Íbúi við Efrahóp leitar vonar í stuðningi landsmanna: „Við höfum risið upp úr ótrúlegustu hlutum“

Grind­vík­ingar syrgja sam­fé­lagið sitt, en leita vonar og hald­reipis í stuðn­ingi Íslend­inga. Sólný Ingi­björg Páls­dóttir, sem býr í Efrahópi, við göt­una þar sem hraun streymir nú, segir Grind­vík­inga hafa bognað en ekki brotnað.

Íbúi við Efrahóp leitar vonar í stuðningi landsmanna: „Við höfum risið upp úr ótrúlegustu hlutum“
Íbúar við Efrahóp Sólný Páls­dóttir er hér ásamt syni sínum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sólný Páls­dóttir, íbúi í hverf­inu Efrahópi í Grinda­vík, segir að nú sé tími fyrir sam­stöðu. Húsið hennar er í hinum enda göt­unnar þar sem hraun rennur nú.

Syrgja samfélagið

Þegar Heim­ildin hafði sam­band við Sólnýju sagð­ist hún væri erfitt að vera Grind­vík­ingur. Íslend­ingar verði nú að taka höndum saman og styðja við Grind­vík­inga, sér­stak­lega þá sem enn eiga eftir finna sér var­an­legt hús­næði.  „Heimilið er grunn­þörf og að vera kippt út úr þessu er mikil áskorun,“ segir Sólný. 

Fyrr í morgun lýsti hún stöð­unni í beinni útsend­ingu á RÚV. „Þetta er nátt­úru­lega öll gatan og allt sam­fé­lagið er eins og ein fjöl­skylda. Ég held að við séum öll í ein­hverju doða­á­standi. Að syrgja bara mest sam­fé­lagið okkar. Við erum nátt­úru­lega búin að halda í von­ina allan þennan tíma að við færum alltaf heim. Ég er ekki að segja að sú von sé úti, en vissu­lega slær þetta mann niður. Þetta lítur ekki vel út,“ sagði hún. 

Heldur í vonina

Í við­tali á RÚV sagði Sólný að þrátt fyrir erfitt ástand ætli hún að reyna finna von­ina, ekki síst með hjálp ann­arra lands­manna.

„Við höfum risið upp úr ótrú­leg­ustu hlutum. Ég er sorg­mædd og dofin, en ég ætla að finna von­ina aftur. En maður verður líka að vera raun­sær. Þetta er ekki góð staða. Mjög slæm staða. En eins og ég segi, við Grind­vík­ingar erum sterk. Við látum þetta ekk­ert buga okkur. Við tökum því sem að höndum ber og höldum áfram.“

Þau eru tólf saman í dag að fylgj­ast með atburða­rásinni. „Við sitjum hérna, erum svo­lítið mörg hérna. Strák­ur­inn minn var að halda upp á fjórtán ára afmælið sitt í gær og með sjö vini í gist­ingu. Þannig að við erum hérna tólf manns og tveir hundar að fylgj­ast með. Ég reyndar tók rúnt inn í morgun inn í Keflavík. Það róar mig alltaf að sjá þetta með eigin augum,“ segir Sólný sam­tali við Sunnu Val­gerð­ar­dótttur og Guðmund Pálsson í sam­einaðri útsend­ingu RÚV.

Vonuðust til að bærinn myndi sleppa

„Rétt áður en þessi sprunga opn­að­ist fyrir aftan hjá okkur í Efra­hóp­inu var ég viss um að þetta myndi logn­ast út af og stoppa. Þannig að þetta er líka búið að vera svo­lít­ill rús­sí­bani. Það vildi þannig til að ég var líka vak­andi í nótt þegar skjálfta­virknin fór af stað, af því að ég var með alla ung­ling­ana í gist­ingu og það gekk mis­vel að sofna. Þannig að ég er ósofin líka. Þetta er búinn að vera mik­ill rús­sí­bani ferlið í nótt, skjálft­arnir sjálfir og óvissan um hvort þetta kæmi upp í bænum. Það er alltaf svo­lítið sér­stök til­finn­ing, nú er þetta fimmta skiptið sem gýs. Það er svo­lítið sér­stakt, þessi léttir sem kemur yfir mann. Það er erfitt fyrir marga að skilja það. Einhvern veg­inn að vita hvar þetta kemur upp. Þetta er búið að vera mjög erf­iðir klukku­tímar ef ég er alveg hrein­skilin og heið­ar­leg. Þetta er bara svo­lítið óraun­veru­legt.“

Hús Sólnýjar er alveg við jaðar byggð­ar­innar. „Við eigum þetta fal­lega hús þarna í end­anum. Eins og í gamla daga voru húsin skýrð í Grinda­vík og víðar. Þannig að húsið okkar heitir Mána­hraun og hefur borið það nafn með mik­illi sæmd og ég ætla að trúa því og treysta að þetta fari eins og best verður á kosið út frá þess­ari slæmu stöðu. Ég ætla ekki að missa von­ina. Ég held að ég tali fyrir munn allra Grind­vík­inga, að við gef­umst aldrei upp. En við erum slegin niður og við höfum bognað. En við höfum ekki brotnað. Og núna stöndum við saman.“

Nú verður að styðja við Grindvíkinga

Svo erum við, ég tala fyrir mig og örugg­lega fleiri, við erum þakk­lát fyrir enda­laust hlýjar kveðjur, ljós og kær­leika. Það eru allir að hugsa til okkar. Mig langar bara að segja takk við þjóð­ina fyrir það. Bæði hvernig það er búið að standa með okkur að flestu leyti – þó ýmis­legt hefði mátt betur fara og nú verða stjórn­völd að girða sig í brók og aðstoða fólk með hús­næð­is­mál – en að öðru leyti allur kær­leik­ur­inn og ljósið og allt sem við höfum fengið. Kveðj­urnar núna. Þetta er ómet­an­legt að fá þetta. Því maður þarf alltaf að fá lán­aða von í svona aðstæðum. Við þiggjum allt ljós frá ykkur.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár