Álftadauði í gæsaveiðilandi á borði lögreglu – Fuglar lokkaðir á „blóðvöll“

Þær elska korn og þegar því er dreift í tonna­vís á akra og tún eru þær mættar um leið. Hund­ruðum eða þús­undum saman. Kroppa kornið. Þar til skot­hríðin hefst. Þessar veiði­að­ferðir á gæs eru vel þekktar. En umdeildar. Fleiri fuglar, sumir frið­aðir, sækja í beit­una. Og eiga þá á hættu að lenda í skot­lín­unni.

Álftadauði í gæsaveiðilandi á borði lögreglu – Fuglar lokkaðir á „blóðvöll“

Magn­veiði á gæs, þar sem hver veiði­maður skýtur jafn­vel tugi fugla á einum morgni, hefur verið stunduð í mörg ár á Íslandi, aðal­lega á Suð­ur­landsund­ir­lend­inu. Gæsin sækir þangað í kornakra og er bein­línis lokkuð á veiði­svæðin með fæðu­gjöf fram eftir vetri. Þarna koma þær saman í hund­raða eða þús­unda­vís. Svangar og granda­lausar. Við akrana bíða svo menn ofan í byrgjum. Klæddir felu­lita­bún­ingum. Vopnaðir byssum. Og þegar rétta augna­blikið kemur er hleypt af. „Þeir bara skjóta, skjóta, skjóta,“ segir einn við­mæl­andi Heim­ild­ar­innar um aðferð­irnar sem eru lög­legar en „sið­ferð­is­lega á gráu svæði“, að mati fugla­fræð­ings.

Þessi stór­tæka gæsa­veiði á kornökrum, sem hér verður kölluð magn­veiði, er stunduð á nokkrum fjölda jarða eða skika á lág­lendi Suð­ur­lands, ýmist af leigu­tökum eða land­eig­endum. Leyfi til veiða eru svo gjarnan seld til fólks, bæði Íslend­inga og útlend­inga á gæsa­veiði­tíma­bil­inu sem stendur frá 20. ágúst til 15. mars. Veiði­dag­ur­inn getur, eftir því sem Heim­ildin kemst næst, kostað á bil­inu 50–120 þús­und, eftir því hvar og hvenær er veitt.  

„Þetta er eins og að fóðra smá­fugla úti í garði og skjóta þá svo út um bréfalúg­una“
Skot­veiði­maður um aðferðir við magn­veiðar

Hver veiði­maður getur átt von á því að veiða tugi fugla á einum degi. Jafnvel hund­ruð, líkt og einn við­mæl­andi Heim­ild­ar­innar stað­festir. „Skutum tæp­lega 50 fugla, hefðu vel getað verið fleiri ef við hefðum hitt betur,“ skrifar veiði­maður nýverið á Facebook-síðu aðila sem býður upp á magn­veiðar á landi sínu. „Þúsundir fugla á flugi um svæðið“, bætir hann við.

Þessi veiði­mennska á lítið skylt við róm­an­tísku staðalí­mynd­ina af velút­búna veiði­mann­inum sem gengur með byssu á bak­inu um heiðar og fjöll til að skjóta, af þekk­ingu og virð­ingu fyrir dýrum, í mat­inn fyrir sig og sína. „Þetta er brú­tal. Við­bjóðs­legt,“ segir einn við­mæl­andi. „Þetta er sið­laust,“ segir annar.

Það sem mörgu fólki, veiði­mönnum sem öðrum, hugn­ast ekki við þessar aðfarir er t.d. aukin hætta á að særa fugla, að þeir séu lokk­aðir með beitu og hversu gríð­ar­legt magn sé stundum veitt.

„Það er óvið­un­andi að menn séu að fóðra and­fugla og skjóti þá síðan tugum saman á blóð­velli,“ segir Linda Karen Gunn­ars­dóttir, for­maður Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands (DÍS). „Sumir fugl­arnir geta sloppið hel­særðir. En það er erfitt að sjá og finna fugl sem kemst særður burt þegar þeir eru skotnir svo margir saman.“

Hún minnir á að sam­kvæmt reglu­gerð um fugla­veiðar eigi að elta uppi og aflífa særða fugla. DÍS hafi hins vegar fengið ábend­ingu um særða and­fugla í grennd við þessa staði og að verið sé að drepa frið­aða fugla. Það sé lög­brot.

Því það eru ekki ein­göngu gæsir sem sækja í korna­krana og fóð­ur­gjöf­ina. Aðrir fiðraðir gras­bítar gera það einnig, svo sem hin alfrið­aða álft. Og það í stórum stíl.

Við árbakk­annSærðar álftir sækja í var við árbakka. Þar ann­að­hvort drep­ast þær eða vargur kemst í þær og drepur. Og síðan étur.

Helsærð álft

„Ég hafði frétt um málið úr nokkrum áttum og ákvað að fara á vett­vang og skoða,“ segir við­mæl­andi Heim­ild­ar­innar sem vill, líkt og fleiri sem rætt var við vegna máls­ins, ekki láta nafns síns getið. „Það fyrsta sem ég sé er hel­særð álft á veg­inum beint fyrir framan veiði­húsið. Hún gat bara hreyft háls­inn. Hún var með skotsár. Ég varð að hringja í mann og biðja hann að koma og aflífa hana.“

Lýsing á því sem fyrir augu bar á þessu gæsa­veiði­svæði á Suð­ur­landi nýverið heldur svo áfram: „Ég ákvað að ganga niður með á sem rennur í gegnum svæðið. Þá blasir við hvítt fiður úti um allt. Svo fer maður að sjá hræ eitt af öðru. Dauðar álftir. Stundum unga með blá fit. Ég taldi lík­lega um fjöru­tíu hræ. Og ekki af neinum öðrum fuglum en álftum.“

Lítur málið alvarlegum augum

Bjarni Jónasson, teym­is­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun (UST), stað­festir að stofn­un­inni hafi borist ábend­ingar um dráp á álftum á umræddu svæði. „Við höfum einnig verið í sam­bandi við lög­reglu út af mál­inu,“ segir hann og ítrekar að álftir séu frið­aðar. „Við lítum á að málið sé í vinnslu og tökum því alvar­lega.“

Tómas Grétar Gunn­ars­sonfugla­fræð­ingur.

Magn­veiði á gæsum virð­ist hafa auk­ist síð­ustu ár og ára­tugi, að sögn Tómasar Grétars Gunn­ars­sonar fugla­fræð­ings. Ekki sé ólík­legt að þær eigi þátt í því að grá­gæsa­stofn­inn eigi nú undir högg að sækja.

Nið­ur­stöður lang­tíma vökt­unar á íslensk-breska grá­gæsa­stofn­inum hafa sýnt fram á fækkun í honum frá 2012 og í haust var sett á bann við sölu á grá­gæs þótt enn sé heim­ilt að veiða hana. „Veiði getur haft áhrif á stofn­inn og því meiri og þétt­ari veiði því meiri geta áhrifin mögu­lega verið,“ segir Svenja Auhage, umhverfis- og vist­fræð­ingur hjá Nátt­úru­fræði­stofnun. Hins vegar skorti frek­ari rann­sóknir á tengslum veiða og stofn­stærða. Sölu­bannið geti haft áhrif á magn­veiðar en áhrif banns­ins á stofn­stærð teg­und­ar­innar eigi hins vegar eftir að koma í ljós.

Þegar umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra bann­aði sölu á grá­gæs síð­asta haust kom fram að unnið væri að því að útfæra nánar eft­ir­lit með bann­inu enda höfðu áhyggjur vaknað um að grá­gæs yrði seld inn á veit­inga­hús og í versl­anir sem heiða­gæs, gæs af stærri stofni sem má bæði veiða og selja. Ekkert bólar hins vegar enn á því eft­ir­liti, engar grein­ingar á þeim gæsa­af­urðum sem seldar eru hafa farið fram. Umhverf­is­stofnun, sem hefur þetta verk­efni með höndum, hefur beðið ráðu­neytið um fjár­heim­ildir til verks­ins. Einnig hefur verið leitað til Mat­væla­stofn­unar um aðstoð við sýna­töku „og okkur skilst að málið sé í vinnslu“, segir Bjarni teym­is­stjóri hjá UST. Engar til­kynn­ingar um sölu á grá­gæs hafi borist eftir að sölu­bannið tók gildi.

HrúgurÍ mynd­böndum og á myndum sem birtar hafa verið á Facebook-síðum í haust má sjá stóra stafla af dauðum grá­gæsum.

Af þeim myndum að dæma sem settar hafa verið inn á Facebook-síður aðila sem bjóða og stunda magn­veiðar, má ætla að bráðin þetta haustið sé sem fyrr fyrst og fremst grá­gæs. Það kann vissu­lega að vera að veiði­menn­irnir geymi þær í tuga­tali í frystikistum sínum eða gefi vinum og vanda­mönnum.

Að grá­gæsin sé enn aðal­lega veidd er ekki óvænt því heiða­gæs heldur sig að mestu uppi á hálendi. Hún tyllir sér þó ein­staka sinnum og í rík­ari mæli með stækk­andi stofni, á akra og tún að hausti áður en hún heldur til vetr­ar­stöðva á hlýrri slóðum. „Mest af heiða­gæsum hefur þó verið veitt á hálend­inu,“ segir Tómas. „Menn sitja við vötn og tjarnir á kvöldin og veiða fáar gæsir. Það er mjög skemmti­legur veiði­skapur.“

Hrein og klár atvinnuveiði

Áður fyrr voru grá­gæsir mest veiddar í túnum. Þær kjósa hins vegar korn fram yfir gras og þess vegna sækja þær í akra á lág­lendi. Kornrækt hefur auk­ist á Íslandi sem og ann­ars staðar sem gæti skýrt þá stað­reynd að á meðan fuglum á norð­ur­hveli jarðar hefur lík­lega fækkað um fjórð­ung eða svo frá 1970 hefur gras­bítum á borð við gæsir og álftir almennt fjölgað. „Þessi tengsl milli land­bún­að­ar­lands og gæsa eru mjög sterk,“ segir Tómas. Í dag sé veiði á þeim mikið bundin við kornakra. „Og veiðin er að miklu leyti orðin hrein og klár atvinnu­veiði.“

Helstu álita­mál í tengslum við magn­veið­arnar eru að mati Tómasar tvenns konar: Fóðrunin og vetr­ar­veiðar.

SærðarÍ fyrra­vetur sáust særðar gæsir á Suð­ur­land­inu á tíma þegar miklar vetr­ar­hörkur geisuðu. Þær draga væng­ina, líkt og sjá má á mynd­inni.

Þegar gæsir og aðrir gras­bítar hafa étið allt það korn sem eftir er í ökrum síðla hausts er það stundað að dreifa í þá korni. Ýmist korni sem við­kom­andi hefur ræktað sjálfur eða hann kaupir jafn­vel í tonna­vís. „Þetta býr til rosa­legan segul fyrir gæsir,“ segir Tómas. Athæfið sé talið lög­legt en „þarna er verið að beita fyrir fugla til þess að geta strá­fellt þá í atvinnu­skyni og það finnst mörgum svo­lítið ljótt“.

Að mati Bjarna hjá Umhverf­is­stofnun er ekki ólög­legt að bera út korn fyrir gæsir. Á þessum veiði­að­ferðum séu hins vegar mis­jafnar skoð­anir „og ég get stað­fest að okkur ber­ast stundum ábend­ingar þar sem sumum fellur þetta illa“.

Spurð hvort magn­veiði á gæs auki líkur á því að særa fugl­ana líkt og for­maður DÍS bendir á segir Svenja hjá Nátt­úru­fræði­stofnun málið tölu­vert flókið. „Kornrækt og veiði á Suð­ur­landi ganga í takt sums staðar þar sem sumir korna­krar eru aðal­lega rækt­aðir undir gæsa­veiðar,“ segir hún. „Þannig að þarna er verið að búa til eft­ir­sókn­ar­vert fæðu­öfl­un­ar­svæði fyrir gæsir þar sem þéttir hópar safn­ast saman.“

Með þessu móti er sá tími sem gæsir kom­ast í æti hér á landi mögu­lega lengdur.

Og þá erum við komin að hinu álita­mál­inu sem fer fyrir brjóstið á mörgum. „Vet­ur­seta gæsa hefur auk­ist, sér­stak­lega á lág­lendi Suð­ur­lands,“ útskýrir Tómas. „Þegar það eru jarð­bönn, líkt og í fyrra þegar komu miklir frostakaflar, þá var tals­vert af gæsum í bág­bornu ástandi.“

Á akriHundruð gæsa og álfta á akri. Þangað koma þær í afgangs korn en einnig er dreift korni til að lokka þær þangað. Mynda­vélar eru á sumum ökrunum.

Því þessa vet­ur­setu við oft erf­iðar aðstæður eru sumir að gera út á. „Lokka gæs­irnar í litla bletti þegar lítið er að hafa og strá­fella þær, í des­em­ber og jafn­vel jan­úar,“ heldur Tómas áfram. „Það finnst mörgum veiði­mann­inum subbu­legt. En það er ekki ólög­legt.“

Efast um árangur af álftaveiðum

Álftir geta verið skað­valdur í túnum og á ökrum og hafa bændur óskað eftir heim­ildum til að skjóta hana. „Líkt og með gæs­irnar þá eru álftir ein af þessum teg­undum sem skar­ast á við hags­muni fólks,“ segir Tómas. Það sé vissu­lega sjón­ar­mið út af fyrir sig, að stofnar þess­ara gras­bít­andi fugla séu að stækka og valda tjóni. „En það er mjög óvíst að veiðar myndu skila ein­hverju að gagni í þessum til­gangi.“

Máli sínu til stuðn­ings bendir hann á að und­an­farna ára­tugi hafi lík­lega um fjórð­ungur af stofni grá­gæsar, frænku álft­ar­innar, verið felldur ár hvert en það hafi lítil sem engin áhrif haft á stofn­stærð og dreif­ingu nema kannski allra síð­ustu miss­eri.

Ef álftir væru drepnar í álíka hlut­falli, þyrfti að drepa mörg þús­und á hverju hausti og alveg óvíst að það hefði nokkur áhrif á stofn­stærð eða dreif­ingu. Þannig að til að ná því mark­miði að minnka tjón svo ein­hverju nemi þyrfti mögu­lega að fara í mjög stór­tækar veiðar og slíkt yrði að mati Tómasar mjög óvin­sælt. Að halda utan um slíkar veiðar myndi líka fela í sér veru­legan kostnað. Álftir hafi einnig mikið aðdrátt­ar­afl á vernd­ar­svæðum í Bret­landi og víðar. „Mér kæmi ekki á óvart að fjár­hags­legir hags­munir af lif­andi álftum séu í heild meiri en tjónið sem þær valda.“

Það sama gæti átt við um gæsir. Í veiðum á þeim, ekki síst þess­ari miklu magn­veiði, felist miklir fjár­hags­legir hags­munir.

Reyndur skot­veiði­maður sem hefur kynnt sér vel fyr­ir­komu­lag magn­veiða, gagn­rýnir þær harð­lega í sam­tali við Heim­ild­ina. „Þetta er eins og að fóðra smá­fugla úti í garði og skjóta þá svo út um bréfalúg­una,“ segir hann um aðfar­irnar og heldur áfram í sam­lík­ing­unum: „Þetta er eins og að fara til veiða í fisk­eldi með net. Það er löngu kom­inn tími á að taka á þessu ógeðs­lega og sið­lausa drápi á öllum þessum fuglum.“

Skot­veiðiGæsa­veiði er mikil á Suð­ur­landi. Síðustu ár hafa þús­undir gæsa verið skotnar ár hvert en nú er grá­gæsa­stofn­inn að minnka og bann hefur verið sett við sölu á slíkum gæsum. Það má þó enn veiða þær.

Hann telur að gæsa­veiði hafi breyst hratt á síð­ustu 1–2 ára­tugum þegar fleiri aðilar fóru að gera út á magn­veiðar líkt og á undan er lýst. Fóðrað sé af kappi síðla hausts, fugl­arnir telji sig komna í vænt hlað­borð og fari því ekki til hefð­bund­inna vetr­ar­stöðva sinna. Svo sé jafn­vel allt í einu skrúfað fyrir fóð­ur­gjöf­ina og fugl­arnir horist niður.

Hann gagn­rýnir enn fremur að veiði­tíma­bilið standi fram í miðjan mars. Þá þegar séu varppör farin að koma erlendis frá. Sumir séu þá enn að dreifa korni í tún og veiða. „Þetta eru ekki veiði­menn í mínum huga. Þetta kemur í raun engri veiði við.“

Högl í lifandi álftum og gæsum

Um síð­ustu alda­mót sýndi rann­sókn fram á að um 13,6 pró­sent lif­andi álfta á Íslandi væru með högl í sér. Þar sem álftir eru almennt far­fuglar er ekki hægt að full­yrða að höglin hafi öll komið frá íslenskum veiði­mönnum.

Í lok tíunda ára­tugar síð­ustu aldar höfðu rann­sóknir í Danmörku sýnt að skot­veiði­menn særðu oft jafn­marga fugla og þeir veiddu. Við­brögðin voru þau að hefja vit­und­ar­vakn­ingu sem skil­aði þeim árangri að ára­tug síðar voru um 7–11 pró­sent ungra, lif­andi gæsa með högl í sér og um 18 pró­sent eldri gæsa.  

„Í mínum huga er eina afsök­unin fyrir hvers konar sport­veiði­skap sú að þú ætlir að borða bráð­ina sjálfur með þínum nán­ustu.“
Tómas Grétar Gunn­ars­son
fugla­fræð­ingur

Í lögum um vel­ferð dýra eru ákvæði sem skylda menn til að standa þannig að veiðum að þær valdi dýr­unum sem minnstum sárs­auka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma. Þá er veiði­mönnum skylt að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa þau dýr sem þeir hafa valdið áverkum.

„Þessi aðferð við veiðar er bæði sið­laus og grimm gagn­vart dýr­unum,“ segir Linda Karen, for­maður DÍS, um magn­veið­arnar. „Stjórn­völd verða að skoða þessi mál.“

Hún segir fyrsta skrefið að efla eft­ir­lit, ekki síst það sem fram á að fara til að tryggja að grá­gæs sé ekki seld til veit­inga­húsa. Þá vill hún að sér­stak­lega verði tekið á veiðum af frið­uðum fuglum.

 „Ég hef veitt gæsir frá því að ég var barn svo ég er nú ekki alsak­laus í þessum bransa,“ segir fugla­fræð­ing­ur­inn Tómas. Hann hafi m.a. reynt sig við veiðar á kornökrum. „Í mínum huga er eina afsök­unin fyrir hvers konar sport­veiði­skap sú að þú ætlir að borða bráð­ina sjálfur með þínum nán­ustu. Þessi magn­veiði, hún er nán­ast bara skotæf­ing og subbu­leg iðja í þokka­bót.“ 

Sjálfum finnst honum magn­veið­arnar á sið­ferð­is­lega gráu svæði. Ýmsar spurn­ingar vakni. „Við erum með þessa villtu stofna, sem eru til­tölu­lega litlir. Er eðli­legt að fara svona með þá? Að keyra veið­ina gjör­sam­lega upp að þeim mörkum sem stofn­inn þolir? Þessir stofnar eru ekki til fyrir íslenska veiði­menn. Þeir eru partur af vist­kerf­inu og við deilum þeim með öðrum þjóðum.“

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Þetta er meiri villimennskan. "KARLMENNI" hér á ferð? Er þetta gaman strákar. Alvöru karlmenn skjóta eingungu á fugla og dýr með takkanum á myndavélinni sinni. Fífl.
    2
  • Anton Jóhannesson skrifaði
    Þetta er ljótt, virkilega ljótt.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár