Ísland í erlendum miðlum: „Vanheilög hljóð frá jörðinni“

Erlendir miðlar á borð við BBC, NRK og Financial Times hafa fjallað um fram­vindu mála í Grinda­vík síð­ustu daga. Áhuginn erlendis er mik­ill og fjöl­miðlar reyna að kom­ast að mögu­legum áhrifum eldogss.

Ísland í erlendum miðlum: „Vanheilög hljóð frá jörðinni“
Fréttir á erlendum miðlum Fjöl­miðlar um allan heim hafa fjallað af miklum áhuga um atburði síð­ustu viku hér á Íslandi. Meðal þeirra eru DailyMail og Bloomberg.

Erlendir frétta­miðlar hafa fjallað af miklum ákafa um þær jarð­hrær­ingar sem eiga sér stað í og við Grinda­vík um þessar mundir.

Efst á vef­síðu breska mið­ils­ins DailyMail er að finna frétt með fyr­ir­sögn­inni: „Ísland bíður „á brún­inni“ og ótt­ast að hrauná geti skollið á orku­veri eftir að risa­stórar sprungur opn­ast um bæinn, þús­undir eru flutt á brott og hund­ruð jarð­skjálftar dynja yfir með van­heilögum hljóðum frá jörð­inni.“

Mið­ill­inn DailyMailBirti frétt um stöð­una hér­lendis fyrr í dag.

Með frétt­inni birt­ist mynd­band af einni af stærstu sprung­unum í Grinda­vík ásamt myndum og umfjöllun um atburði síð­ustu daga. Þar er vitnað í Matthew James Roberts, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu- og rann­sókn­ar­sviðs Veð­ur­stofu Íslands. „Það ríkir mikil óvissa núna. Verður eld­gos og ef það verður, hver verður skað­inn?“

Áhrif mögulegs goss

Aðrir miðlar sem hafa fjallað um mögu­legt eld­gos eru meðal ann­arra Sky News, Financial Times, Bloomberg, NRK, BBC, CBC, veð­ur­frétta­stofa FOX, Reauters, The Independent, The Guardian og banda­ríski morg­un­þátt­ur­inn TODAY á sjón­varps­stöð­inni NBC. 

Fyr­ir­sögn frétta­mið­ils­ins BloombergÁ vef­síðu mið­ils­ins var að finna frétt með ugg­andi fyr­ir­sögn.

Frétta­rit­ari Breska rík­is­út­varps­ins BBC, Jess Parker, er stödd á Íslandi um þessar mundir til að fylgj­ast með fram­vindu mála. Í beinni útsend­ingu fyrr í dag útskýrði Parker fyrir áhorf­endum og hlust­endum að þús­undir jarð­skjálfta hefðu fund­ist á Reykja­nes­inu síð­ustu vikur. „Mesti ótt­inn núna ríkir um bæinn Grinda­vík sem búið er að rýma. Það hefur eng­inn leyfi til þess að vera þar að svo stöddu.“

Bretar veltu fyrir sér áhrifum mögu­legs goss en Eyja­fjalla­jök­ull er enn í minnum margra enda hafði það gos áhrif á flug­um­ferð um alla Evrópu. „Ég held núna, miðað við það sem mér hefur verið sagt í sam­ræðum við eld­fjalla­fræð­inga, að það sé ekki búist við röskun á flugum þegar gosið verður vegna kvik­unnar og fyr­ir­hug­aðrar stað­setn­ingar goss­ins.“

Sum mynd­böndin sem birst hafa á erlendum miðlum eru með tugi þús­unda áhorfa. Frétta­mið­ill­inn Al Jazeera fylgd­ist með flug­mann­inum Einari Dag­bjarts­syni, íbúa Grinda­víkur, á meðan hann fékk fimm mín­útur til þess að ná í eigur sínar í heima­húsi sínu. Þegar hafa yfir 12 þús­und manns horft á frétt­ina en hún birt­ist fyrir aðeins átta klukku­stundum síðan.

„Þú þarft alltaf að horfa á björtu hlið­arnar,“ sagði Einar í frétt­inni. „Það er eng­inn dáinn. Þre­faldur fjöldi þeirra sem búa í Grinda­vík eru dáinn á Gasa svæð­inu, helm­ingur þeirra börn.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár