Mynd: Mast

Kjötframleiðendur fá áralangan frest á meðan dýrin þjást

Alls var 6 millj­ónum ali­fugla og 74 þús­und svínum slátrað á Íslandi í fyrra. Dæmi eru um að gyltur geti hvorki lagst né rétt úr sér á básum. Á einu búi voru 90 gyltur með byrj­andi legu­sár. Nær allir grísir eru hala­klipptir án deyf­ingar. Kjúklingar eru snúnir úr háls­lið án þess að vera rot­aðir fyrst, sem er ólög­legt. Formaður Dýra­vernd­ar­sam­taka Íslands segir lög um vel­ferð dýra brotin og kallar eftir breyt­ingum á eft­ir­liti: „Dýr eiga ekki að þjást.“

Kjúklingur er mest selda kjötið á íslenskum mark­aði, en svína­kjöt situr í þriðja sæti á vin­sælda­lista neyt­enda og fyrir tveimur árum var sala á svína­kjöti í fyrsta skipti meiri en sala á kinda­kjöti. 
Á einu svína­búi hér á landi eru 90 gyltur með byrj­andi legu­sár, bás­arnir þar eru svo þröngir að gylt­urnar geta lítið sem ekk­ert hreyft sig. Í reglu­gerð um vel­ferð svína segir: „Mat­væla­stofnun er óheim­ilt eftir 1. jan­úar 2016 að veita und­an­þágu til notk­unar á básum sem var­an­legum vist­ar­verum gyltna nema bás­arnir séu þannig úr garði gerðir að gyltan geti lagst, legið og rétt úr sér liggj­andi án átroðn­ings frá gyltum í næstu básum.“ 
Mat­væla­stofnun getur þó, sam­kvæmt bráða­brigða­á­kvæði í reglu­gerð­inni, veitt fram­leið­anda frest til aðlög­unar ef aðstæður eru þannig að kostn­að­ar­samt sé að upp­fylla kröfur en þó ekki lengri frest en til 1. jan­úar 2025. 

Heim­ildin óskaði eftir skoð­un­ar­skýrslum Mat­væla­stofn­unar vegna eft­ir­lits­ferða starfs­fólks stofn­un­ar­innar í fyrra …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár