Kærustupar ætlaði að gista í Grindavík en lenti á grjóti og í rýmingu

„Þetta er reynsla sem breytir líf­inu,“ segir William Skilling, í fjölda­hjálpa­stöð­inni í Kórnum í Kópavogi, eftir við­burða­ríka Íslands­ferð sem fór afvega á síð­ustu metr­unum. Hann og kærasta hans keyrðu á grjót, en fengu aðstoð íslenskrar fjöl­skyldu til að kom­ast á áfanga­stað: Gisti­heim­ili í Grinda­vík, sem var rýmt örskömmu síðar vegna eld­gosa­hættu.

Kærustupar ætlaði að gista í Grindavík en lenti á grjóti og í rýmingu

Eftir við­burða­ríka heim­sókn til Íslands end­aði kærustuparið William Skilling og Sofia Periada í fjölda­hjálp­ar­mið­stöð í Kórnum í Kópavogi.

Við kom­una til lands­ins varði parið tveimur dögum í Reykja­vík, en næstu fjórum dögum á ferð um landið. Á þessum tíma hafa þau farið Gullna hring­inn, hætt sér inn í íshelli og staðið á svörtum Breiða­merk­ur­sandi, sem var „dásam­legt“. Í kvöld voru þau rétt ókomin til Grinda­víkur þegar ógæfan dundi á. 

Í Grinda­vík ætl­uðu þau að verja síð­ustu nótt­inni á Íslandi á gisti­heim­ili, áður en þau halda aftur til Bret­lands á morgun, þar sem þau búa, í London. „Eftir fimm tíma akstur náðum við næstum því alla leið, það mun­aði bara sex mín­útum,“ segir William. 

Í sex mín­útna fjar­lægð frá Grinda­vík lenti þau á grjót­hruni á veg­inum, með þeim afleið­ingum að dekkið fór af og eitt­hvað eyði­lagð­ist, svo bíl­inn var ekki hægt að keyra lengra. „Ég stopp­aði bíl­inn, en þá kom ynd­is­leg íslensk fjöl­skylda að, og sagði að ég yrði að færa bíl­inn, því hann væri á hættu­legum stað. Við fórum út og fundum jarð­skjálft­ann. Þau hjálp­uðu okkur með far­ang­ur­inn á gisti­heim­ilið. Við skildum reyndum eitt­hvað eftir í bílnum því við héldum að við gætum fengið bíl­inn aftur að gisti­heim­il­inu.“ 

Þegar á gisti­heim­ilið var komið kom parið sér fyrir. „Við sendum hús­eig­and­anum svo skila­boð til að spyrja hvort hægt væri að skipu­leggja far á flug­völl­inn á morgun og hann sagði það ekk­ert mál. Klukkan var að verða ell­efu þegar hún hringdi og sagði að við yrðum að yfir­gefa svæðið. Við spurðum hvort fleiri væru á gisti­heim­il­inu, og hún sagði að það væri alla­vega annað par þar.“ Þau bönk­uðu upp á hjá belgísku pari og fengu far með þeim á fjölda­hjálp­ar­stöð Rauða kross­ins í Kórnum í Kópavogi. 

Á morgun halda þau svo aftur heim. Bíllinn bíður hins vegar á aflok­uðu svæði, þangað sem hann verður vænt­an­lega sóttur af bíla­leig­unni. Þau við­ur­kenna að þetta hafi verið svo­lítið ógn­vekj­andi reynsla. „Þegar jörðin hrist­ist undir mér, já,“ segir William. „Ég er yfir­leitt mjög rólegur, en það var ógn­vekj­andi.“ Þetta var í fyrsta sinn á ævinni sem þau fundu fyrir jarð­skjálfta. „Ég var svo­lítið kvíðin,“ segir Sofia. „Bíllinn var nú þegar ónýtur og … já.“ 

Þrátt fyrir allt eru þau stað­ráðin í að koma aftur til Íslands. „Eftir að við sáum norð­ur­ljósin í gær­kvöldi, þá verðum við að koma aftur að sjá þau,“ segir William og segir að það hafi verið algjör­lega stór­kost­lega upp­lifun. „Þetta er reynsla sem breytir líf­inu.“

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár