Leituðu svara en fengu símsvara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.

Leituðu svara en fengu símsvara
Stóri bróð­ir­inn Elías Pét­urs­son segir það grát­legt að fjöl­skyldan þurfi að stíga fram opin­ber­lega til þess eins að fá áheyrn og svör við fjöl­mörgum spurn­ingum sem vaknað hafa eftir Lúðvík bróðir hans, hvarf ofan í sprungu í Grinda­vík fyrir fimm vikum. Mynd: Golli

„Vits­muna­lega gerir maður sér grein fyrir því að hann sé dáinn en til­finn­inga­lega er það meira basl,“ segir Elías Pét­urs­son, sem alltaf er kall­aður Elli, spurður hvernig sé að takast á við ást­vina­missi, á þann hátt sem fjöl­skylda hans hefur þurft að gera síð­ast­liðnar vikur. Alveg síðan leit var hætt að Lúlla bróður hans, sem féll ofan í djúpa sprungu í Grinda­vík fyrir réttum fimm vikum.

Fyrir viku var hald­inn minn­ing­ar­at­höfn um Lúðvík Pét­urs­son, sem alltaf var kall­aður Lúlli af vinum og fjöl­skyldu. Í fullri Lang­holts­kirkju var Lúlla, tæp­lega fimm­tugs föður fjög­urra barna, afa, unnusta og bróður minnst. Ólíkt flestum slíkum athöfnum var engin kista við alt­arið í kirkj­unni.

Lúlli er dáinn, um það velk­ist eng­inn lengur í vafa. En hann hefur ekki fund­ist. Það er eitt að missa ást­vin en annað að geta ekki kvatt hann, séð hann og fylgt honum til grafar. Í því fellst lúkn­ing, …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráð­herra hvort til stæði að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins í Grinda­vík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
Sprungufyllingar búa til ný og hættulegri vandamál
Fréttir

Sprungu­fyll­ingar búa til ný og hættu­legri vanda­mál

Þrír af reynd­ustu jarð­vís­inda­mönnum lands­ins telja það hafa verið mis­ráðið að reyna að fylla upp í sprungur í Grinda­vík í kjöl­far ham­far­anna í nóv­em­ber. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið,“ segir Páll Ein­ars­son. Ármann Hösk­ulds­son telur hægt að fylla í sprungur en þeir sem taki slíkar ákvarð­anir verði að hafa í huga að ekki dugi að „sturta í gatið og vita ekk­ert hvað maður er að gera“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár