Fer beint frá heilbrigðisráðherra til Klíníkurinnar: „Þetta á að vera bannað“

Talsverð und­ir­alda er meðal stjórn­enda á sjúkra­húsum lands­ins vegna stór­auk­inna umsvifa einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar. Mitt í þessu and­rúms­lofti fer Guðrún Ása Björns­dóttir, aðstoð­ar­maður Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra, í stjórn­enda­starf hjá Klíník­inni. Lög um snún­ings­dyra­vand­ann ná ekki yfir aðstoð­ar­menn ráð­herra.

Fer beint frá heilbrigðisráðherra til Klíníkurinnar: „Þetta á að vera bannað“
Var hjá Willum í eitt og hálft ár Guðrún Ása Björns­dóttir, aðstoð­ar­maður Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra, var að ráða sig til einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar eftir að hafa verið hægri hönd hans í eitt og hálft ár. Mynd: Bára Huld Beck

Guðrún Ása Björns­dóttir, aðstoð­ar­maður Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra, fer beint frá því að starfa sem hægri hönd hans í ráðu­neyt­inu og yfir til einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar. Hún var aðstoð­ar­kona ráð­herr­ans í eitt og hálft ár. 

Þetta ger­ist á sama tíma og mikil und­ir­alda er meðal stjórn­enda sjúkra­húsa lands­ins vegna auk­inna umsvifa Klíník­ur­innar, sem fyrr á þessu ári gerði samn­ing við Sjúkra­trygg­ingar Íslands um að gera 300 lið­skipta­að­gerðir með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Samtals útvi­staði íslenska ríkið 700 lið­skipta­gerðum til einka­að­ila. 

Eins og einn stjórn­andi í heil­brigð­is­kerf­inu, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir við Heim­ild­ina um stöð­una sem komin er upp: „Það er bara verið að koma á tvö­földu heil­brigð­is­kerfi á Íslandi.“ Annar starf­andi læknir á sjúkra­húsi segir við blaðið: „Það er bara verið að veikja sjúkra­húsin og hola heil­brigð­is­kerfið að innan.“

Samn­ing­ur­inn var til þess gerður að stytta biðlista eftir lið­skipta­að­gerðum og gildir bara út þetta ár. …

Kjósa
66
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Alltaf sama fjósalyktin af framsókn á miðjunni að sögn en glæpast bæði til hægri og vinstri hvernig á svo fótboltadómari að hafa svo mikið sem hundsvit á heilbrigðismálum
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Þessi auma ríkisstjórn VG gerir ekkert fyrir íslenskt samfélag , Ekkert !
    Það er talað mikið og reynt að brosa til að villa fólki sýn á persónur eins og Willum !

    Munið hvaða persónur þetta eru í raun í framsóknarflokknum ?
    Það koma kosningar fljótlega .
    0
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Mér sýnist fyrrverandi aðstoðarmaður heildbrigðisráðherra vera siðblindur en hvað er heilbrigðisráðherrann? Er hann sofandi? Einfeldningur? Skít sama?

    Mig grunar að það sem fylgdi með af gögnum með nýja forstjóranum muni einfalda alla tilboðsgerð Klíkunnar þegar boðið verður í verk innan heilbrigðiskerfisins í framtíðinni. En hver skyldi bera ábyrgð á hvaða tilboð eru samþykkt? Gamli yfirmaður forstjórans...
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Landspítalinn, lesist ríkið, hefur kerfisbundið haldið fólki á biðlistum árum saman öllum til tjóns. Síðan, þegar losa á um stfluna, ganga einokunarsinnar af göflunum. Ríkiseinokun sem og önnur einokun og fáokun leiðir jafnan til spillingar. Vistaskipti aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra er svo annað mál.
    0
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      „Landspítalinn, lesist ríkið, hefur kerfisbundið haldið fólki á biðlistum árum saman öllum til tjóns.“

      Og hverrs vegna heldur þú að þetta sé svona Páll Bragason ?
      Gæti það verið að ríkiÓstjórnir undafarina áratuga hafa markvisst og kerfisbundið svelt Landspítalann, lesist (okkur folkið í landinu), ríkið með því markmiði að koma hér á OKUR einkavæddu heilbrigðiskerfi a la B.N.A. okkur öllum til tjóns og ama ?
      Nema auðvita auðrónunum og græðgisgörkunum.
      6
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Af hverju tekur ríkið ekki sjálft að sér þessar liðskiptaaðgerðir? Ríkið þarf hvort sem er að greiða fyrir þær.
    Sjálfstæðisflokkurinn hefur svelt opinbera kerfið þannig að ríkið getur ekki sinnt þessum aðgerðum svo að langir biðlistar myndast. Þannig er markvisst verið að einkavæða heilbrigðiskerfið.
    Erlendar rannsóknir hafa sýnt að opinbert heilbrigðiskerfi er ódýrara og veitir beti þjónustu en einkarekið kerfi.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkratryggingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eftirlitsmál gegn Klíníkinni
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Willum opnar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Þannig aukum við skil­virkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.
Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu: Fram­lengja umdeildan samn­ing við Klíník­ina á grund­velli aðgerð­a­r­eynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.
Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu og tengsl rikisstjórnarinnar og Klíníkurinnar
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár