„Ekkert toppar vinnubrögðin í þessu grafalvarlega máli“

Formaður Afstöðu seg­ist hafa „horft upp á marga vit­leys­una þegar kemur að föngum með marg­þættan vanda“ en ekk­ert toppi vinnu­brögðin þegar kemur að með­ferð á fanga sem nýlega var sjálf­ræð­is­sviptur án laga­heim­ildar og þving­aður til að taka geð­lyf. Yfir­læknir á sama sjúkra­húsi og neit­aði mann­inum um vistun var í hlut­verki dóm­kvadds mats­manns í mál­inu.

„Ekkert toppar vinnubrögðin í þessu grafalvarlega máli“
„Hvert erum við komin?“ Guð­mundur Ingi segir ljóst að pottur sé víða brot­inn þegar kemur að með­ferð þessa máls – á meðan heil­brigð­is­kerfið og dóms­kerfið deila um hver eigi að sjá um ein­stak­ling­inn sé fólk fár­sjúkt í fang­elsi

„Þessi ein­stak­lingur sem þegar var sviptur frelsi sínu þurfti að sætta sig við sjálf­ræð­is­svipt­ingu og það að taka lyf gegn vilja sínum,“ segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga og ann­arra áhuga­manna um fang­els­is­mál og betrun.

Hann segir þau hjá Afstöðu hafa haft mál­efni manns­ins til með­ferðar hjá sér „en hann hefur um nokk­urt skeið talið sig beittan miklum órétti. Að hans mati hafa sér­fræð­ingar brugð­ist honum með röngum grein­ingum og í kjöl­farið ólög­legum þving­unum,“ segir Guð­mundur Ingi.

Reiður og ringlaður

„Hann er eðli­lega mjög reiður og ringlaður en einnig sár enda má ekki betur sjá en að hann hafi haft rétt fyrir sér,“ segir hann.

„Að hans mati hafa sér­fræð­ingar brugð­ist honum með röngum grein­ingum og í kjöl­farið ólög­legum þving­unum“
Guð­mundur Ingi, for­maður Afstöðu

Maðurinn sem um ræðir hefur verið í gæslu­varð­haldi á Litla-Hrauni síðan í lok mars 2023. Hann hefur lagst gegn því að vera lagður inn á geð­deild og mót­mælt því að taka geð­rofslyf í töflu­formi. Hann var sviptur sjálf­ræði þann 2. jan­úar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur en Lands­réttur vís­aði mál­inu frá dómi og mað­ur­inn því aftur kom­inn með sjálf­ræði. Í milli­tíð­inni var hann þving­aður til að taka geð­rofslyf - lyf sem hann vill ekki taka. 

„Allt rangt við þetta“

Verjandi manns­ins, Ingi Freyr Ágústs­son, sagði við Heim­ild­ina á föstu­dag að grafal­var­legt væri „að dæla lyfjum í fólk án nokk­urrar heim­ildar. Og þetta eru sterk lyf. Það er það sem mér finnst alvar­leg­ast í þessu,“ segir Ingi Freyr og bætir við: „Það er allt rangt við þetta.“

Ingi Freyr kærði úrskurð­inn til Lands­réttar fyrir hönd skjól­stæð­ings síns. Þegar málið var fyrir hér­aði var aðal­krafa hans sú að mál­inu væri vísað frá því það ætti ekki heima hjá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og þar af leið­andi væri rangur aðili að krefj­ast sjálf­ræð­is­svipt­ing­ar­innar, vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar. Lands­réttur kemst að þeirri nið­ur­stöðu í úrskurði þann 23. jan­úar að rétt varn­ar­þing máls­ins sé Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands og réttur aðili sveit­ar­stjórn­ar­yf­ir­völd í Árborg.

Farsjúkt fólk í fangelsi

Guð­mundur Ingi segir ekki annað hægt en að vera hugsi yfir hvernig komið sé fyrir geð­heil­brigð­is­málum fanga og sömu­leiðis vinnu­brögðum hér­aðs­dóm­ara í mál­inu. 

„Það er ekki hægt að meta ein­stak­ling mjög veikan en um leið segja að hann eigi heima í fang­elsi en ekki á sjúkra­húsi“
Guð­mundur Ingi, for­maður Afstöðu

„Þá er það gríð­ar­lega gagn­rýni­vert að ef umræddur ein­stak­lingur er greindur jafn veikur og komið hefur fram að hann skuli enn vera vistaður í fang­elsi. Við vitum að geð­deild hefur ekki viljað taka við honum vegna þess að sam­kvæmt mats­manni er hann of erf­iður skjól­stæð­ingur. Við erum þessu að sjálf­sögðu ekki sam­mála eða því að umræddur mats­maður skuli vera yfir­læknir á sama sjúkra­húsi og neitar honum um vistun þar. Það er ekki hægt að meta ein­stak­ling mjög veikan en um leið segja að hann eigi heima í fang­elsi en ekki á sjúkra­húsi. Það er bein mót­sögn og hlýtur hrein­lega að vera brot á sjálf­sögðum mann­rétt­indum umrædds ein­stak­lings,“ segir Guð­mundur Ingi.

„Öllum er ljóst að víða er pottur brot­inn þegar kemur að með­ferð þessa máls og mörgum öðrum, og á meðan heil­brigð­is­kerfið og dóms­kerfið deila um hver eigi að sjá um ein­stak­ling­inn er fólk fár­sjúkt í fang­elsi. Hvar erum við eig­in­lega stödd?“ spyr hann og seg­ist vel geta tekið undir orð Inga Freys lög­manns „um að það er bara allt rangt við þetta og að þetta er mjög alvar­legt mál.“  

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár