Lýsa upp ómannúðlegar hvalveiðar

Dáleið­andi fag­urt en líka ögrandi lista­verk birt­ist áhorf­endum á horni Lauga­vegs og Banka­strætis í síð­ustu viku og lýsti upp kaldan gráma. Þar stóð Högni Egilsson í hópi áhorf­enda og blaða­maður tók hann tali.

Lýsa upp ómannúðlegar hvalveiðar
Lista­menn­irnir Högni Egilsson og Owen Hindley fyrir framan verkið sem þeir sköp­uðu, en þar er hljóði, tón­list og mynd­verki er varpað upp í opnu rými. Verkið vekur fólk til umhugs­unar um líf­ríki jarðar. Ljósmynd: Jóhannes Kr. Krist­jáns­son.

„Við Owen Hindley sköp­uðum verk þar sem hljóði, tón­list og mynd­verki er varpað upp í opnu rými,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn Högni Egilsson. En fyrir þá sem ekki til þekkja þá er Owen Hindley mynd­list­ar­maður sem vinnur með nýmiðlun; tví­víð mynd­verk, hljóð, mynd og tón­list.

Högni segir þá hafa gert verkið til að vera í almanna­rými.

„Og þetta er tutt­ugu mín­útna langt verk sem er hálf­gerð dáleiðsla, eða hug­leiðsla.“

Hann segir það hverf­ast um hið ógn­væn­lega í mann­inum og hvernig hann kemur fram við líf­kerfi hafs­ins og hval­ina.

„Við erum að nota myndefni sem var sett um borð í hval­veiði­skipin til að sjá til þess að öllum reglum væri fram­fylgt um dýra­vel­ferð. Í raun er þetta grunn­ur­inn að bann­inu í haust um hval­veiðar. Af því að með­ferðin á dýr­unum var ekki sam­kvæmt reglum. Þess vegna var mynd­bands­vélum komið fyrir í …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár