Svanhildur Hólm verði skipuð sendiherra í Bandaríkjunum

Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra hefur lagt til að Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hans, verði nýr sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum. Einnig stefnir hann öðrum sam­starfs­manni sínum í nýja stöðu sendi­herra á Ítalíu.

Aðstoðarmaður og ráðherra
Aðstoð­ar­maður og ráð­herra Bjarni og Svan­hildur, þá aðstoð­ar­maður hans, á kosn­inga­vöku fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og utan­rík­is­ráð­herra, hefur lagt til að tveir af nán­ustu sam­starfs­að­ila hans til margra ára hljóti áber­andi sendi­herra­stöður fyrir Íslands hönd.

Bjarni hefur lagt til að Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hans til margra ára, verði nýr sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum. Vísir greinir frá þessu. Svan­hildur stað­festi frétt­irnar við frétta­stofu Vísis og sagð­ist spennt fyrir starf­inu, sem að hennar sögn snýst um að leggja sitt af mörkum til að gæta hags­muna Íslands erlendis.

Svan­hildur, sem er fædd árið 1974, er lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og er auk þess með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík. Hún var aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar frá 2012-2020.

Sendi­herra­efniSvan­hildur Hólm Vals­dóttir ásamt Loga Berg­manni Eiðssyni, eig­in­manni sínum.

Þar á undan var hún fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þrjú ár en starf­aði einnig um ára­bil sem fjöl­miðla­maður, …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Svona verður spillingin alltaf meiri og meiri. Vinir og vandamenn ráðnir í æðstu stöður ríkissins og þannig versnar þjónusta meir og meir því ekki er auglýst eftir hæfasta fólkinu sem völ er á.
    Gæði í opinberri þjónustu verður bara til ef hæfasta fólkið er ráðið.
    4
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ef embættið er ekki auglýst til umsóknar og hagsmunaaðili ( sem notið hefur stuðnings þess sem veita á embættið ) afhendir það "vini og /eða stuðningsaðila... er það skýr hagsmunaárekstur og einungis skilgreinalegt sem mútur.

    En íslensk lenska er að greiða mútur. ... Bara ekki fyrirfram.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár