Læknir dregur í efa að hert skilyrði fyrir Ozempic feli í sér sparnað

Erla Gerður Sveins­dóttir, læknir og sér­fræð­ingur um offitu­með­ferð, hefur lagst gegn hertum skil­yrðum fyrir greiðslu­þátt­töku með syk­ur­sýkis­lyfjum. Hún segir skil­yrðin of ströng og dregur í efa að minni greiðslu­þátt­taka hafi í för með sér sparnað í heild­ar­sam­heng­inu.

Læknir dregur í efa að hert skilyrði fyrir Ozempic feli í sér sparnað
Greiðslu­þátt­taka Erla bendir á að kostn­aður Sjúkra­trygg­inga hafi nýlega minnkað umtals­mert með til­komu lyfs­ins Wygowy á markað. Kostn­að­ur­inn sem minnst sé á í til­kynn­ing­unni muni því fara minnk­andi í ljósi þess­arar þró­unar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Erla Gerður Sveins­dóttir, læknir og sér­fræð­ingur um offitu­með­ferð, segir útskýr­ingar Sjúkra­trygg­inga á hertum skil­yrðum fyrir greiðslu­þátt­töku með syk­ur­sýkis­lyfjum ekki breyta skoðun sinni á mál­inu. Erla hefur talað gegn breyt­ing­unum og segir nýju skil­yrðin vera of ströng.

„Það er verið að hefja lyfja­með­ferð þegar sjúk­dóm­ur­inn offita er of langt geng­inn. Það er of seint að hefja lyfja­með­ferð þarna eins og greiðslu­þátt­takan er,“ segir hún. Erla segir notkun lyfj­anna koma í veg fyrir fylgi­kvilla offitu sem felur í sér umtals­verðan sparnað og minna álag á heil­brigð­is­kerfið.

Kostnaður Sjúkratrygginga hefur tólffaldast

Sjúkra­trygg­ingar segja kostnað vegna syk­ur­sýkis­lyfja, sem einnig eru notuð til þyngd­ar­stjórn­unar, hafa tólf­fald­ast á und­an­förnum fimm árum. Kostn­að­ur­inn hefur farið úr því að vera 163 millj­ónir árið 2018 í 1,9 millj­arð í ár. Lyfin sem um ræðir eru semaglú­tíð­lyf s.s. Ozempic, Rybelsus og Wegowy og líraglú­tíð­lyfin Victoza og Saxenda.

Í til­kynn­ingu frá Sjúkra­trygg­ingum segir að fjöldi þeirra sem hafi fengið ávís­anir upp …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Getur verið að einkavinir heilbrigðisráðherra í læknastétt , sem reka Kliníkina , séu á dýrunum hjá Willum ? Alltaf að koma betur í ljós hvað Willum er vitlaus í sinni ráðherra vinnu .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár