Stóru spurningarnar í litlu versluninni

„Ég verð lög­legur á næsta ári, 67 ára. Kannski verð ég þá orð­inn alls­laus,“ segir einn þeirra. Lífið ein­kenn­ist af bið, segir annar. „Bið eftir ein­hverju sem við vitum ekki alltaf hvað er.“ Tíminn eykur fjar­lægð­ina við sam­fé­lagið, segir sá þriðji. Slítur smám saman tengslin. „Við verðum að koma hjól­unum á stað.“

Stóru spurningarnar í litlu versluninni
Skegg­rætt Þau eru mörg málin sem þarf að kryfja á hverjum degi. Frá vinstri: Bjarki, Ómar, Jóhann og Þor­steinn. Mynd: Golli

Versl­unin við Grinda­vík­ur­höfn, sem er rekin af Vél­smiðju Grinda­víkur, virð­ist við fyrstu sýn dæmi­gerð smá­búð, nokk­urs konar kaup­fé­lag, í sjáv­ar­þorpi. En hún er það í raun ekki og vissu­lega alls ekki um þessar mundir. Þar er jú hægt að fá bæði smur­olíu og sam­loku, tvist­poka og Twix og flest það annað sem vinn­andi fólki van­hagar um dags­dag­lega, en það allra mik­il­væg­asta sem boðið er upp á er spjall við aðra heima­menn. Og það kostar ekki krónu. 

Versl­unin er orðin nokk­urs konar félags­mið­stöð þeirra fáu sem starfa í Grinda­vík um þessar mundir. Þar sem fólk hitt­ist og ber saman bækur sínar. Spyr hvað sé að frétta. Ertu búinn að taka ákvörðun? Er konan alveg viss um að hún vilji selja? Er ekk­ert að frétta af bann­settu heita vatn­inu?

Uppfært 21. mars: Grein þessi birt­ist fyrst í Heim­ild­inni þann 15. mars. Eftir að við­talið var tekið og greinin birt hófst eld­gos enn einu sinni norðan Grinda­víkur.

Vonast til að fá heitt vatn

„Það er ekki ver­andi í húsum þar sem er ekki kalt vatn“
Bjarki

„Við verðum að koma hjól­unum á stað,“ segir Ómar Davíð Ólafsson, starfs­maður Vél­smiðj­unnar. „Það er ein fisk­vinnsla starf­andi í bænum. Svo eru aðrir sem bíða í start­hol­unum.“ Línu­bátar Stakka­víkur landa stundum í höfn­inni. En afl­inn er keyrður bein­ustu leið til vinnslu í Sand­gerði. Það kemur til af því að fisk­vinnslu­húsið er ónýtt. Stór sprunga liggur í gegnum það. „Nú erum við bara að bíða eftir að fá heitt vatn á hafn­ar­svæðið og kalt vatn á bæinn. Þá getur fólk farið að vera hérna,“ segir Bjarki Sig­mars­son sem stendur fyrir innan búð­ar­borðið.

Þeir segj­ast lítið botna í því hvað tefji við­gerðir á þessum líf­æðum allrar starf­semi og við­veru í bænum. HS Veitur virð­ast lítið vera að gera í mál­unum. Starfs­menn þeirra sjá­ist orðið sjaldan. Heyrst hafi að fyr­ir­tækið sé með aðra örygg­is­staðla en Almanna­varnir. Og að nú sé komið að stórum spurn­ingum um hver eigi að borga. 

Áttu von á að fá þrjú ár í skjóli

Hvorugur þeirra hefst við í bænum á nótt­unni. „Það er ekki ver­andi í húsum þar sem er ekki kalt vatn,“ segir Bjarki. Ómar á ein­býl­is­hús í Þór­kötlu­staða­hverf­inu, austan við þétt­býlið í Grinda­vík. Á því svæði eru engar skemmdir en þar er hvorki heitt né kalt vatn. Hús Bjarka er vest­ast í bænum, „alveg strá­heilt“. 

Þegar loks var opnað fyrir umsóknir um upp­kaup rík­is­ins á íbúð­ar­hús­næði í Grinda­vík í síð­ustu viku hopp­aði lík­lega eng­inn hæð sína í loft upp af kæti, þrátt fyrir að allir hafi beðið eftir þeirri aðgerð. „Við endum sjálf­sagt á því að selja eins og vænt­an­lega lang­flestir,“ segir Bjarki hugsi.

Félags­mið­stöðinBjarki og Ómar standa vakt­ina í verslun, á smur­stöð og verk­stæði. En það er lítil traffík um þessar mundir, segja þeir.

Þeir segja alveg nýtt hljóð hafa komið í Grind­vík­inga á síð­ustu dögum þegar farið var að rýna í lögin um fast­eigna­fé­lagið Þórkötlu sem mun eign­ast húsin. „Við fáum ákveðna upp­hæð fyrir húsin okkar en eftir kannski nokkra mán­uði getur hver sem er boðið í þau,“ segir Ómar um skiln­ing sinn og margra ann­arra á lög­unum. Þótt Grind­vík­ingar hafi for­kaups­rétt að húsum sínum í þrjú ár, geti komið upp sú staða að til­boð komi í hús innan þess tíma og þeir hafi þá fest alla sína pen­inga í öðrum eignum og geti ekki nýtt þennan rétt sinn. „Þannig gæti ég misst húsið mitt,“ segir hann. „Við héldum að við fengjum þrjú ár til að vera í algjöru skjóli.“ 

Bjarki sam­sinnir þessu. „Við skildum það öll þannig. En það virð­ist vera þannig að ef ein­hver girn­ist húsið okkar þá geti hann ein­fald­lega boðið í það.“

Ómar lætur verkin tala og sendi tölvu­póst á fjár­mála­ráð­herra í vik­unni og sagði frá þessum áhyggjum Grind­vík­inga. „Hún sagð­ist ætla að skoða þetta.“

Auðvitað er þetta sárt

Þetta er oft svona í lífi Grind­vík­inga. Eitt er lagað og þá bilar annað. Ein lausn er boðin en þá hentar hún ekki öllum eða er alls ekki eins og til stóð. Þau koma því hvert á eftir öðru, áföllin. Sum smá. Önnur risa­stór.

Er allt horfið?Þor­steinn ræðir um stöðu fyr­ir­tæk­is­ins síns í því ástandi sem nú ríkir. Í vetur var nóg að gera við að gera við lagnir. En hvað tekur nú við?

Bjarki og Ómar ólust upp í Grinda­vík. „Auðvitað er þetta sárt,“ segir Bjarki um það að þurfa að selja húsið sitt. „Það er verið að neyða okkur í eitt­hvað. Það stóð aldrei til að flytja héðan.“ Ómar bætir við: „Þetta er ekk­ert sem við völdum okkur.“

Þessi óvissa. Þessi enda­lausa bið. Hann hristir höf­uðið. „Það er það versta.“

Beðið eftir eldgosi

Inn kemur við­skipta­vinur. Þetta er hann Þor­steinn Ein­ars­son sem rekur Lagna­þjón­ustu Þor­steins. Hann sest niður við búð­ar­borðið og fær sér bita af Rís-súkkulaði og sopa af Pepsí. Það er kom­inn kaffi­tími. „Þessir safn­skólar verða ekki reknir áfram í haust, heyrði ég,“ segir hann við félaga sína og þeir segj­ast hafa heyrt ávæn­ing af því sama. En vita í raun ekk­ert hvað verður.

„Ég get sagt þér að ég hef örugg­lega gránað tölu­vert á síð­ustu mán­uðum“
Ómar

Það er rólegt í versl­un­inni um þessar mundir. Í jan­úar, þegar skipin voru að landa, þá var miklu meiri traffík. „Það eru allir að bíða eftir næsta atburði,“ segir Ómar um hvað valdi. „Það átti að verða eld­gos hérna í byrjun mán­að­ar­ins. Það varð bara kviku­hlaup en þá var sagt að gosið kæmi eftir nokkra daga. Og þá þorði eng­inn af stað.“ Tvær vikur hafa liðið og ekk­ert bólar á gosi. 

„Ég get sagt þér að ég hef örugg­lega gránað tölu­vert á síð­ustu mán­uðum,“ segir Ómar. Þor­steinn tekur ofan húf­una og strýkur í gegnum grátt hárið. „Þú varst löngu orð­inn svona, maður,“ segir Ómar og þeir brosa til hvor ann­ars.

„Okkar líf hefur ein­kennst af bið að und­an­förnu. Bið eftir ein­hverju sem við vitum ekki alltaf hvað er,“ segir Bjarki. 

Löglegur og allslaus 

Þor­steinn segir að smá­fyr­ir­tækin í Grinda­vík, sem hafi engan rekstr­ar­grund­völl lengur, hafi gleymst. „Það vantar svör. Fólk er kannski með aleigu sína bundna í atvinnu­hús­næði. Hvað á að gera fyrir þetta fólk?“ Fyr­ir­tækið hans var með tvö hús í bygg­ingu. Þau eru fok­held. Í þeim liggur ævisparn­aður hans. „Ég verð lög­legur á næsta ári, 67 ára,“ segir hann, „kannski verð ég þá orð­inn alls­laus.“

Ómar minnir á að stjórn­völd hafi sagt að þau ætl­uðu að reyna að taka til­lit til ólík­legra aðstæðna fólks. Þeir vona allir að það séu ekki orðin tóm.

Átta manns voru að vinna hjá Lagna­þjón­ustu Þor­steins fyrir nokkrum mán­uðum. Nú eru þeir fjórir. Fólk flutti burt og gat ekki lagt langar vega­lengdir á sig alla daga til að mæta í vinn­una. „Það sem hefur bjargað fyr­ir­tæk­inu í vetur er að við höfum unnið við að end­ur­nýja kalda vatnið og frá­veit­una.“ En hvað verður á næst­unni er allt annað mál. Það eru ekki mörg fyr­ir­tæki til að þjón­usta í bænum. Hann var með mörg verk­efni í gangi og önnur á teikni­borð­inu. „Það verður ekki neitt af þessu. Þetta er allt horfið.“

Hann hefði viljað að HS veitur not­uðu hverja stund sem býðst til að koma heita vatn­inu á. „Eftir því sem við drögum þetta lengur þá drögum við lífið úr bænum. Honum blæðir alltaf meira út.“

Tengslin rofna

Ómar segir að eftir því sem tím­inn líði missi fólk sífellt meira tengslin við stað­inn. Þetta er mikil synd, heldur Þor­steinn áfram. Grinda­vík var eng­inn svefn­bær. „Þetta var senni­lega öfl­ug­asta þorp á land­inu. Gríð­ar­lega öfl­ugt sveit­ar­fé­lag. Allt til alls. Nóg af vinnu.“  

„Eftir því sem við drögum þetta lengur þá drögum við lífið úr bænum. Honum blæðir alltaf meira út.“
Þor­steinn

Nú hefur Jóhann Pét­urs­son bæst í hóp­inn og leggur orð í belg á milli þess sem hann sýpur á kaff­inu. „Það er svo mik­ill drif­kraftur í fólk­inu.“ Allt gekk hratt og vel fyrir sig. Ekkert vesen. Öllu reddað. 

Fall manns­ins í sprung­una hafi breytt öllu. Bænum var lokað í nokkrar vikur, fólk mátti ekki koma. Yfirvöld voru gripin hræðslu. En samt óku vinnu­flokkar af ýmsum toga, jafn­vel gröfum, um göt­urnar. Þeir velta því fyrir sér hvort það hefði þá ekki alveg eins mátt hleypa íbúum inn. Fólkinu sem þekkir bæinn sinn vel. Auðvitað með mik­illi varúð. „Við sem höfum verið að vinna hérna á hverjum degi síðan í nóv­em­ber þekkjum öll hættu­svæðin,“ segir Þor­steinn.   

Ómar hellir upp á meira kaffi. Hér er kalt vatn sem gerir það mögu­legt. Í félags­mið­stöð­inni, eins og þeir kalla versl­un­ina. Þar sem rekin er smur­stöð, bif­reiða­verk­stæði og „sam­fé­lags­þjón­usta“, bætir Bjarki við sposkur á svip. „Þetta er það sem maður saknar þegar maður er í Reykja­vík,“ segir Jóhann. Þar gengur fólk inn á bens­ín­stöð og þekkir engan. „En hér þekkja allir alla.“ Allt er miklu per­sónu­legra, bætir Þor­steinn við. „Hér sagði tölvan aldrei nei eins og svo víða. Þessi mann­legu tengsl eru svo dýr­mæt.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raunir Grindvíkinga

Enn inni í myndinni að kaupa einingahús fyrir Grindvíkinga
FréttirRaunir Grindvíkinga

Enn inni í mynd­inni að kaupa ein­inga­hús fyrir Grind­vík­inga

Nokkur fjöldi íbúða er enn í boði fyrir Grind­vík­inga hjá óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og tölu­verður fjöldi til við­bótar í boði fyrir þá á Leigu­torgi. Ágætt fram­boð er auk þess á til­búnum bygg­ing­ar­lóðum. Inn­við­a­ráðu­neytið segir að m.a. í ljósi þessa þurfi að meta sér­stak­lega hvort þörf sé á frek­ari kaupum á hús­næði fyrir Grind­vík­inga.
Erum eiginlega að byrja upp á nýtt
FréttirRaunir Grindvíkinga

Erum eig­in­lega að byrja upp á nýtt

Enda­lausar áhyggjur af fötl­uðum syni og aldr­aðri móður hafa ein­kennt mán­uð­ina fjóra sem liðnir eru síðan hár­greiðslu­meist­ar­inn Guðrún Krist­jana Jóns­dóttir, Lillý, flúði Grinda­vík. Fjöl­skyldan ætlar ekki að flytja þangað aftur. „Það gerð­ist eitt­hvað innra með mér þegar mað­ur­inn féll ofan í sprung­una,“ segir hún. Sprungan sem klauf svo íþrótta­húsið, annað heim­ili sona hennar, gerði að end­ingu úts­lagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár