Lögreglan kannast ekki við að hafa handtekið mann fyrir það að vera þeldökkur

Stjúp­móðir þeldökks manns greindi frá því á sam­fé­lags­miðlum í gær að sonur hennar hafi verið hand­tek­inn á aðfanga­dags­kvöld fyrir það eitt að hafa ekki skil­ríki með­ferðis. Lög­reglan hafi komið illa fram við mann­inn og ásakað hann um lygar. Lög­reglan kann­ast ekki við lýs­ingu líkt og lýst er í færsl­unni og seg­ist ekki hand­taka fólk fyrir það eitt að vera þeldökkt.

Lögreglan kannast ekki við að hafa handtekið mann fyrir það að vera þeldökkur
Handtaka „Lög­reglan hand­tekur engan ein­ungis á grund­velli þess að vera þeldökkur,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn í sam­tali við Heim­ild­ina. Mynd: Golli

Á aðfanga­dags­kvöld var hinn 28 ára gamli Brian Gona hand­tek­inn á leið sinni heim frá vinnu. Var hann í kjöl­farið vistaður í fanga­geymslu og yfir­heyrður fyrir að geta ekki fram­vísað skil­ríkjum. 

Atvikinu er lýst í færslu sem Þórunn Helga­dóttir, stjúp­móðir Brians, birti á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook í gær. Þórunn segir lög­regl­una hafa ásakað Brian um lygar þegar hann sagði til nafns og kenni­tölu. Lög­reglan hafi sam­þykkt að keyra Brian upp í Breið­holt til að skoða skil­ríki hans en hafi þó ekki gert það heldur keyrt hann á lög­reglu­stöð­ina á Hlemmi. 

Í færsl­unni er því lýst að lög­reglu­þjónar hafi öskrað á hann og neitað Brian um bæði vatn og leyfi til að fara á kló­settið meðan á hand­tök­unni stóð. Síminn hafi verið tek­inn af honum og Brian ekki fengið að hringja heim. 

Lögregla hafi enn fremur ítrekað reynt að fá Brian til að sam­þykkja að hún fengi að fara heim til hans …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Pétur Thormar skrifaði
    Nema þetta hafi verið grænn Grænlendingur.
    0
  • DK
    Davíð Kristjánsson skrifaði
    Þarf ég að fara að bera skilríki svo löggann stingi mér ekki í steininn ef henni dytti í hug að spyrja mig hver ég væri?
    Hverra manna er þetta fólk sem setur svona lög?
    0
  • Ólafur Ólafsson skrifaði
    Var Þetta þá bara lýgi?

    "Lögreglan kannast ekki við að hafa handtekið mann fyrir það að vera þeldökkur"
    0
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    Held að löggunni væri hollt að fara aðeins í naflaskoðun og að lögregluskólinn leggi meiri áherslu á hæfni í samskiptum. Perrarnir leita í æskulýðstörfin en power junkies leita í lögguna.
    3
  • Dóra Magnúsdóttir skrifaði
    “ Ásmundur segir þetta vera eina málið þar sem aðili var handtekinn á grundvelli þessara brota.” Væntanlega alger tilviljun að aðilinn sé svartur á hörund?
    3
  • IS
    Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Við treystum því að Heimildin fylgi þessu enn frekar eftir, óski eftir að sjá myndbönd lögreglu, leiti skýringar lögreglumanna á staðnum, lögregluvarðstjóra, rannsóknarlögreglumannsins, skoði lög og reglugerðir og lagagrunn lögreglu, ræði við lögreglustjóra, vegi og meti og birti okkur almenningi svo við getum lagt mat á málið. Etv. hrundið af stað lagabreytingum ef með þarf og hugsanlega breyttri starfsnálgun lögreglu.
    18
    • Johann Unnsteinsson skrifaði
      Það er þá frekar nútíminn sem færi í það , heimildin er algerlega sneydd af þessari rannsóknar blaðamennsku sem þeir lögðu upp með enda er ég hættur að styrkja þennan snepil.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár