Þessi grein birtist fyrir rúmlega 11 mánuðum.

Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári

Eitt um­fangs­mesta verk­efn­ið sem fólg­ið er í að­gerðapakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyr­ir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjáls­ar skóla­mál­tíð­ir í grunn­skól­um. Tals­mað­ur Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga seg­ir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyr­ir breyt­ing­arn­ar muni fá frí­ar skóla­mál­tíð­ir. Ekki ligg­ur fyr­ir hvernig verk­efn­ið verð­ur út­fært í skól­um sem hafa út­vistað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
Ríkið og sveitarfélögin munu deila með sér kostnaðinum við að gera skólamáltíðir grunnskólabarna gjaldfrjálsar frá ágúst 2024 til loka samningstímans árið 2028. Mynd: Golli

Öllum grunnskólabörnum verða tryggðar fríar skólamáltíðir, óháð því hvor þau voru skráð í áskrift áður en ákvörðun ríkisins og sveitarfélaganna um að greiða niður máltíðirnar var tekin. Þetta staðfestir Grétar Sveinn Theódórsson, samskiptastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, í samtali við Heimildina.

Tökum Reykjavík til dæmis. Árið 2023 voru 14.755 nemendur skráðir í almenna grunnskóla í Reykjavík, það er grunnskóla sem reknir eru af borginni. Í svari við fyrirspurn Heimildarinnar segir talsmaður Skóla- og frístundsviðs borgarinnar að um 87 prósent nemenda hafi verið skráð í áskrift að skólamat. 

Í haust munu því um 1.900 börn í grunnskólum Reykjavíkur eiga kost á því að fá skólamáltíð sem ekki voru skráð í mat. Fyrir foreldra hinna rúmlega 12.800 barnanna, sem voru skráð í skólamáltíðir, munu aðgerðirnar skila sér í auknum ráðstöfunartekjum. 

Kostnaður gjaldfrjálsa skólamáltíða í Reykjavík

Ríkið mun greiða 75 prósent af kostnaði þess að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar en sveitarfélögin restina. Áætlað er að kostnaður við þessa aðgerð muni nema um fimm milljörðum króna. 

Um stórt og metnaðarfullt verkefni er að ræða og hefur þessi hluti kjarasamninganna vakið mikla athygli. Ýmis atriði sem snerta nánari útfærslu á aðgerðinni liggja þó en ekki fyrir.

Samkvæmt vef Reykjavíkurborgar kosta skólamáltíðir 12.836 krónur. Gróflega reiknað munu gjaldfrjálsar skólamáltíðir kosta tæpar 190 milljónir á mánuði. Af þessari upphæð mun Reykjavíkurborg greiða um rúmar 47 milljónir króna. 

Á ársgrundvelli, að frádregnum sumarmánuðunum júní, júlí og ágúst, mun aðgerðin kosta ríkið og Reykjavíkurborg um 1,7 milljarða króna á ári.  

Vinna að útfærslu fyrir skóla sem hafa útvistað skólamatnum

Nú reka ekki allir grunnskólar eldhús og útvista þess í stað þjónustunni til einkafyrirtækja. Á undanförnum árum hafa grunn- og leikskólar í  auknum mæli útvistað störfum í eldhúsum skólanna í hagræðingarskyni.

Er þetta þrátt fyrir að yfirlýst stefna borgarinnar sé að útvista ekki störfum í eldhúsum í  grunn- og leikskólum. Hins vegar leggst borgin ekki gegn því ef breytingin er gerð að frumkvæði stjórnenda skólanna.

Spurður hvernig því verði háttað í grunnskólum þar sem ekki er starfrækt eldhús og máltíðum er útvistað til einkarekinna fyrirtækja segir Grétar Sveinn að enn eigi eftir að komast niðurstöðu gagnvart því atriði ásamt öðrum útfærsluatriðum. 

Þá segir Grétar Sveinn að á næstu mánuðum munu ríkið og sveitarfélögin semja um útfærslu ýmsum útistandandi atriðum. Samkvæmt tilkynningu sem birt var á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga er gert ráð fyrir að búið verða að útfæra verkefnið fyrir lok maímánaðar á þessu ári.  

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafs­son um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sextánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dótt­ir, að­stoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafs­son, sér­fræð­ing­ur hjá Efl­ingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs kon­ar veð­mál, þar sem von­ir væru bundn­ar við hjöðn­un verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­leg­um kjara­bót­um.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Sam­tök at­vinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á fé­lags­menn VR

Stjórn Sam­taka at­vinnu­lífs­ins hef­ur sam­þykkt ein­róma að halda at­kvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á fé­lags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins sem birt­ist fyr­ir skömmu seg­ir að verði verk­bann­ið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með að­ild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerð­um sem VR hef­ur boð­að með­al starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelanda­ir
Samninganefnd VR samþykkir atkvæðagreiðslu um verkfall
FréttirKjaramál

Samn­inga­nefnd VR sam­þykk­ir at­kvæða­greiðslu um verk­fall

Samn­inga­nefnd VR sam­þykkti í gær að halda at­kvæða­greiðslu um verk­föll með­al flug­vall­ar­starfs­manna sem starfa á Kefla­vík­ur­flug­velli. Um er að ræða um 150 starfs­menn sem starfa all­ir fyr­ir Icelanda­ir og sinna með­al ann­ars inn­rit­un, tösku­mót­töku, brott­för­um og þjón­ustu vegna týnds far­ang­urs. At­kvæða­greiðsl­an fer fram á mánu­dag­inn eft­ir helgi og verði vinnu­stöðv­un sam­þykkt er gert ráð fyr­ir að verk­föll hefj­ist 22. mars.
Tæplega helmingur launafólks á í fjárhagslegum erfiðleikum
FréttirKjaramál

Tæp­lega helm­ing­ur launa­fólks á í fjár­hags­leg­um erf­ið­leik­um

Sam­kvæmt nýrri könn­un Vörðu – Rann­sókn­ar­stofn­un­ar vinnu­mark­að­ar­ins á 40 pró­sent launa­fólks erfitt með að ná end­um sam­an. Skýrsl­an, sem kynnt var á fundi í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu í dag, leið­ir ljós að kjör til­tek­inna hópa sam­fé­lags­ins hafi versn­að um­tals­vert milli ára. Tæp­lega fjórð­ung­ur ein­hleypra for­eldra býr við efn­is­leg­an skort og fjár­hags­staða kvenna er verri en á karla á öll­um heild­ar­mæli­kvörð­um rann­sókn­ar­inn­ar. Þá mæl­ist staða inn­flytj­enda verri í sam­an­burði við inn­fædda Ís­lend­inga fjórða ár­ið í röð.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Ásgeir greindist með banvænt krabbamein: „Ég ætla samt að halda partí“
1
Viðtal

Ás­geir greind­ist með ban­vænt krabba­mein: „Ég ætla samt að halda partí“

Ás­geir H. Ing­ólfs­son fékk ný­ver­ið dauða­dóm, eins og hann orð­ar það. Krabba­mein­ið sem hann greind­ist með er ekki tækt til með­ferð­ar. Ljóð­skáld­ið og blaða­mað­ur­inn býð­ur því til Lífs­kviðu; mann­fagn­að­ar og list­við­burð­ar á Götu sól­ar­inn­ar við Kjarna­skóg. Ás­geir frá­bið­ur sér orð­ið æðru­leysi í þessu sam­hengi, því auð­vit­að sé hann „al­veg hund­fúll.“
Viðskiptaáætlun Carbfix: Földu áform sín fyrir íbúum
2
RannsóknCarbfix-málið

Við­skipta­áætl­un Car­bfix: Földu áform sín fyr­ir íbú­um

Fyr­ir­ætlan­ir Car­bfix eru mun um­fangs­meiri en fram hef­ur kom­ið. Stefnt er að því að dæla nið­ur allt að 4,8 millj­ón­um tonna af kol­díoxí­ði (CO2) og fyr­ir­tæk­ið von­ast til þess að velta hátt í þrjú hundruð millj­örð­um á full­um af­köst­um. Það er hærri upp­hæð en stærsta fyr­ir­tæki lands­ins velt­ir í dag. Á með­al við­skipta­vina er fyr­ir­tæki sem framdi glæp gegn mann­kyni og vill dæla nið­ur CO2 á Ís­landi.
Móðir Kolfinnu Eldeyjar: „Ég segi mína sögu því að samfélagið þarf að vakna“
3
Fréttir

Móð­ir Kolfinnu Eld­eyj­ar: „Ég segi mína sögu því að sam­fé­lag­ið þarf að vakna“

Ingi­björg Dagný Inga­dótt­ir, móð­ir Kolfinnu Eld­eyj­ar Sig­urð­ar­dótt­ur, opn­ar sig um and­lát dótt­ur sinn­ar. Hún seg­ir kerf­in hafa brugð­ist barns­föð­ur sín­um, sem hef­ur ver­ið ákærð­ur fyr­ir að hafa ráð­ið dótt­ur þeirra bana. „Ég vissi strax í hjarta mínu að hann hefði ekki tek­ið með­vit­aða ákvörð­un um að gera svona lag­að“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu