Bankar fella niður vexti og verðbætur af lánum Grindvíkinga í þrjá mánuði

Stóru bank­arnir þrír hafa und­ir­ritað sam­komu­lag um að mæta stöðu Grind­vík­inga. Sam­komu­lagið tekur til ákveð­inna lág­mark­s­við­miða en felur ekki í sér nein höft á því að ein­stakir bankar geti veitt við­skipta­vinum sínum frek­ari fyr­ir­greiðslu.

Bankar fella niður vexti og verðbætur af lánum Grindvíkinga í þrjá mánuði
Rýmt Grind­vík­ingum var gert að rýma heim­ili sín föstu­dag­inn 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Mikil óvissa ríkir um hvort og hvenær þeir geti snúið aftur. Á meðal dvelj­ast flestir í bráða­birgða­hús­næði, oft með miklum við­bótar til­kostn­aði. Það stefndi í að þeir þyrftu samt að greiða vexti og verð­bætur af lánum um kom­andi mán­að­ar­mót. Nú hefur verið komið í veg fyrir það tíma­bundið.

Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn hafa, í sam­vinnu við Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF), gert sam­komu­lag um að fella niður vexti og verð­bætur af íbúða­lánum Grind­vík­inga í þrjá mán­uði. Sam­komu­lag þessa efnis var und­ir­ritað í dag, 22. nóv­em­ber. Þetta er gert vegna yfir­stand­andi nátt­úru­ham­fara og óvissu­á­stands í Grinda­vík. Áður höfðu bank­arnir ætlað að mæta stöðu Grind­vík­inga, sem var gert að rýma bæinn í síð­ustu viku og eru nú í tíma­bundnu hús­næði oft með til­heyr­andi við­bót­ar­kostn­aði, með því að frysta afborg­arnir af íbúða­lánum þeirra en leggja vexti og verð­bætur við höf­uð­stól lán­anna. Það hafði verið harð­lega gagn­rýnt, meðal ann­ars af ráð­herrum í rík­is­stjórn og öðrum stjórn­mála­mönnum.

Í til­kynn­ingu frá SFF sem send var út á ell­efta tím­anum í kvöld segir að með þessu vilji bank­arnir koma til móts við við­skipta­vini sína í Grinda­vík sem standa frammi fyrir mik­illi óvissu varð­andi tekjur, útgjöld, hús­næði og afdrif eigna sinna. Með því að bank­arnir þrír hafi kom­ist að sam­komu­lagi er stuðlað að jafn­ræði sé á milli lán­taka bank­anna í Grinda­vík. 

Þar segir að þessi aðgerð bank­anna og SFF sé liður í heild­stæð­ari úrlausn fyrir Grind­vík­inga, með aðkomu stjórn­valda og fleiri aðila, sem gert er ráð fyrir að verði kynnt á næstu dögum. „Nið­ur­fell­ingin verður á vöxtum og verð­bótum fyrir nóv­em­ber og des­em­ber 2023 og jan­úar 2024 og mun hún tak­markast við vexti og verð­bætur af láni að hámarki 50 millj­ónir króna. Ef lán­taki er með hærra lán mið­ast nið­ur­fell­ing við að fjár­hæð láns­ins sé 50 millj­ónir króna. Nánari útfærsla á nið­ur­fell­ing­unni er í höndum hvers banka fyrir sig. Sam­komu­lagið tekur til ákveð­inna lág­mark­s­við­miða en felur ekki í sér nein höft á því að ein­stakir bankar geti veitt við­skipta­vinum sínum frek­ari fyr­ir­greiðslu eða keppa að öðru leyti á grund­velli við­skipta­skil­mála.“

Í nið­ur­lagi til­kynn­ing­ar­innar segir að það sé fullur vilji allra bank­anna að vera hluti af heild­ar­lausn og koma með sann­gjörnum hætti til móts við Grind­vík­inga. „Ljóst er að enn ríkir mikil óvissa um fram­haldið og munu bank­arnir fylgj­ast vel með stöðu mála sinna við­skipta­vina.“

Útilokaði ekki „hressilegar“ aðgerðir

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins VR, og Hörður Guð­brands­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur til­kynntu fyrr í vik­unni að þeir ætl­uðu að mót­mæla dag­lega við eða í höf­uð­stöðvar Lands­bank­ans á Hafn­ar­torgi frá og með morg­un­deg­inum, fimmtu­deg­inum 23. nóv­em­ber. Með þessu vildu þeir þrýsta á að bank­arnir kæmu betur til móts við Grind­vík­inga sem þurftu að yfir­gefa heim­ili sín fyrr í þessum mán­uði. 

„Það er lág­marks krafa okkar að vextir og verð­bætur verði felldar niður tíma­bundið eða á meðan mesta óvissan ríkir,“ skrif­aði Ragnar á Facebook-síðu sína. Nú er ljóst að þeirri lág­marks­kröfu hefur verið mætt. VR hýsir Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur sem stendur en 400 félags­menn VR eru, eða voru eftir því hvernig á það er litið, sömu­leiðis búsettir í Grinda­vík. 

Skortur á aðgerðum banka vegna stöðu Grind­vík­inga voru líka til umræðu á Alþingi á mánu­dag. Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, og Odd­ný G. Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, beindu þar fyr­ir­spurn­um sín­um til Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, og kröfðu hana um aðgerðir rík­is­stjórn­ar­inn­ar vegna þess skorts.

Hún svar­aði því til að stjórn­völd væru í sam­tali við fjár­mála­stofn­an­ir og að hún gerði fast­lega ráð fyr­ir því að aðgerðir yrðu kynntar í þess­ari viku sem myndu benda til þess og vera þess hátt­ar að bankar myndy sýna fulla sam­fé­lags­lega ábyrgð. „Nú er það svo að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fer með þessi mál í rík­is­stjórn­inni. Hins veg­ar fer ég með neyt­enda­mál­in og sjá­um við ekki frek­ari aðgerðir núna á allra næstu dög­um verðum við auð­vitað að grípa til þeirra ráða sem við höf­um hér. Ég úti­loka ekki að það verði bara býsna hressi­legt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár