Hætta leit að manninum í sprungunni

Ákveðið hefur verið að hætta leit að manni sem lög­reglan telur full­víst að hafi fallið í jarð­sprungu I Grinda­vík­urbæ. Maðurinn hvarf spor­laust, að því er virð­ist ofan í jörð­ina.

Hætta leit að manninum í sprungunni
Svæðið Hér má sjá teikn­ingu af því hvar sprungan liggur, þar sem mað­ur­inn hvarf.

Leit hefur verið hætt að manni sem lög­reglan telur að hafi fallið ofan í jarð­sprungu sem opn­ast hafi undir fótum hans í Grinda­vík­urbæ. Úlfar Lúð­víks­son lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum til­kynnti það í fréttum RÚV í kvöld. Þar sagði hann ekki for­svar­an­legt að senda leit­ar­fólk ofan í sprung­una. 

Leit að mann­inum hefur staðið yfir und­an­farna daga eftir að hann hvarf við störf í bænum að morgni mið­viku­dags. Vinnu­fé­lagi hans, sem hafði brugðið sér frá, til­kynnti um hvarfið. Sprungan liggur þvert í gegnum bæinn og er til­komin vegna þeirra miklu jarð­hrær­inga sem verið und­an­farið á svæð­inu. 

„Það verður ekki hægt að sinna björg­un­ar­störfum þannig að leit hefur því miður verið hætt,“ sagði Úlfar í kvöld­fréttum sjón­varps­ins. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráð­herra hvort til stæði að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins í Grinda­vík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
Leituðu svara en fengu símsvara
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár