Nýrri skiptistöð við rætur Klapparstígs mótmælt

Íbúar í fjöl­býl­is­húsum neðst á Klapp­ar­stíg mót­mæla áformum borg­ar­innar um að setja niður skipti­stöð Strætó á bílaplan við Skúla­götu. Skipti­stöðin er önnur tveggja sem á að taka tíma­bundið við hlut­verki Hlemms sem enda­stöðvar, á meðan fram­kvæmdir við Hlemm­torg standa yfir.

Nýrri skiptistöð við rætur Klapparstígs mótmælt
Skúla­gata Íbúar í hús­unum sem liggja á mótum Skúla­götu og Klapp­ar­stígs hafa and­mæt áformum um nýja skipti­stöð Strætó á svæð­inu. Borg­ar­yf­ir­völd hyggj­ast þó halda sínu striki. Mynd: Golli

Vegna fram­kvæmda á Hlemm­torgi og fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á leiða­kerfi Strætó er stefnt að því að Hlemmur verði ekki lengur enda­stöð stræt­is­vagna. Þar verði í stað­inn ein­ungis ein­falt stræt­is­vagna­stopp, þar sem vagnar staldra ekki við á milli ferða. Vegna þess­ara breyt­inga þarf að koma upp stærri skipti­stöðvum á öðrum stöðum og ákveðið hefur verið af hálfu borg­ar­yf­ir­valda að ný enda­stöð verði sett upp á Skúla­götu, nánar til­tekið á svæði sem í dag er bíla­stæði með 62 stæðum, við rætur Klapp­ar­stígs. 

Ráð­stöf­unin á að vera tíma­bundin, en sam­kvæmt fyrstu hug­myndum að nýju leiða­neti Strætó, sem kynntar voru árið 2019, er fyr­ir­hugað að enda­stöð og meg­in­skipti­stöð Strætó (og þá Borg­ar­línu) verði við sam­göngu­mið­stöð á BSÍ-reit, í fram­tíð­inni. Til að byrja með munu þó skipti­stöðin við Skúla­götu og önnur, á bíla­stæði Háskóla Íslands við Hring­braut, í sam­ein­ingu taka við því enda­stöðv­ar­hlut­verki sem Hlemmur hefur í dag.

Deiliskipu­lags­breyt­ingar eru nauð­syn­legar til þess að …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár