,6 millj­arða króna. Stofn­un­inni, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins Lands­bank­anum, hafi fyrst verið kunn­ugt um að skuld­bind­andi til­boð í hlut­inn hafi verið lagt fram klukkan 17 í gær.

Þetta kemur fram í bréfi sem for­stjóri Banka­sýsl­unnar, Jón Gunnar Jónsson, sendi til Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í kvöld. Um er að ræða svar stofn­un­ar­innar við bréfi sem Þórdís sendi henni fyrr í dag þar sem ráð­herr­ann óskaði eftir skýr­ingum á kaup­unum og lýsti meðal ann­ars yfir áhyggjum af þeim. Þórdís gerði slíkt einnig í færslu sem hún birti á Facebook í gær­kvöldi þar sem hún sagði að kaupin yrðu ekki að veru­leika með hennar sam­þykki „nema sölu­ferli Lands­bank­ans hefj­ist sam­hliða.“ 

Í bréfi Banka­sýsl­unnar til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem birt var á vef hennar í kvöld, er tekið undir þær áhyggjur sem komu fram í bréfi ráð­herr­ans. Þar segir að stofn­unin hafi haldið fund með banka­ráði Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, í dag þar sem spurt var út í við­skiptin. „Það er mat BR að Lands­bank­anum hafi borið að upp­lýsa um fyrr­greind við­skipti [...] slíkt var því miður ekki gert. Það kom hins vegar fram á fund­inum með banka­ráði að því hafi verið ljóst fyrr­greind afstaða ráð­herra til kaupanna.“ 

Banka­sýslan hefur óskað eftir form­legri grein­ar­gerð frá banka­ráð­inu vegna kaupanna innan sjö daga og kraf­ist þess að aðal­fundi Lands­bank­ans, sem á að fara fram á mið­viku­dag, verði frestað um fjórar vikur vegna máls­ins. Í bréfi til banka­ráðs­ins, sem var líka birt í kvöld, er þess sér­stak­lega óskað að grein­ar­gerðin inni­haldi skýr­ingu á því hvernig við­skiptin muni hafa áhrif á áhættu í rekstri Lands­bank­ans og á getu hans til að greiða eig­endum sínum arð eða á ann­ars konar ráð­stöfun á umfram eigin fé.

Ríkisbanki kaupir tryggingafélag

Tilkynnt var um það í gær að Kvika banki hefði tekið til­boði Lands­bank­ans í allt hlutafé TM trygg­inga hf., eins af fjórum stórum trygg­inga­fé­lögum lands­ins. Lands­bank­inn greiðir 28,6 millj­arða króna sam­kvæmt til­boð­inu fyrir og fer greiðslan fram með reiðufé. Það 1,8 millj­arði króna yfir bók­færðu virði TM í bókum Kviku í lok síð­asta árs. 

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir Helgu Björk Eiríks­dóttur, sem er að fara að hætta sem for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, að bank­inn starfi á sam­keppn­is­mark­aði og það skipti veru­legu máli að Lands­bank­inn sé áfram verð­mæt eign fyrir hlut­hafa. „Í því felst m.a. að meta og sækja tæki­færi á fjár­mála­mark­aði til að við­halda og auka verð­mæti bank­ans. Bankaráð og stjórn­endur hafa um nokk­urt skeið skoðað kosti þess að bæta trygg­ingum við fjöl­breytta þjón­ustu bank­ans, enda fer trygg­inga­starf­semi og rekstur á stórum við­skipta­banka vel saman. Við teljum að með kaupum á TM muni bæði félögin efl­ast og styrkj­ast.“

Engar formlegar upplýsingar

Í bréfi Banka­sýslu rík­is­ins til Þórdísar segir að Helga Björk hafi upp­lýst stofn­un­ina um áhuga Lands­bank­ans á að kaupa TM eftir að sam­runa­við­ræðum Íslands­banka og Kviku var slitið í júlí í fyrra. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Íslands­banki sam­þykkti að greiða 1,2 millj­arða króna met­sekt fyrir lög­brot sem hann framdi við söl­una á hlutum í sjálfum sér í lok­uðu útboði sem fór fram í mars 2022. 

Á þeim tíma var TM þó ekki í form­legu sölu­ferli og þann 20. júlí í fyrra var Banka­sýslan upp­lýst um að ekki hefði komið til form­legra við­ræðna um kaup rík­is­bank­ans á trygg­inga­fé­lag­inu. Eftir þann tíma segir Banka­sýslan að engar frek­ari upp­lýs­ingar hafi borist henni um málið jafn­vel þótt Helga Björg telji „sig hafa minnst á end­ur­vak­inn áhuga Lands­bank­ans á að taka þátt í sölu­ferl­inu. Það á að hafa komið fram í óform­legu sím­tali til stjórn­ar­for­manns BR vegna launa­upp­bótar starfs­manna í des­em­ber 2023“. 

Engar form­legar upp­lýs­ingar hafi þó, á nokkrum tíma­punkti borist Banka­sýsl­unni, um þátt­töku Lands­bank­ans í sölu­ferl­inu. „Þvert á móti taldi stjórn BR ein­sýnt að ekki yrði af við­skipt­unum af hálfu Lands­bank­ans í kjöl­far við­tals við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þann 6. febr­úar.“ Þar er átt við við­tal sem Þórdís fór í hjá hlað­varp­inu Þjóð­málum, sem stýrt er af frétta­stjóra við­skipta hjá Morg­un­blað­inu. Þar sagði Þórdís, sem er líka vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ein þeirra sem þykir lík­leg­ust til að sækj­ast eftir að leiða flokk­inn þegar Bjarni Bene­dikts­son hættir, að henni hugn­ist ekki að rík­is­bank­inn eign­ist TM. Sú afstaða ráð­herr­ans var rædd á stjórn­ar­fundi Banka­sýsl­unnar tveimur dögum síðar og bókað að „ráð­herra hugn­að­ist ekki að Lands­bank­inn kaupi TM.“

Landsbankinn verður ekki seldur

Kaupin voru mikið til umræðu í fjöl­miðlum og á þingi í dag. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­isráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, sögðu báðar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag að ekki standi til að selja hlut rík­is­ins í Lands­bank­an­um í kjöl­far kaupa bank­ans á TM, þrátt fyr­ir yf­ir­lýs­ing­ar fjár­mála­- og efna­hags­ráð­herra þess efn­is.

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unn­ar lýstu marg­ir hverj­ir yf­ir furðu yf­ir ólík­um sjón­ar­mið­um ráð­herra í rík­is­stjórn­inni gagn­vart mál­inu. 

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði hins vegar við fjöl­miðla að kaup­unum yrði haldið til streitu. Í sam­tali við frétta­stofu Vísis og Stöðvar 2 sagð­ist hún skilja vel að ríkið vildi ekki bæta við sig félögum. „Við erum aftur á móti almenn­ings­hluta­fé­lag. Ríkið á stóran hluta af því. Ég held að það sé mjög mik­il­vægt fyrir okkur að hafa alltaf augun á því hvernig við getum aukið verð­mæti bank­ans. Séð til þess að þetta félag sé áfram verð­mæt eign, hvort sem það er þjóð­ar­innar eða ann­arra hlut­hafa.“ Ríkið á 98,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Bankasýslan verður vonandi nr. 1 af þeim 161 stofnun sem Þórdís Kolbrún ætlar að grisja. Niðurlagning hennar, sem ákveðin var eftir síðustu Íslandsbankasölu, virðist hafa mistekist.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár