Hraunstreymi úr sprungunni við Grindavík hefur stöðvast

Hraun­straumur kom í byggð í fyrsta sinn frá Vest­manna­eyja­gos­inu 1973 í gær.

Hraunstreymi úr sprungunni við Grindavík hefur stöðvast
Hraun streymir í Efrahóp Sprungan sem opn­að­ist um 50 metrum frá nyrstu byggð í Grinda­vík hefur núna skilað hraun­streymi inn í byggð­ina. Mynd: Golli

Hraun streymir nú inn í hús­garð sam­síða ein­býl­is­hús­inu að Efrahópi 19, nyrst í Grinda­vík. Þetta er í fyrsta sinn frá Vest­manna­eyja­gos­inu árið 1973 sem hraun rennur inn í byggð á Íslandi. Eldur braust út í hús­inu um leið og hraunið náði að því. Nú hefur einnig kviknað í hús­inu að Efrahópi 16.

Heim­ildin hefur rætt við íbúa á svæð­inu sem fylgj­ast með milli vonar og ótta. 

Fyrr í morgun ræddi Heim­ildin við Sig­ur­björgu Vign­is­dóttur sem býr í næstu götu fyrir neðan sem lýsti því hversu sárt væri að fylgj­ast með þessu ger­ast í beinni útsend­ingu. Í raun skipti ekki máli hvaða hús færi undir, heldur gilti eitt fyrir alla. „Um leið og eitt hús fer þá hafa hörm­ung­arn­ar dun­ið á okk­ur öll­um.“ Fjöl­skyldan var öll sam­an­komin og lýsti Sig­ur­björg áfall­inu. „Nú er ég bara dofin, hjartað er á fullu og ég kalds­vitna. Ég er að átta mig á því að bær­inn er að fara undir hraun.“

Versta sviðs­myndin er að raun­ger­ast. Landið er flatt, straum­ur­inn hægur. Hraunið getur runnið 100 metra á klukku­stund. Óttast er að fleiri gosop getið opn­ast eftir sprung­unni sem liggur eftir endi­löngum bænum til suð­suð­aust­urs.

Kort af svæð­inuHraun­taum­ur­inn heldur hægt áfram til suð­urs.
Hraunið ryðst á húsEldur hefur brot­ist út í ein­býl­is­húsi á Efrahópi 19.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Talandi um gjörsamlega VANHÆFA ríkisÓSTJÓRN!
    Milljörðum spreðað í að verja einkafyrirtæki.
    En EKKERT gert til að verja eigur einstaklingana!
    Því var ekki búið að staðsetja öflugar dælur við jaðar Grindavíkur ?
    Stutt í ískaldann sjóinn og reyna að stýra hraunfæðinu frá bænum, eins og gert var í Vestmannaeyjum á sínum tíma.
    Svo maður tali nú ekki um að rusla upp varnargörðum, eins og gert var fyrir einka fyrirtækin þeim að kostnaðarlausu.
    Og þjóðin látin borga brúsann fyrir auðrónana!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið undanfarið ár