Dómsmálaráðherra í Pressu

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra situr fyrir svörum í Pressu. Mörg stór mál eru á verk­sviði hennar; allt frá útlend­inga­málum til neyð­ar­á­stands­ins í Grinda­vík. Í síð­ari hluta þáttar setj­ast almanna­tengl­arnir Björgvin Guð­munds­son og Andrés Jónsson í stjórn­mála­á­standið.

Dómsmálaráðherra í Pressu

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra situr fyrir svörum í Pressu, sem sýnd er á vef Heim­ild­ar­innar í beinu streymi klukkan 12.00 á föstu­dögum og aðgengi­legur í heild sinni að þætti loknum. Guðrún tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í haust og hefur síðan staðið í ströngu vegna umdeildra og flók­inna mála sem heyra undir ráðu­neytið.

Sem æðsti yfir­maður almanna­varna hafa afleið­ingar jarð­hrær­inga á Reykja­nesi, upp­bygg­ing varn­ar­garða og rým­ing­ar­að­gerðir meðal ann­ars lent á hennar borði rétt eins og krafa um ítar­lega rann­sókn á því þegar Lúðvík Pét­urs­son féll í sprungu við vinnu sína í Grinda­vík. Útlend­inga­mál eru ekki síður í deigl­unni.

Tillögur Guðrúnar um lokað búsetu­úr­ræði fyrir hæl­is­leit­endur sem and­stæð­ingar þess kalla fang­elsi, er á leið fyrir rík­is­stjórn. Samhliða vax­andi og hávær­ari krafna innan hennar eigin flokks um nauð­syn þess að hefta enn mót­töku hæl­is­leit­enda hingað til lands.

Í þátt­inn koma einnig almanna­tengl­arnir Björgvin Guð­munds­son og Andrés Jónsson og ræða stjórn­mála­á­standið, en það hug­tak hefur ef til vill sjaldan átt betur við en núna. Úrskurðir umboðs­manns, yfir­lýs­ingar ein­staka stjórn­ar­liða um sam­starfs­flokk­ana, fylgiskann­anir og hveiti­brauðs­dagar for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins í nýju ráðu­neyti, verða rædd þar. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár