Af hverju dó risaapinn út? Við virðumst vera saklaus!

Fjölskylda risaapa meðan allt lék í lyndi.
Fjöl­skylda risa­apa meðan allt lék í lyndi. Myndin er skráð á Garcia / Joannes-Boyau við Southern Cross Uni­versity í Ástralíu.

Mann­kynið er að öllum lík­indum komið af svo­nefndum suð­ur­apa sem þró­að­ist í aust­ur­hluta Afríku fyrir 3-4 millj­ónum ára. Þekkt­asti full­trúi suð­ur­apa er stein­gerv­ing­ur­inn Lucy sem talin er dæmi­gerð fyrir hina smáu og past­ur­slitlu suð­ur­apa en þeir voru aðeins um 1,2 metrar á hæð eða álíka og smá­vaxnir simpansar og/eða með­al­stórir bónóbóar.

Þrátt fyrir smæð­ina plum­uðu suð­ur­apar sig vel og reynd­ust búa yfir sér­legri aðlög­un­ar­hæfni.

Afkom­endur þeirra eru hinar fyrstu mann­teg­undir, homo erectus og fleiri og að síð­ustu homo sapi­ens.

Merki­legt er hins vegar að svipað leyti og Lucy litla var komin á fætur í Austur-Afríku, þá var komin til sög­unnar 4.000 kíló­metrum austar önnur mannapa­teg­und sem alveg eins hefði líka getað þró­ast áfram til viti bor­innar veru en var þrisvar sinnum stærri.

Risa­ap­inn í Suð­austur-Asíu eða gigantopithecus blacki eins og fræði­menn kalla hann. 

Líkan af gigantopithecus blacki sett saman.Seinni partur …
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár