Dæmd til að greiða tvær milljónir fyrir vangoldna leigu á húsgögnum

Hér­að­dómur Reykja­ness dæmdi nú fyrir skömmu konu til þess að greiða þrota­búi Magnúsar Ólafs Garð­ars­sonar, fyrrum for­stjóra United Silicon, von­goldna leigu á hús­næði og hús­gögnum. Nam upp­hæðin rúm­lega þremur millj­ónum króna ásamt drátta­vöxtum. Þá var fyrrum leigu­tak­anum gert að greiða 500.000 krónur í máls­kostnað

Dæmd til að greiða tvær milljónir fyrir vangoldna leigu á húsgögnum
Magnús Ólafur Garð­ars­son, fyrrum for­stjóri United Silicon, gerði for­vitni­lega leigu­samn­ing við konu árið 2020 sem í kjöl­farið leiddi til mála­ferla

Fyrrum leigj­andi Magnúsar Ólafs Garð­ars­sonar, sem gjarnan er kenndur við fyr­ir­tækið United Silicon, hefur verið dæmdur til þess að greiða þrota­búi Magnúsar rúmar þrjár millj­ónir ásamt drátt­ar­vöxtum fyrir van­efndir á húsa­leigu­samn­ingi.

Í dómnum, sem kveð­inn var upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í gær, segir að leigu­tak­anum hafi verið stefnt fyrir van­efndir í greiðslu húsa­leigu í fjóra mán­uði sam­fleytt og fyrir að hafa ekki greitt leigu á hús­gögnum í 13 mán­uði.

Mán­að­ar­leg leiga var sam­tals 550.000 krónur á mán­uði. Sú upp­hæð skipt­ist í tvennt, fyrir ann­ars vegar leigu á hús­næð­inu, sem nam 400.000 krónum og svo hins vegar leigu á hús­gögnum. Nam leigan fyrir hús­gögnin 150.000 krónur á mán­uði.

Í nið­ur­stöðu dóms­ins var kon­unni gert að greiða rúma 1,8 millj­ónir fyrir van­goldna leigu á hús­næð­inu og 1.950.000 krónur fyrir leigu á hús­gögn­unum. Dómurinn féllst þó á að draga 850.000 krónur sem konan greiddi í trygg­ingu frá heild­ar­upp­hæð­inni. 

Glæsihýsi í Kópavogi

Húsið sem um ræðir er ein­býl­is­hús við Huldu­braut 28 í Kópavogi sem var áður í eigu Magnúsar Ólafs Garð­ars­sonar. Húsið er um 360 fer­metrar að stærð.

Glæsi­hýsiSjá má hluta af þeim hús­gögnum sem talið er að hafi verið leigð fyrir 150.000 krónur á mán­uði.

Þá voru fyrri eig­endur húss­ins hjónin Ólafur Ólafsson, fyrrum for­stjóri Samskipa, og Ingi­björg Krist­jáns­dóttir arki­tekt. Ekki er þetta í fyrsta sinn sem Magnús Ólafur ratar í frétt­irnar fyrir fyr­ir­komu­lag við útleigu á hús­inu. Í frétt Við­skipta­blaðs­ins frá 2017 var greint frá því að Magnús hafi leigt húsið út á Airbnb á til­skil­inna leyfa.

Grunur um að engin húsgögn hafi verið leigð

Í kærunni hélt þrota­búið því fram að leigu­samn­ing­ur­inn hefði verið gerður í slæmri trú. Þau hafi samið um leigu upp á 550.000 krónur á mán­uði en ákveðið að skipta leig­unni niður í tvo mis­mun­andi leigu­samn­inga. 400.000 krónur fyrir húsið en 150.000 krónur fyrir hús­gögnin, sem hafi þó ekki verið leigð í raun.

Fyrri leigu­samn­ingnum, fyrir húsið, var þing­lýst en hinum seinni, fyrir hús­gögnin, ekki. Því hafi ekki upp­götvast hvernig í pott­inn var búið. Dóttir leigj­and­ans fram­leigði síðan neðri hæð húss­ins fyrir 150.000 krónur, sömu upp­hæð og leigan á meintu hús­gögn­unum, og sér leigu­samn­ingur gerður á milli mæðgn­anna. Þær fengu svo báðar húsa­leigu­bætur fyrir hvorn sinn leigu­samn­ing­inn.

Eftir að þrota­búið tók við leigu­samn­ingnum þá leyndi leigj­and­inn óþing­lýsta hús­gagna­leigu­samn­ingnum fyrir því og hætti að greiða fyrir hús­gögnin. Krafðist þrota­búið því 13 mán­aða leigu. Stefnda reyndi þó að bera fyrir sig að samn­ingnum hafi ekki verið þing­lýst. Dómurinn tók þessi rök ekki gild. 

Kaupsýslumaðurinn Magnús Ólafur Garðarsson

Magnús Ólafur Garð­ars­son er stofn­andi, fyrr­ver­andi for­svars­maður og áður stærsti hlut­hafi hins umdeilda United Silicon sem rak kís­il­ver í Helguvík. Hann hefur áður kom­ist í kast fyrir lögin. Hann hefur til dæmis verið ásak­aður um ítrekuð efna­hags­brot og mis­ferli í starfi.

Árið 2009 var Magnús sagður hafa brotið á rétt­indum pól­skra verka­manna í Danmörku. Var fyr­ir­tæki hans sektað fyrir brot þessi sem sögð voru jaðra við man­sal. Magnúsi var í kjöl­farið gert að segja upp. 

Árið 2017 kærði stjórn United Silicon Magnús, þá fyrr­ver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, fyrir refsi­verða hátt­semi. Var Magnús grun­aður um stór­felld auðg­un­ar­brot og skjala­fals allt frá árinu 2014. Í sept­em­ber í fyrra hafði hér­aðs­sak­sókn­ari ekki enn kom­ist að nið­ur­stöðu í mál­inu. 

Árið 2021 var Magnús úrskurð­aður gjald­þrota. Stærsti kröfu­haf­inn í þrota­búið er þrotabú Sam­ein­aðs síli­kons sem er rekstr­ar­fé­lag kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Kröfur fyr­ir­tæk­is­ins í þrotabú Magnúsar námu 1,8 millj­örðum í októ­ber 2021.

Hafði þrotabú Sam­ein­aðs síli­kons þá einnig höfðað tvö önnur mál gegn Magnúsi vegna meintra fjársvika, sam­tals upp á 4,5 millj­ónir evra. Tengdust málin bæði sam­skiptum Magnúsar við suður-afr­íksa félagið Tenova Minerals sem keypti bræðslu­ofn verk­smiðj­unnar.

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum greindi mbl.is frá því að Magnúsi hefði verið gefið að sök að hafa stofnað erlend gervi­töku­fé­lög, gefið út fals­aða og til­hæfu­lausa reikn­inga frá þeim til að dylja brot sín og látið bók­halds­gögn hverfa í sama til­gangi þegar hann stjórn­aði United Silicon.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kalla Karlsdóttir skrifaði
    Þetta eru hinir svokölluðu virðulegu athafnamennn á Íslandi, gæfulegt eða hitt þó, ætli þeim fari ekki sífellt fjölgandi.....
    2
  • TAE
    T.ark Arkitektar ehf skrifaði
    Þyrfti að laga málfræðina. Illa skrifuð. Sæmir ekki Heimildinni
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár