Hraun hefur náð í byggð í Grindavík og íbúar í Grindavík fylgjast nú með efstu húsunum í bænum fara undir glóandi hraunið. Tvö hús standa í ljósum logum á meðan hraunið rennur áfram niður bæinn.
Fyrr í morgun ræddi Heimildin við Sigurbjörgu Vignisdóttur sem býr í næstu götu fyrir neðan sem lýsti því hversu sárt væri að fylgjast með þessu gerast í beinni útsendingu. Í raun skipti ekki máli hvaða hús færi undir, heldur gilti eitt fyrir alla. „Um leið og eitt hús fer þá hafa hörmungarnar dunið á okkur öllum.“
Fjölskyldan var öll samankomin og lýsti Sigurbjörg áfallinu. „Nú er ég bara dofin, hjartað er á fullu og ég kaldsvitna. Ég er að átta mig á því að bærinn er að fara undir hraun.“


















































Milljörðum spreðað í að verja einkafyrirtæki.
En EKKERT gert til að verja eigur einstaklingana!
Því var ekki búið að staðsetja öflugar dælur við jaðar Grindavíkur ?
Stutt í ískaldann sjóinn og reyna að stýra hraunfæðinu frá bænum, eins og gert var í Vestmannaeyjum á sínum tíma.
Svo maður tali nú ekki um að rusla upp varnargörðum, eins og gert var fyrir einka fyrirtækin þeim að kostnaðarlausu.
Og þjóðin látin borga brúsann fyrir auðrónana!