Íslendingar orðnir að kjúklingaþjóð

Fram­leitt magn af ali­fugla­kjöti fór umfram magn af fram­leiddu kinda­kjöti í fyrra. Er þetta annað árið í röð sem fram­leiðsla á kjöti af ali­fuglum er umfram fram­leiðslu á kinda­kjöti frá að mæl­ingar hófust. Fram­leiðsla í kinda­kjöti árið 2023 var í sögu­legu lág­marki.

Framleiðsla á alifuglakjöt
Fram­leiðsla á ali­fugla­kjöt fór fram úr fram­leiðslu á kinda­kjöti í fyrra, í annað sinn síðan mæl­ingar hófust. Mynd: EPA

Ísland fram­leiðir nú reglu­lega meira magn af alí­fugla­kjöti, aðal­lega kjúklingum, en lamba­kjöti. Fram­leiðsla ali­fugla­kjöts fór í fyrsta sinn fram úr fram­leiðslu á lamba­kjöti á árinu 2022. Í fyrra hélt þessi þróun áfram. 

Samkvæmt gögnum á vef Hag­stof­unnar var sam­an­lögð fram­leiðsla á ali­fugla­kjöti 9.501 tonn árið 2022 og var það um 842 tonnum meira en árs­fram­leiðsla á kinda­kjöti. Fram­leitt magn af kinda­kjöti var 8.659 tonn á sama ári.

Mælingar Hag­stof­unnar á kjöt­fram­leiðslu síð­asta árs ná út nóv­em­ber­mánuð. Frá jan­úar til nóv­em­ber 2023 var sam­an­lögð fram­leiðsla á ali­fugla­kjöti rúm­lega 8.955 tonn, á meðan magn af kjöti af slátr­uðu sauðfé var 8.402 tonn. 

Í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni segir að kjöt­fram­leiðsla í nóv­em­ber 2023 hafi verið tíu pró­sent minni en í nóv­em­ber 2022. Fram­leiðsla á kjöti af naut­gripum, ali­fuglum og svínum dróst saman um nokkur pró­sent milli mæl­inga. Mesti sam­drátt­ur­inn er þó í sauð­fjár­slátrun. Í nóv­em­ber í fyrra var aðeins slátrað 135 gripum sam­an­borið við 6.281 í nóv­em­ber 2022. 

Fram­leiðsla á kinda­kjöti hefur dreg­ist mikið saman frá 2017 en þá stóð fram­leiðslan í 10.619 tonnum. Þrátt fyrir sam­drátt í fram­leiðslu hafa tekjur af sauð­fjár­rækt auk­ist milli ára. Samkvæmt skýrslu Ráð­gjaf­ar­mið­stöðvar land­bún­að­ar­ins, sem birt var í nóv­em­ber í fyrra, voru tekjur af sauð­fjár­rækt árið 2023 alls um 18,5 millj­arðar króna. Árið 2018 voru tekjur grein­ar­innar um 12,2 millj­arðar króna.

Kjúklingur er vin­sælasta kjötið meðal íslenskra neyt­enda í fyrra, en lamba­kjöt situr í öðru sæti. Þá hefur sala á svína­kjöti auk­ist mikið und­an­farin ár. Árið 2021 var sala á svína­kjöti í fyrsta meiri en sala á kinda­kjöti.

Milljarðar í styrki til sauðfjárræktar 

Þá voru opin­berar greiðslur til sauð­fjár­bænda rúm­lega 30 pró­sent af tekjum búgrein­ar­innar. Hins vegar ef frá eru tal­inn liður sem nefndur er aðrar tekjur, sem reikn­aðar eru inn í heild­ar­tekjur sauð­fjár­bænda, eru opin­berar greiðslur yfir helm­ingur tekna sauð­fjár­bænda. Á síð­ast­liðnum fimm árum hefur 31 millj­arður króna verið greiddur til sauð­fjár­bænda.  

Í frétt Heim­ild­ar­innar sem birt var skömmu fyrir ára­mót er fjallað um sér­staka rík­is­styrki til sauð­fjár­bænda, sem eiga að stuðla að auknum gæðum og sjálf­bærni í sauð­fjár­fram­leiðslu. Til þess að fá slíkan stuðn­ing þurfa sauð­fjár­bændur að upp­fylla ákveð­inn skil­yrði sem lúta að aðbún­aði sauð­fjár, fóðrun, heilsu skepn­anna, sjálf­bærni í land­nýt­ingu og fleira þvíum­líkt. 

Árið 2022 voru þessar svoköll­uðu gæða­stýr­ing­ar­greiðslur rúm­lega þriðj­ungur  af heild­ar­upp­hæð rík­is­stuðn­ings til sauð­fjár­bænda. Á síð­ast­liðnum þrem árum námu greiðslur af þessu tagi um 5,5 millj­örðum króna. Hins vegar var engu eft­ir­liti sinnt með sauð­fjár­bændum sem þáðu gæða­stýr­ing­ar­greiðslur árið 2022. 

Þá hafa þing­menn, fræði­menn, starfs­menn opin­bera stofn­anna eins og Land­græðslan gagn­rýnt gæða­stýr­ing­ar­kerfið. Þá sér­stak­lega þann þátt sem snýr að land­nýt­ing­unni. Til mynda sagði Land­græðslan í umsögn til Alþingis að tæki­færi til þess að draga úr nýt­ingu á illa förnu landi hafi ekki verið nýtt af mörgum sem tekið hafa við gæða­stýr­ing­ar­greiðsl­unum und­an­farin ár.

 Viðbótarstuðningsgreiðslur samþykktar í lok síðasta árs

Fyrir árs­lok 2023 voru til­lögur um við­bót­ar­greiðslur til bænda sam­þykktar í rík­is­stjórn og á þingi í fjár­auka­lögum 2023. Sam­an­lagt hljóðar við­bættur stuðn­ingur upp á 2,1 millj­arð króna. 

Þar af renna 600 milljón krónur í svo­kall­aðan ung­bænda­stuðn­ing, sem skipt er á milli 181 bænda sem sóttu um nýlið­un­ar­stuðn­ing á árunum 2017 til 2023. Þá fara 450 millj­ónir í við­bóta­fjár­fest­ing­ar­stuðn­ing til bænda í sauð­fjár­rækt og naut­gripa­rækt. Meiri­hlut­inn af þessum stuðn­ing rennur renna þó til 239 bænda sem stunda naut­gripa­rækt, sam­tals 386 millj­ónir.

Þá fá sauð­fjár­bændur sem eiga 300 eða fleiri vet­ur­fóðr­aðar kindur greitt sér­stakt fram­lag sem sam­tals nemur 450 millj­ónum króna. Snemma á þessu ári fá kúa­bændur sem stunda mjólk­ur­fram­leiðslu um 500 milljón krónur í við­bót­ar­greiðslur og kúa­bændur með holda­kýr fá 100 milljón krónur.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Chicken farming for human consumption in Iceland is not economically viable and is against the consumer’s interests. It is kept going by means of punitive import duties. Chicken feed is imported with protective tariffs. Transport of feed over long distances causes pollution; transport of the final products to consumers causes pollution. Poultry and pig farmers were recently given extra subsidies to cover feed and fodder costs. The labour in these industries is foreign. It is not the farmers who base their living on this: no, it is the well-dressed speculators and Blue Hand party proteges. ALI and LÍFLAND are involved in this, with others not mentioned here. Eggs, pork and poultry production are not farming activities; they are FACTORY PRODUCTION, and the labour is supplied by foreign workers. Icelandic sheep farmers, dairy farmers and cattle producers base their livelihoods on actual farming, which involves a lot of work all year round. I lived in Britain for 20 years. The beef there is good; cattle are out of doors all year round. I could believe that they are indoors all year round in Iceland. Recently I bought a hamburger at Nautabú in the north of the country. The restaurant is connected with a petrol station; disgusting. The meat tasted of dung. How could it be otherwise when the animals are in byres all year round? The Angus beef that you get in Glasgow has a real hamburger flavour. Real farmers around Iceland should be supported, not the white-collar gang who drive around Reykjavík in their Mercedes Benzes. They should not benefit from PROTECTIVE DUTIES or any other ALMS FROM CONSUMERS’ POCKETS.



    Four eggs in Denmark cost the same as one in Iceland.
    0
  • KB
    Kristinn Björnsson skrifaði
    Íslendingar orðnir að kjúklingaþjóð, er fyrirsögnin, en endar sem ómálefnaleg gagnrýni á sauðfjárbændur er ekki hægt að gera betur en þetta.
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Framleiðsla a Kjuklingum til Manneldis stendur ekki undir ser og er Neytendum Fjandsamleg. Nyðingstollar hallda þessari Ohagkvæmu Grein gangandi, Foður er flutt inn Með Vendar Tollum, Flutningur vitt og breitt um Landið MENGAR, flutningur til Neytenda Mengar, nylega fengu Fugla og Svinabændur auka Foðurstirk. Vinnu afl er Erlend. Þetta er Ekki Bændur sem byggja sitt Lifibrauð a þessu. Nei Spariklæddir Braskarar og Floksgæðingar Blau Handarinar eru þarna a ferð. ALI--- OG LIFLAND---- stada að þessu og Fleiri þott Þeir seu ekki nefndir her. Egga framleiðsla, Svinarækt og Kjuklingarækt er ekki BÆNDUR heldur VERKSMIÐJU FRAMLEIÐSLA, og Erlent Vinnuafl. Islenskir Bændur með Kindur og Mjolkur Kyr og Nautgripabændur Byggja sitt Lifibrauð a Buskap og Mikilli Vinnu Altt Arið. Það eru Mattarstolpar Islensks Landbunaðar. Svina Kjöt og Kjuklinga Kjöt og EGG a að flitja inn. Eg Bjo i Bretlandi i 20 ar þar er Nautakjöt Gott og Nautgripir uti altt arið. A Islandi eru þeir trulega a Bas altt arið, Nylega keypti eg Hamborgara fra Nautabui a Norðurlandi, Veitingastaðurinn Tengist Bensinstöðvum. Þvilikur Oþveri Fjosaskits Bragð var af Kjötinu, kvernig a öðru visi að vera Dyrin a Bas altt arið. Angus Nautakjöt i Glasgow hefur Ekta Hamborgara bragð. Nei Hlua Ber að Islenskum Bændum i Sveitum Landsins. Kvitflippa Kallar Braskarar i Reykjavik sem Aka um a BENS eiga ekki að fa TOLLVERND ne AÐRA ÖLMUSU UR VÖSUM NEYTANDA.

    BTW Egg ma fa i Danmörku 4 stikki , en 1 Stikki A Islandi fyrir sama verð.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár