Hefja neyðarsöfnun fyrir Grindvíkinga

Rauði kross­inn á Íslandi hefur hafið söfnun fyrir Grind­vík­inga. Hann seg­ist vita til þess að „fjöl­margir aðilar, bæði inn­lendir og erlendir, hafi mikla samúð með þeim ham­förum sem Grind­vík­ingar standa nú frammi fyrir og vilji leggja sitt af mörkum til að styðja bæj­ar­búa“.

Hefja neyðarsöfnun fyrir Grindvíkinga
Eldgos Hraun flæðir nú inn í Grinda­vík og tjón er þegar orðið gríð­ar­legt. Mynd: Golli

Rauði kross­inn á Íslandi hefur hafið neyð­ar­söfnun vegna eld­goss­ins við Grinda­vík. Afrakstur hennar verður nýttur til að styðja Grind­vík­inga fjár­hags­lega. 

Í til­kynn­ingu segir að neyð­ar­söfn­un­inni sé meðal ann­ars ætlað að styðja íbúa bæj­ar­ins. „Það hryggir okkur að eld­gosið valdi skemmdum á heim­ilum fólks og innviðum bæj­ar­ins. Hugur okkar er hjá Grind­vík­ingum og við munum standa með þeim í gegnum þetta erf­iða tíma­bil og vera til staðar eins lengi og þörf krefur.“

Rauði kross­inn segir að vit­neskja sé til staðar um að fjöl­margir aðilar, bæði inn­lendir og erlendir, hafi mikla samúð með þeim ham­förum sem Grind­vík­ingar standa nú frammi fyrir og vilji leggja sitt af mörkum til að styðja bæj­ar­búa og hjálpa þeim að kom­ast í gegnum þessar hremm­ingar. „Þessari söfnun er ætlað að koma til móts við öll þau sem vilja leggja sitt af mörkum og veita bæj­ar­búum stuðn­ing.“

Hægt er að taka þátt í söfn­un­inni með eft­ir­far­andi hætti:

Svona getur þú styrkt söfn­un­ina:
Fara á  vef Rauða kross­ins
Senda SMS-ið  HJALP í síma­núm­erið 1900 (2.900 kr.) (Síminn og Nova)
Hringja í 904-2500 til að styrkja um 2.500 kr.
Greiða í gegnum Aur eða Kass: @raudikross­inn
Leggja inn á söfn­un­ar­reikn­ing Rauða kross­ins: 0342-26-12, kt. 530269-2649

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Einar Gylfi Jónsson skrifaði
    1900 og 9042500 virka ekki. Endilega að laga það sem fyrst
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár