Forsætisráðherra sækir heimild fyrir byggingu varnargarða – Fjármagnaðir með nýjum skatti

Lagt hefur verið fram frum­varp um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga. Varn­ar­garðar verða fjár­magn­aðir með for­varn­ar­gjaldi sem inn­heimt verður af bruna­tryggðum fast­eignum.

Forsætisráðherra sækir heimild fyrir byggingu varnargarða – Fjármagnaðir með nýjum skatti
Verja inn­viði Ríkið fær heim­ildir með frum­varp­inu, verði það að lögum, til að verja mik­il­væga inn­viði í Svarts­engi.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga. Frum­varpið, verði það að lögum, veitir rík­inu heim­ildir til að byggja varn­ar­garða í kringum mik­il­væga inn­viði.

Með frum­varp­inu er lagt til að ráð­herra verði veitt skýr laga­heim­ild til að taka ákvörðun, á grund­velli til­lögu rík­is­lög­reglu­stjóra og að höfðu sam­ráði við stjórn­völd, um nauð­syn­legar fram­kvæmdir í þágu almanna­varna sem miða að því að koma í veg fyrir að mik­il­vægir inn­viðir og aðrir almanna­hags­munir verði fyrir tjóni af völdum nátt­úru­ham­fara sem tengj­ast eld­stöðvakerfum á Reykja­nesskaga. „Vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem uppi eru og þar sem nauð­syn­legt er að bregð­ast hratt við, er m.a. ráð­gert í frum­varp­inu að ráð­herra verði heim­ilt að taka ákvörðun um til­greindar fram­kvæmdir og hrinda þeim af stað án þess að gæta þurfi að hefð­bund­inni máls­með­ferð sam­kvæmt skipu­lags­lögum og öðrum lögum sem ann­ars gætu gilt um slíkar fram­kvæmdir.“

Varnargarðar við orkuverið

Í grein­ar­gerð sem fylgir með frum­varp­inu kemur fram að það sé unnið vegna þess mats sér­fræð­inga að yfir­stand­andi jarð­hrær­ingar gefi vís­bend­ingar um að gos gæti komið upp nærri mik­il­vægum innviðum, svo sem við Orkuver HS Orku í Svarts­engi og aðra inn­viði í nágrenni þess. „Jafn­framt gæti hraun­flæði ógnað byggð í Grinda­vík. Gerðar hafa verið hraun­flæði­grein­ingar og nið­ur­stöður þeirra gefa vís­bend­ingar um að varn­ar­garðar gætu varið mik­il­væga inn­viði á svæð­inu að ein­hverju eða öllu leyti. Töluverð óvissa er þó fyrir hendi, en unnið er með þær upp­lýs­ingar sem fyrir liggja frá vís­inda­mönnum á hverjum tíma.“

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hefur lagt fram til­lögu að bygg­ingu varn­ar­garða framan við orku­ver HS Orku í Svarts­engi og vörnum við veitu­lagnir. Samkvæmt til­lög­unni yrði varn­ar­garður við Svarts­engi alls um fjögur hund­ruð þús­und rúmmetrar að full­byggður. Í frum­varp­inu segir að mögu­legt sé að byggja garð­inn í áföngum. „Byrjað yrði á því að reisa 2–3 metra varn­ar­línu sem síðan yrði hækkuð upp í að með­al­tali 8 metra hæð. Þrátt fyrir að unnið yrði á vöktum og með tölu­verðum afköstum verk­taka má gera ráð fyrir að það taki um 30–40 sól­ar­hringa að byggja garð­inn full­byggðan. Ljóst er því að erfitt yrði að koma fyrir mark­vissum vörnum með skjótum hætti eftir að atburður hæf­ist í námunda við mik­il­væga inn­viði á svæð­inu. Einungis mætti gera ráð fyrir neyð­ar­við­bragði í besta falli miðað við þær sviðs­myndir sem skoð­aðar hafa verið. Af þessum sökum er mik­il­vægt að hefja und­ir­bún­ing sem fyrst þannig að unnt verði að ráð­ast í upp­bygg­ingu varn­ar­garða til að verja áður­nefnda inn­viði með eins skömmum fyr­ir­vara og mögu­legt er.“

Forvarnargjald lagt á til þriggja ára

Vegna auk­innar eld­virkni á und­an­förnum árum og vax­andi hættu á vatns­flóðum þykir stjórn­völdum nauð­syn­legt að hafin verði gjald­taka til að standa undir kostn­aði við verk­legar fyr­ir­byggj­andi fram­kvæmdir sem ætlað er að verja mann­virki fyrir tjóni af völdum þess­ara nátt­úru­ham­fara.

Sú gjald­taka, sem nefn­ist for­varn­ar­gjald, á að vera til þriggja ára og verður inn­heimt af bruna­tryggðum hús­eignum. Gjaldið rennur í rík­is­sjóð og því er ætlað að standa undir kostn­aði við fyr­ir­byggj­andi fram­kvæmdir. „Af því leiðir að allur kostn­aður vegna þeirra fram­kvæmda sem dóms­mála­ráð­herra ákveður að ráð­ast í sam­kvæmt frum­varpi þessu, verði það að lögum, greið­ist úr rík­is­sjóði.“

Gjaldið sem lagt verður á er 0,08 pró­míll af bruna­bóta­mati, en eitt pró­míl er einn tíundi af pró­senti. Fyrir íbúð­ar­eig­anda sem á íbúð sem er með bruna­bóta­mat upp á 50 millj­ónir króna þýðir það að við­kom­andi þarf að greiða fjögur þús­und krónur á ári vegna þessa nýja skatts. Sá sem á íbúð þar sem bruna­bóta­matið er 75 millj­ónir króna þarf að greiða sex þús­und krónur. Og svo fram­vegis.


Í upp­runa­legri útgáfu frétt­ar­innar var gengið út frá því að for­varn­ar­gjaldið sem lagt yrði á væri 0,08 pró­sent af bruna­bóta­mati, enda tíðkast að til­greina skatta og gjöld sem pró­sent af ein­hverju. Í þessu til­viki er hins vegar verið að leggja á gjald sem er 0,08 pró­míl af bruna­bóta­mati, en eitt pró­míl er enn tíundi af pró­senti. Gjaldið er því 0,008 pró­sent af bruna­bóta­mati. Fréttin hefur verið upp­færð og leið­rétt í sam­ræmi við þessar upp­lýs­ingar.
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Samkvæmt frumvarpinu yrði gjaldið 0,08‰ (prómill en ekki prósent) af brunabótamati.

    Það myndi gera 4.000 kr. á ári af íbúð með 50 milljón kr. brunabótamat, 6.000 kr. á ári af íbúð með 75 milljón kr. brunabótamat, og svo framvegis.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár