Kerfi sem kostar almenning milljarða sagt „grænþvottur“
Skortir trú­verð­ug­leika Land­græðslan, sem hefur eft­ir­lit með land­nýt­ingu vegna gæða­stýr­ingar í sauð­fjár­rækt, hefur sagt að óeðli­legar til­slak­anir hafi verið gerðar á kerf­inu og með því dregið úr trú­verð­ug­leika þess. Mynd: Shutterstock

Kerfi sem kostar almenning milljarða sagt „grænþvottur“

Millj­arðar króna úr rík­is­sjóði hafa verið greiddir til sauð­fjár­bænda á grunni þess að þeir nýti land með sjálf­bærum hætti. Pró­fessor við Land­bún­að­ar­há­skól­ann segir svo alls ekki vera í öllum til­vikum. Land­græðslan, sem farið hefur með eft­ir­lit með land­nýt­ing­unni, segja að kerfið skorti trú­verð­ug­leika. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, segir kerfið bilað.

Á síð­ustu þremur árum hafa sauð­fjár­bændum verið greiddar rúmir 5,5 millj­arðar króna í greiðslur sem byggja meðal ann­ars á því að land sé nýtt með ábyrgum og sjálf­bærum hætti. Veru­legar efa­semdir eru um að svo sé hins vegar í öllum til­vikum, og ákveðið sleif­ar­lag hefur verið á eft­ir­liti með kerf­inu. Fjögur ár eru síðan þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um end­ur­skoðun á ráð­stöfun almanna­fjár í þessu skyni var vísað til rík­is­stjórnar Íslands en engar úrbætur hafa verið gerðar. Þá hefur reglu­gerð sem greiðsl­urnar byggja á ekki verið upp­færð þrátt fyrir að breyt­ingar hafi verið gerðar, meðal ann­ars með til­færslu á verk­efnum innan stjórn­sýsl­unnar. 

Opinberar greiðslur yfir helmingur tekna sauðfjárbænda

31
millj­arður króna hefur verið greiddur til sauð­fjár­bænda síð­ustu fimm ár

Afkoma sauð­fjár­bænda bygg­ist að veru­legu leyti á greiðslum frá hinu opin­bera. Á síð­ustu fimm árum hafa greiðslur hins opin­bera til sauð­fjár­bænda, í gegnum búvöru­samn­inga, numið um 31 millj­arði króna. Þá hafa opin­berar greiðslur inn …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Áskell Örn Kárason skrifaði
    Þetta er bara hverju orði sannarra, því miður. Enginn fæst til að verja þetta kerfi nema fulltrúar þeirra sem fá greiðslurnar. Afréttarlönd heilla héraða eru illa farin vegna langvarandi ofnýtingar og þó er haldið áfram að nýta þau og bændur fá greiðslur eins og ekkert sé sjálfsagðara.
    0
  • Valur Benediktsson skrifaði
    Þetta er nú meira kjaftæðið, þarna mætti kannski fá miklu fleiri sjónarhorn og komast til botns í sannleikanum sem er þarna svo órafjarri sannleikanum. Stundum er gott að skoða allar hliðar málsins ekki bara aðra hliðina frá þröngu sjónarhorni. Stærstu hagsmunaraðilar landgræðslu á landinu er jú bændur og þeir hafa alltaf verið helstu gæslumenn landsins. Það eru ekki labbararafélagar úr Garðabænum eða 101 Reykjavík sem eru stærstir í landgræðslu á landinu það eru nefnilega bændur.
    -2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Því miður er þetta landbúnaðarkerfi okkar gegnsýrt af spillingu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár