Tók fimm daga að meta Svanhildi hæfa sem sendiherra

Í grein­ar­gerð og umsögn hæf­is­nefnd­ar­innar sem Bjarni Bene­dikts­son skip­aði til að meta Svan­hildi Hólm Vals­dóttur hæfa til að gegna emb­ætti sendi­herra Íslands í Washington kemur fram að ferlið hafi tekið fimm daga. Mest vinnan fór fram á einum degi, þann 15. des­em­ber.

Tók fimm daga að meta Svanhildi hæfa sem sendiherra
Kollegar Svan­hildur Hólm var aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar um ára­bil. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Heim­ildin hefur fengið senda grein­ar­gerð og umsögn hæf­is­nefnd­ar­innar sem mat hæfi Svan­hildar Hólm Vals­dóttur til emb­ættis sendi­herra Íslands í Washington. Kemur þar fram hvernig hæfn­is­matið fór fram og hvað mælti með því að Svan­hildur yrði sendi­herra.

Skipun Svan­hildar sem sendi­herra átti sér ekki langan form­legan aðdrag­anda. Þann 13. des­em­ber skip­aði Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra þriggja manna ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd til að vera sér til ráð­gjafar um að meta hæfni og almennt hæfi hennar áður en Svan­hildur yrði skipuð.

Formaður nefnd­ar­innar var Einar Gunn­ars­son, fasta­full­trúi í Genf, sendi­herra og fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Aðrir nefnd­ar­menn voru Anna Jóhanns­dóttir, skrif­stofu­stjóri laga- og stjórn­sýslu­skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins og Hreinn Pálsson mannauðs­stjóri þess. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu var eng­inn annar til­nefndur til þess að taka við emb­ætt­inu en Svan­hildur og því mat nefndin ein­ungis hæfi og hæfni hennar.

…

Kjósa
-5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    This appointment of Iceland’s ambassador to the USA is a scandal. Bjarni Benediktsson made a hasty and undignified exit from the ministry of finance after the ruling by the Parliamentary Ombudsman regarding his sale of the state’s shares in a bank to his friends and relations. He should have resigned from government, but no, he was given another ministerial seat. This is shameful. Then he abuses his power by appointing someone who has been one of the darlings of his party for years. This party is rotten to the core, an extreme right-wing party with a dirty history behind it. It s to be hoped that the Parliamentary Ombudsman will examine this scandalous appointment and invalidate it. In the bank sale, men who played a prominent role in the economic melt-down were given shares at a knock-down price. This government is at its last gasp. Bjarni Benediktsson can say the same as Richard Nixon said in 1973. When the Watergate scandal broke, which eventually ended his presidency, Nixon told a group of newspaper editors that he was “not a crook.”
    1
    • MGÁ
      Marteinn Gísli Árnason skrifaði
      Þetta er bara toppurinn a isjakanum allt i kringum þessar ættir sem ICE 1 er tengdur er
      tom spilling og engin virðing borin fyrir Islenskum hagsmunum. SKAMMIST YKKUR.
      0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þessi Raðning Sendiherra i USA er til haborinar skammar Bjarni Ben hröklaðist ur Raðuneyti Fjarmala eftir urskurð Umboðsmans Alþingis um Bankasöluna til Vina og Vandamanna, þa atti hann að hætta i Rikistjorn. Nei hann fekk anað Raðuneyti Skammarlegt. Svo er Valdi misbeitt og raðin Aðili sem er Floksgæðingur til margra ara.
    Öll Sendiherra störf a að auglysa og raða Aðila með hæfni en ekki Floksgæðing. Þessi Flokkur er Gjörspiltur Fasistaflokkur með ljotan Ferill. Umboðsmaður Alþingis hlytur að koma að þessari Skammarlegu Raðningu og Ogilda hana eins og hann kom að Bankasöluni er Hrunkallar fengu Bref i Islandsbanka a Tombolu verði. Þessi Rikistjorn er i Dauðateyjunum. Bjarni Ben Getur sagt eins og Nixon sagði 1973 I am not a crook.
    Amid the Watergate scandal that eventually ended his presidency, President Richard Nixon told a group of newspaper editors gathered at Walt Disney World in Orlando, Florida, that he was “not a crook.”
    2
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    OOH ÞETTA ER NU MEIRA OFURKVENDIÐ SUPERMAN FYLGIR MEÐ B.B. ENN EITT BULLIÐ
    FRA ÞER ÞU ERT SIÐL....!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár