Ríkisbankinn að kaupa eitt stærsta tryggingafélag landsins

Þremur árum eftir að Kvika og TM runnu saman hefur verið til­kynnt um að Lands­bank­inn sé að kaupa trygg­inga­fé­lagið á 28,6 millj­arða króna. Við það verður eitt stærsta trygg­inga­fé­lag lands­ins í eigu íslenska rík­is­ins.

Ríkisbankinn að kaupa eitt stærsta tryggingafélag landsins
Banka­stjóri Lilja Björk Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins og stærsti banki lands­ins. Hann mun stækka umtals­vert ef fyr­ir­huguð kaup á einu stærsta trygg­inga­fé­lagi lands­ins ganga eftir.

Kvika banki hefur tekið til­boði Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, í allt hlutafé TM trygg­inga hf., eins af fjórum stórum trygg­inga­fé­lögum lands­ins. Lands­bank­inn greiðir 28,6 millj­arða króna sam­kvæmt til­boð­inu fyrir og fer greiðslan fram með reiðufé. Það 1,8 millj­arði króna yfir bók­færðu virði TM í bókum Kviku í lok síð­asta árs. 

End­an­legt kaup­verð mun þó verða aðlagað að efn­is­legu eigin fé TM í upp­hafi árs 2024 til afhend­ing­ar­dags. Samkvæmt rekstr­ar­spá á hagn­aður trygg­inga­fé­lags­ins að verða rúm­lega þrír millj­arðar króna í ár. 

Næstu skref eru að ljúka end­an­legri áreið­an­leika­könnun og und­ir­rita kaup­samn­ing milli bank­anna um kaup og sölu 100 pró­sent hluta­fjár TM eins fljótt og auðið er, með hefð­bundnum fyr­ir­vörum, svo sem sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Gerir Landsbankann verðmætari 

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ingu að með því að bæta trygg­inga­rekstri við starf­semi bank­ans geti hann boðið við­skipta­vinum sínum enn betri og fjöl­breytt­ari þjón­ustu. „Kaup á TM er góð fjár­fest­ing sem styrkir rekstur bank­ans og gerir hann verð­mæt­ari til fram­tíðar, enda er TM traust trygg­inga­fé­lag með gott og reynslu­mikið starfs­fólk."

 Helga Björk Eiríks­dóttir, sem er að fara að hætta sem for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, segir á sama stað að bank­inn starfi á sam­keppn­is­mark­aði og það skipti veru­legu máli að Lands­bank­inn sé áfram verð­mæt eign fyrir hlut­hafa. „Í því felst m.a. að meta og sækja tæki­færi á fjár­mála­mark­aði til að við­halda og auka verð­mæti bank­ans. Bankaráð og stjórn­endur hafa um nokk­urt skeið skoðað kosti þess að bæta trygg­ingum við fjöl­breytta þjón­ustu bank­ans, enda fer trygg­inga­starf­semi og rekstur á stórum við­skipta­banka vel saman. Við teljum að með kaupum á TM muni bæði félögin efl­ast og styrkj­ast.“

Ármann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku, seg­ist vera mjög ánægður með að hægt sé að ganga að kauptil­boði Lands­bank­ans með það að mark­miði að ljúka söl­unni. „Ef ferlið leiðir til und­ir­rit­unar kaup­samn­ings verður það til hags­bóta fyrir alla aðila, Kviku, Lands­bank­ann og TM, við­skipta­vini þeirra, hlut­hafa og aðra hag­að­ila. Ég hef fulla trú á því að TM, sem er vel rekið og verð­mætt trygg­inga­fé­lag með öfl­ugan mannauð, muni áfram veita við­skipta­vinum sínum fram­úr­skar­andi þjón­ustu og vaxa enn frekar með nýju eign­ar­haldi.“

Mbl.is birti frétt í byrjun síð­asta mán­aðar um við­tal sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fór í hjá hlað­varp­inu Þjóð­málum, sem stýrt er af frétta­stjóra við­skipta hjá Morg­un­blað­inu. Í frétt­inni sagði að Þórdísi, sem er líka vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ein þeirra sem þykir lík­leg­ust til að sækj­ast eftir að leiða flokk­inn þegar Bjarni Bene­dikts­son hættir, hugn­ist ekki að rík­is­bank­inn eign­ist TM. 

Sameinuðu en brutu upp þremur árum síðar

Greint var frá því í fyrra­haust að Kvika banki vildi selja TM. Skrefið vakti athygli í ljósi þess að Kvika, TM og eign­ar­leigu­fyr­ir­tækið Lykill voru sam­einuð vorið 2021. Þá var haft eftir Marinó Erni Tryggva­syni, þáver­andi for­stjóra sam­ein­aðs félags, sem starf­aði undir Kviku-nafn­inu, að með sam­ein­ing­unni yrði til eitt áhuga­verð­asta fyr­ir­tæki lands­ins. Sameinað félag verður meðal verð­mæt­ustu fyr­ir­tækja í Kauphöll, enda um einn stærsta sam­runa síð­ustu ára að ræða.“ Þremur árum síðar er búið að taka ákvörðun um að brjóta sam­ein­aða félagið upp. Í des­em­ber var greint frá því að fjórir aðilar væru komnir áfram í sölu­ferl­inu. Nokkuð ljóst var að Arion banki væri ekki þar á meðal, þar sem hann á þegar trygg­inga­fé­lagið Vörð. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar voru því bank­arnir tveir sem ríkið á hlut í Íslands­banki og Lands­bank­inn, að slást við tvö sterk­ustu útgerð­ar­veldi lands­ins, Sam­herj­a­sam­stæð­una og Ísfé­lags­fjöl­skyld­una, um að fá að kaupa TM. Nú liggur fyrir hver vann þann slag.

Kvika banki sendi frá sér nei­kvæða afkomu­við­vörun í upp­hafi árs þar sem fram kom að afkoma bank­ans á síð­asta árs­fjórð­ungi hefði ekki verið „í sam­ræmi við áætlun stjórn­enda“. Hagnaður sam­stæð­unnar var fjórir millj­arðar króna í fyrra og lækk­aði um 18 pró­sent milli ára. Arðsemi eigin fjár lækk­aði líka og var 12,1 pró­sent fyrir skatta. Næstum helm­ingur hagn­að­ar­ins kom úr rekstri TM, en hagn­aður trygg­inga­fé­lags­ins var 1,7 millj­arðar króna og jókst um 209 pró­sent milli ára. Hluta­bréf í Kviku hafa lækkað um 13,3 pró­sent það sem af er árinu 2024 og heild­ar­mark­aðsvirði sam­stæð­unnar var um 70 millj­arðar króna í lok síð­ustu viku. Miðað við birt kaup­verð þá er verið að selja burt rúm­lega 40 pró­sent af sam­stæð­unni. 

Ríkisbankinn á eigið fé upp á 304 milljarða króna

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33,2 millj­arða króna á síð­asta ári og ætlar að greiða um helm­ing þess hagn­aðar, alls 16,5 millj­arða króna, út í arð til hlut­hafa bank­ans, sem að uppi­stöðu íslenska ríkið. Hagn­að­ur­inn er mun skap­legri en á árinu 2022 þegar bank­inn hagn­að­ist um 17 millj­arða króna. Arðsemi eig­in­fjár fór úr því að vera 6,3 pró­sent árið 2022 í 11,6 pró­sent á síð­asta ári. 

Við­snún­ing­ur­inn á árinu 2023 felst aðal­lega í því að gang­virði hluta­bréfa­eignar hans hækk­aði mikið, en Lands­bank­inn á miklu meira af hluta­bréfum en hinir tveir stóru bank­arnir.

Í fyrra hagn­að­ist bank­inn um 6,7 millj­arða króna vegna þess­arar hluta­bréfa­eignar eftir að hafa tapað átta millj­örðum krónum á henni árið 2022. Stærsta hluta­bréfa­staðan er í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel. Bankinn á 14,1 pró­sent í Eyri sem á 24,7 pró­sent í Marel.

Á árinu 2022 bók­færði Lands­bank­inn 10,5 millj­arða króna rekstr­ar­tap vegna lækk­unar á bréfum í Marel en á síð­asta ári bók­færði hann 1,1 millj­arða króna hagnað vegna hækk­unar á sömu bréfum.  

Mestur var við­snún­ing­ur­inn á fjórða árs­fjórð­ungi, sam­hliða því að miklar og opin­berar erjur áttu sér stað um eign­ar­haldið á Marel. Þær erjur leiddu til þess að banda­ríska fyr­ir­tækið JBT gerði mögu­legt yfir­tökutil­boð í Marel á gengi sem er mun hærra en skráð mark­aðs­gengi Marel var. Fyrir vikið hækk­aði skráð gengi Marel um 18,5 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins og hagn­aður Lands­bank­ans á þeim árs­fjórð­ungi var 10,8 millj­arðar króna. 

Eignir Lands­bank­ans voru 1.961 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og efna­hags­reikn­ing­ur­inn stækk­aði um 9,7 pró­sent á árinu 2023. Eigið fé bank­ans var 303,7 millj­arðar króna í lok síð­asta árs og eig­in­fjár­hlut­fallið 23,6 pró­sent.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VA
    Valur Arnarson skrifaði
    Þetta er jákvætt. Bankar í einkaeign eru óeftirlitslausir og það hefur oft brennt almenninginn.
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Ekkert við þetta að athuga. Hagnaðurinn af starfseminni rennur í ríkissjóð, en ekki í vasa fákeppnisforkólfana. Það skyldi þó ekki fara þannig, að langþráð samkeppni í tryggingabransanum komi frá ríkinu , því ekki er hún til staðar í dag, svo mikið er víst.
    2
  • JM
    Jón Magnússon skrifaði
    Frábært
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár