Grunnskólabörnin í 73 skólum í 27 sveitarfélögum

Nokkur hund­ruð börn voru fyrir rúmum fjórum mán­uðum saman í einum skóla, Grunn­skóla Grinda­víkur. Í dag dreifast þau um allt land og hluti hóps­ins hefur þegar skipt nokkrum sinnum um skóla.

Grunnskólabörnin í 73 skólum í 27 sveitarfélögum

Í nóv­em­ber­byrjun voru grind­vísk börn öll í sama skól­anum, Grunn­skóla Grinda­víkur. Í dag dreifast þau á 73 skóla í 27 sveit­ar­fé­lögum. Ákveðið var, skömmu eftir að ham­far­irnar riðu yfir, að setja upp safn­skóla á fjórum stöðum í Reykja­vík þar sem nem­endum bauðst að halda áfram námi með kenn­ur­unum sínum úr Grinda­vík, og gömlu bekkj­ar­fé­lög­unum. Safn­skól­arnir eru í Hvassa­leit­is­skóla, Lauga­lækj­ar­skóla, Ármúla og höf­uð­stöðvum KSÍ á Laug­ar­dals­velli. Fyrir ára­mót stund­uðu 55 pró­sent nem­enda úr Grinda­vík nám í þessum skólum. Eftir ára­mót hefur það hlut­fall lækkað umtals­vert, og er nú í kringum 40 pró­sent. Skóla­akstur hefur auk þess verið í boði frá Suð­ur­nesjum, Selfossi og Mos­fellsbæ. 

Í svari mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar kemur fram að  um 225 nem­endur séu nú í þessum safn­skólum, 87 eru í skóla í Reykja­nesbæ, 59 í öðrum skólum í Reykja­vík, 28 í Kópavogi, 25 í Garðabæ, 25 í Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg, 22 í Hafn­ar­firði, ell­efu í Sveit­ar­fé­lag­inu Vogum, tíu í Suð­ur­nesjabæ og tíu í Hvera­gerði. „Hins vegar dreifast nem­endur á mun fleiri sveit­ar­fé­lög og þá eru oft ekki fleiri en 2-4 nem­endur í hverjum skóla.“

Fram­halds­skóla­nem­endur, sem eiga lög­heim­ili í Grinda­vík, eru nú í 14 mis­mun­andi skólum sem eru í níu sveit­ar­fé­lögum og flestir eru í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja. Leik­skóla­börn eru í 46 skólum sem eru í 16 sveit­ar­fé­lögum. 

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir enn fremur að áhrif ham­far­anna á líf grind­vískra barna séu miklar, ófyr­ir­séðar og koma fram í áskor­unum er tengj­ast m.a. skóla- og frí­stunda­starfi. „Mikil hreyf­ing er á fólki og stöðugt er unnið að því að kort­leggja og meta stöðu barn­anna. Allt þetta gerir það að verkum að skipu­lag skóla­halds hefur reynst krefj­andi verk­efni en það hefur verið á könnu fræðslu­sviðs Grinda­vík­ur­bæjar en mennta- og barna­mála­ráðu­neytið hefur lagt til sér­fræði­ráð­gjöf, m.a. við grein­ingu og lausn­a­leit. Í öllum við­brögðum sem gripið hefur verið til er áhersla á að hlúð sé að börn­unum og vel­ferð þeirra tryggð eftir bestu getu. Trygg skóla­ganga er eitt af lyk­il­at­riðum í við­bragð­inu.“

Skóla­skylda er á grunn­skóla­stigi og heldur fræðslu­svið Grinda­vík­ur­bæjar utan um skóla­sókn grind­vískra grunn­skóla­barna. „Grind­vík­ingar hafa búið við ótrygga búsetu síð­ustu mán­uði og hefur það óhjá­kvæmi­lega haft þau áhrif að ákveð­inn hópur grind­vískra barna hefur verið til­neyddur til þess að skipta nokkrum sinnum um skóla frá 10. nóv­em­ber en tölu­legar upp­lýs­ingar um þetta hafa ekki verið teknar saman enn þá,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raunir Grindvíkinga

FréttirRaunir Grindvíkinga

Enn inni í mynd­inni að kaupa ein­inga­hús fyrir Grind­vík­inga

Nokkur fjöldi íbúða er enn í boði fyrir Grind­vík­inga hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og tölu­verður fjöldi til við­bótar í boði fyrir þá á Leigu­torgi. Ágætt fram­boð er auk þess á til­búnum bygg­ing­ar­lóðum. Inn­við­a­ráðu­neytið segir að m.a. í ljósi þessa þurfi að meta sér­stak­lega hvort þörf sé á frek­ari kaupum á hús­næði fyrir Grind­vík­inga.
FréttirRaunir Grindvíkinga

Erum eig­in­lega að byrja upp á nýtt

Enda­lausar áhyggjur af fötl­uðum syni og aldr­aðri móður hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðnir eru síðan hár­greiðslu­meist­ar­inn Guðrún Krist­jana Jóns­dóttir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyldan ætlar ekki að flytja þangað aftur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þegar mað­ur­inn féll ofan í sprung­una,“ segir hún. Sprungan sem klauf svo íþrótta­húsið, annað heim­ili sona hennar, gerði að end­ingu úts­lagið.

11 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár