„Fletjum Gasa út eins og Auschwitz ... svo allur heimurinn sjái hvað Ísrael getur gert“

Bæj­ar­stjóri í norð­ur­hluta Ísraels er einn margra ráða­manna þar sem ganga mjög langt í kröfum sínum um hvernig her­inn á að bregð­ast við árás­unum 7. októ­ber

Sveit­ar­stjór­inn í bæ einum í norð­ur­hluta Ísraels vill að Gasa-svæðið verði „flatt alveg út eins og Auschwitz núna“ og allir íbú­arnir verði fluttir með valdi í flótta­manna­búðir í Líbanon.

Maðurinn heitir David Azoulay og býr í bænum Metula við landa­mæri Ísraels að bæði Líbanon og Sýrlandi. Þar búa tæp­lega 2.000 manns. Azoulay var í við­tali við ísra­elsku útvarps­stöð­ina Radio 103FM. Ísra­elska blaðið Haaretz vitn­aði til ummæla Azoulay og fleiri „umdeil­an­legra“ ummæla ísra­el­skra ráða­manna um hern­að­inn á Gasa.

Ljóst má vera að þótt allir Ísraelar séu sam­ein­aðir í sorg sinni og reiði vegna hryðju­verka Hamas 7. októ­ber er sumum þeirra farið að blöskra af hve mik­illi heift stríðið á Gasa er rekið. Það er að minnsta kosti aug­ljóst að Haaretz vitnar ekki til ummæla Azoulys vegna vel­þókn­unar blaðs­ins með sjón­ar­miðum hans.

Azouly tók fram í útvarps­við­tal­inu að hann væri ekki langt til hægri í stjórn­málum. Eigi að síður þætti honum rétt að öllum íbúum á Gasa yrði smalað niður á strönd og þeir fluttir með valdi um borð í skip sem síðan sigldu með þá norður til Líbanons. Þar yrðu þeir settir á land enda væri þar „nóg af flótta­manna­búðum“.

Þegar Azouly var svo spurður hvað ætti að gera við Gasa-svæðið sagði hann að skilja ætti það eftir „tómt, alveg eins og Auschwitz. Safn. Svo allur heim­ur­inn sjái hvað Ísra­els­ríki getur gert.“

Breyta ætti Gasa-svæð­inu í risa­stórt einskis­manns­land á mótum Ísraels og Egifta­lands — „allt frá sjónum alveg að landamæram­úr­unum, alveg tómt, svo fólk gleymi því aldrei hvað var einu sinni þarna.“

Og hann ítrek­aði fyrri orð sín: „Fletjið allt út, alveg eins og í Auschwitz.“

Þegar Azouly var svo spurður hvort hann teldi lík­legt að líbönsk yfir­völd og palest­ínsku sam­tökin Hezbollah, sem eru ríki í rík­inu í suð­ur­hluta Líbanons, myndu leyfa Ísraelum að flytja þangað norður millj­ónir Palest­ínu­manna frá Gasa, þá svar­aði hann:

„Hezbollah sér hvað er að ger­ast í suðr­inu [í Gasa] og meðan við ljúkum ekki verk­inu þar — þá meina ég að fletja Gasa-svæðið alveg út — þá mun Hezbollah segja: „Ísra­els­menn eru heimskir og hægt að hafa hemil á þeim.““

Og Azouly bætti við: „Ég skil ekki af hverju Ísrael getur ekki afgreitt hryðju­verka­sam­tök, þótt öflug séu. Ríkið er eitt­hvað hrætt við að reka fólk frá heim­ilum sínum.“

Haaretz vitnar svo í nokkra aðra ísra­elska ráða­menn sem lagt hafa til mikla hörku í stríð­inu við Hamas á Gasa.

Í grein í Jerusalem Post nýlega sagði Gila Gamaliel njósn­a­mála­ráð­herra að vest­ræn ríki ættu að „taka við“ Palest­ínu­mönnum af Gasa-svæð­inu „af mann­úð­ar­á­stæðum“ rétt eins og kvik­fénað væri að ræða en ekki þjóð í eigin heim­kynnum.

Og Avi Dichter land­bún­að­ar­ráð­herra Ísraels sagði nýlega að Ísrael væri nú að fram­kvæma „Naqba á Gasa“ en þar er vísað til atburð­anna 1948 þegar Ísra­els­ríki var stofnað og palest­ínskir íbúar voru hraktir frá fjölda þorpa og byggða til að rýma fyrir Gyðingum þeim sem vildu setj­ast að í hinu nýja Ísrael.

Orðið „Naqba“ hefur hingað til aðeins verið notað af Palest­ínu­mönnum um þá atburði en það þýðir „hörm­ung­arnar“. Ísraelar sjálfir hafa full­yrt að Palest­ínu­menn hafi flúið sjálf­vilj­ugir eða að hvatn­ingu hinna arab­ísku nágranna­ríkja. Í því sam­bandi má benda á heim­ild­ar­mynd sem ísra­elski kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Alon Schwarz frum­sýndi í fyrra. Hún fjallar um Naqba í einu litlu þorpi í norð­ur­hluta Ísraels 1948, Tantura, og hrekur hina opin­beru lygi Ísra­els­manna mjög skil­merki­lega.

Myndin er á Youtube og má horfa á hana þar.

Haaretz vitnar svo að lokum til orða Amichai Eliyahu, ráð­herra Jer­úsalem í ísra­elsku stjórn­inni, en hann sagði í útvarps­við­tali að vel kæmi til mála að varpa kjarn­orku­sprengju á Gasa því allir íbúar þar væru í raun stríðs­menn, jafnt börn sem full­orðnir.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Skemtilegt hvernig Illugi J pakkar Gyðinga hatri sini inni annara orð.
    -11
    • Jóhanna Pálmadóttir skrifaði
      Lestu aftur, þessi “annara orð” eru orð háttsettra Ísraela, úr viðtölum við Israleska fjölmiðla, þar sem þeir eru BÓKSTAFLEGA að halda því fram að það eigi að fletja Gaza út eins og Auswitch! Er gyðingahatur núorðið að finnast það bara alls ekki í lagi? Eitthvað virðist vanta upp á lesskilning hjá þér væni, ásamt almennri skynsemi, siðferðiskennd og manngæsku…
      10
    • LDT
      L'eau de Tüpalingeur skrifaði
      @Jóhanna Pálmadóttir: "Árni Guðnýar" er ekki til, fake prófíll.
      3
    • Sigurður Ólason skrifaði
      Hvernig er annað hægt en að fyrirlíta Gyðinga ´ Guðs útvöldu þjóð ´
      0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Allir horfa á barnamorðingjana frá Ísrael , en gera ekkert ?

    Það verða ,,falleg jólin" í Ísrael þetta árið ?
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Bara djöfullinn sjálfur mættur!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár