Þessi grein birtist fyrir rúmlega 3 mánuðum.

Hraunrennsli til norðurs gæti ógnað Reykjanesbraut

„Ef gos kæmi upp við Stóra-Skóg­fell þá gæti hraun­ið runn­ið til norð­urs,“ seg­ir Þor­vald­ur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ing­ur. Þá gæti það, ef allt færi á versta veg, flætt að og jafn­vel yf­ir Reykja­nes­braut.

Hraunrennsli til norðurs gæti ógnað Reykjanesbraut
Hvað næst? Sundhnjúkagígaröðin er löng og á henni hafa nú orðið tvö eldgos á nokkrum vikum. Líklegt er að virknin haldi þar áfram. Gos syðst á sprungunni ógnar byggðinni í Grindavík. Gos um miðbik hennar mögulega Bláa lóninu og Svartsengisvirkjun en ef gos yrði nyrst í henni gæti Reykjanesbrautin orðið undir hrauni. Mynd: Golli

„Ég tel líklegast að næsta gos komi upp á milli Hagafells og Stóra-Skógfells,“ segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði. Það gæti allt eins gerst á allra næstu dögum. Hann telur í raun líklegast að framhald jarðhræringa á Reykjanesi verði, næstu mánuði og jafnvel lengur, á Sundhnjúkasprungunni, sem áðurnefnd fell tilheyra. Gera megi ráð fyrir litlum gosum á þeim slóðum, lík þeim sem urðu í desember og janúar.

En hvar gosið kemur upp á þessari sprungu, sem svaf í um eða yfir 2.000 ár áður en þar varð gos í lok síðasta árs, er stóra málið í þessu sambandi.

EldfjallafræðingurÞorvaldur Þórðarson.

„Líkön sem byggja á GPS gögnum sýna að nú hafa um það bil 6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kvikuhólfið kennt við Svartsengi,“ sagði í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands í gær sem samhliða birti nýtt hættumatskort af Grindavík og nágrenni. „Miðað við þetta mat er líklegt að kvikumagnið nái svipuðu rúmmáli og fyrir eldgosið 14. janúar á næstu tveimur vikum og jafnvel dögum. Þetta þýðir að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hafi aukist.

Benedikt Ófeigsson náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni sagði í RÚV í gær að hann teldi, líkt og Þorvaldur, líklegast að næsta eldgos komi upp á svæðinu á milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Þar hafi mesta virknin verið undanfarið og gögn bendi til þess að svæðið sé líklegt.

Og það er þessi staðsetning sem Þorvaldur segir tilefni til að hafa áhyggjur af. „Ef gos kæmi upp við Stóra-Skógfell þá gæti hraunið runnið til norðurs,“ segir hann við Heimildina. Síðustu tvo gos hafa verið sunnar á sprungunni og sunnan vatnaskila sem fara um miðju Reykjanesskagans. „Ef það kemur gos á norðanverðri Sundhnjúkasprungunni þannig að hraun færi að flæða til norðurs, þá gæti það flætt að og jafnvel yfir Reykjanesbraut,“ segir hann. Það væri vissulega mjög óheppilegt, ekki síst núna þegar leiðir sunnan megin á skaganum eru ýmist laskaðar eða lokaðar. Og þar með yrði engin greið leið til Keflavíkurflugvallar.

SundhnjúkagígarFyrir um það bil miðju kortsins er Stóra-Skógfell.

Spurður hvort huga ætti að vörnum til að koma í veg fyrir þessi ósköp svarar Þorvaldur: „Já, því hvað ætlum við að gera? Ég er ekki að segja að það eigi að fara að byggja varnargarða eftir endilöngum Reykjanesskaganum. En ef kemur til þess að hraun fari að flæða í átt að Reykjanesbrautinni og að líkur væru á að það færi yfir hana og ekki yrði mögulegt að keyra til vesturhluta Reykjanesskagans, þá værum við ekki í sérstaklega góðum málum.“

„Við vitum öll hvað það er mikilvægt fyrir samfélagið allt og atvinnuvegina að Keflavíkurflugvöllur haldist opinn, að þangað sé greið og örugg leið“
Þorvaldur Þórðarson,
prófessor í eldfjallafræði.

Keflavíkurflugvöllur er vel staðsettur á Reykjanesskaga með tilliti til hraunrennslis þótt vissulega gæti hann lokast vegna gasmengunar eða öskufalls í þeim eldum sem nú eru hafnir á svæðinu og gætu varað í áratugi eða aldir. En hættan er, líkt og Þorvaldur bendir á, að leiðir að vellinum lokist.

„Við vitum öll hvað það er mikilvægt fyrir samfélagið allt og atvinnuvegina að Keflavíkurflugvöllur haldist opinn, að þangað sé greið og örugg leið,“ segir hann. Áföllin þurfi ekki að raungerast til að ferðamenn hiki við að koma til landsins.

„Við þurfum að hugsa um þetta. Hugsa upp lausnir. Við þurfum að vera viðbúin að geta tekist á við það. Því betur undirbúin sem við verðum, því minna vandamál verður það. Og því minni verður kostnaðurinn. Þegar allt verður farið af stað þá verður dýrt að vera ennþá á byrjunarreit.“ 

Hann segir ennfremur „afskaplega mikilvægt að hafa þessi mál í lagi svo ferðamenn viti að það sé öruggt að koma hingað, að flugvöllurinn okkar sé öruggur og greiðar og öruggar leiðir að honum.“

Og ef við hugsum til langs tíma, bætir Þorvaldur við, þá væri skynsamlegt að byggja annan alþjóðlegan flugvöll „en ekki líka á svæði þar sem hætturnar eru þær sömu. Ekki vera með öll eggin í sömu öskjunni.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbú­um leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­regl­an mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­in­um verð­ur íbú­um og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækj­um í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæ­inn og dvelja þar næt­ur­langt. Í ný­legri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesj­um er greint frá þessu. Íbú­ar eru þó var­að­ir við að inn­við­ir bæj­ar­ins séu í lamasessi og sprung­ur víða. Bær­inn sé því ekki ákjós­an­leg­ur stað­ur fyr­ir fjöl­skyld­ur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tíma­bært að verja Reykja­nes­braut

Þor­vald­ur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ing­ur seg­ir að það sé tíma­bært að huga að vörn­um fyr­ir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesj­um. At­burða­rás­in á fimmtu­dag, þeg­ar hraun rann yf­ir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi ver­ið sviðs­mynd sem bú­ið var að teikna upp. Hraun hafi runn­ið eft­ir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þeg­ar mað­ur vel­ur sér það sjálf­ur, hvað þá þeg­ar mað­ur neyð­ist til þess. Og hvernig vel­ur mað­ur hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þeg­ar mað­ur yf­ir­gef­ur stórt ein­býl­is­hús með tvö­föld­um bíl­skúr fyr­ir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyld­an á Blóm­st­ur­völl­um 10 í Grinda­vík stóð frammi fyr­ir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
1
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.
Brosir gegnum sárin
3
ViðtalHlaupablaðið 2024

Bros­ir gegn­um sár­in

Andrea Kol­beins­dótt­ir, marg­fald­ur Ís­lands­meist­ari í hlaup­um, ger­ir hlé á lækn­is­fræði til að reyna að verða at­vinnu­hlaup­ari. Hún deil­ir lær­dómi sín­um eft­ir hindr­an­ir og sigra síð­ustu ára. Fjöl­skyldu­með­lim­ir hafa áhyggj­ur af hlaup­un­um, en sjálf ætl­ar hún að læra meira á manns­lík­amann til að bæta sig og hjálpa öðr­um. Hlaup­in snú­ast um sig­ur hug­ans og stund­um bros­ir hún til að plata heil­ann.
Vill að NATO greiði fyrir nýjan flugvöll
6
Fréttir

Vill að NATO greiði fyr­ir nýj­an flug­völl

Ei­rík­ur Ingi Jó­hanns­son for­setafram­bjóð­andi tel­ur að að­ild Ís­lands að Norð­ur-Atlants­hafs­banda­lag­inu (NATO), sem sam­þykkt var á Al­þingi ár­ið 1949, hefði átt að vera sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í nýj­asta þætti Pressu sagði Ei­rík­ur að Ís­land ætti ekki að leggja til fjár­muni í varn­ar­banda­lag­ið. Þvert á móti ætti NATO, að hans mati, að fjár­magna upp­bygg­ingu á mik­il­væg­um inn­við­um hér á landi.
Læknir segir lífi Blessing ógnað með brottvísun
7
Fréttir

Lækn­ir seg­ir lífi Bless­ing ógn­að með brott­vís­un

Lækn­ir á Land­spít­ala seg­ir að það sé ófor­svar­an­legt með öllu út frá lækn­is­fræði­legu sjón­ar­miði að Bless­ing Newt­on frá Níg­er­íu verði vís­að úr landi á morg­un. Hún sé með sex æxli í legi og lífs­nauð­syn­legt að hún hafi greið­an að­gang að bráða­þjón­ustu. Bless­ing er nú í gæslu­varð­haldi á Hólms­heiði að sögn lög­manns henn­ar. Hann seg­ir lækn­is­vott­orð­ið þess eðl­is að ekki sé ann­að hægt en að fresta fram­kvæmd brott­vís­un­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Samsæriskenningar um forsetaframbjóðendur
5
FréttirForsetakosningar 2024

Sam­særis­kenn­ing­ar um for­setafram­bjóð­end­ur

Sam­særis­kenn­ing­ar um fram­bjóð­end­ur til for­seta Ís­lands hafa lát­ið á sér kræla, sér­stak­lega hvað varð­ar tengsl við Al­þjóða­efna­hags­ráð­ið og meint­ar fyr­ir­ætlan­ir þess um heims­yf­ir­ráð. Stjórn­mála­sál­fræð­ing­ur seg­ir kenn­ing­arn­ar ekki eiga við rök að styðj­ast þótt vissu­lega sitji valda­mik­ið fólk í ráð­inu.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár