Spurningaþraut Illuga 12. janúar 2024

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 12. janú­ar.

Spurningaþraut Illuga 12. janúar 2024
Fyrri mynd: Hver er konan sem hér sést ung að árum?

Almennar spurn­ingar: 

  1. Moctezuma eða Montezuma var kon­ungur yfir þjóð nokk­urri í byrjun 16. aldar. Hver var þjóðin?
  2. Hver er vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins?
  3. Í hvaða landi er höf­uð­borgin Vín?
  4. Miklatún í Reykja­vík hefur einnig nafnið ... hvað?
  5. Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér plöt­urnar The Joshua Tree og Achtung Baby?
  6. Í Njálu er frá því greint að kona sagði við aðra konu: „Illa fer þér og mun þín skömm lengi uppi.“ Við hvaða konu var þetta sagt?
  7. En hvað hét konan sem sagði þetta? Hér þarf nafn hennar.
  8. Evr­ópu­meist­ara­mót karla í hand­bolta er nýhafið. Hvaða þjóð hampar nú titli Evr­ópu­meist­ara?
  9. Bianca Censori er ástr­alskur arki­tekt. Það verður að segj­ast að um þessar mundir er hún þekkt­ust fyrir kærasta sinn eða eig­in­mann. Og sá er ... hver?
  10. Hvað heitir það hinna fornu Eddu­kvæða sem segir fyrir um enda­lok heims­ins?
  11. En hvað heitir kvæðið sem er í reynd safn vit­ur­legra spak­mæla?
  12. Hversu mörg börn á Kate Midd­leton?
  13. Hvaða fjall er gjarnan nefnt „drottn­ing íslenskra fjalla“?
  14. Nú líður að Ósk­arsverð­launa­tíð í kvik­mynda­heim­inum. Hvaða mynd fékk Ósk­arsverð­laun í fyrra sem besta myndin?
  15. Banda­ríska glæpa­ser­ían True Detective 4 var tekin að mestu hér á landi en á að ger­ast ... hvar?

Seinni mynd: 

Hvers konar fiskur er það sem hefur þróað með sér þetta óvenju­lega höf­uð­lag með augu hvort á sínum „ham­ar­senda“?


Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er Margrét Dana­drottn­ing. Fisk­ur­inn á seinni mynd­inni er hákarl eða háfur.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Astekar.  —  2.  Þórdís Kolbrún.  —  3.  Aust­ur­ríki.  —  4.  Klambratún.  —  5.  U2.  —  6.  Hall­gerður lang­brók.  —  7. Rannveig (móðir Gunnars á Hlíð­ar­enda.) 8.  Svíar.  —  9.  Kanye West.  —  10.  Völuspá.  —  11.  Hávamál.  —  12. Þrjú.  —  13.  Herðu­breið.  —  14.  Everyt­hing Everywhere All at Once.  —  15.  Í Alaska.
Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár