Fólk opnar heimili sín fyrir Grindvíkingum

Um eitt­þús­und Grind­vík­ingar hafa í kvöld látið Rauða kross­inn vita að þeir séu komnir í skjól hjá ætt­ingjum eða vina­fólki. Um átta­tíu íbúar Grinda­víkur eru komnir í fjölda­hjálp­ar­stöðvar Rauða kross­ins. Þá hefur verið stofn­aður hópur á Facebook þar sem fólk býður Grind­vík­ingum húsa­skjól.

Fólk opnar heimili sín fyrir Grindvíkingum
Í Kórnum Fólki var skylt að yfir­gefa heim­ili sín í Grinda­vík. Margir leit­uðu skjóls Í fjölda­hjálp­ar­mið­stöð­inni í Kórnum í Kópavogi. Mynd: Golli

Tæplega 1.000 íbúar Grinda­víkur hafa í kvöld látið Rauða kross­inn vita að þeir séu komnir í skjól hjá ætt­ingjum eða vina­fólki, en um 3.700 manns búa í Grinda­vík. Um 80 Grind­vík­ingar eru komnir í fjölda­hjálp­ar­stöðvar Rauða kross­ins, lang­flestir í Kórinn í Kópavogi. „Þar eru nú um 50 manns, full­orðnir og börn en líka gælu­dýr,“ segir Oddur Freyr Þor­steins­son, kynn­inga- fjöl­miðla­full­trúi Rauða kross Íslands. Oddur Freyr hvetur alla íbúa Grinda­víkur sem ekki ætla að gista í fjölda­hjálp­ar­stöð til að láta vita af því í núm­erið 1717. „Þau sem ætla að vera í fjölda­hjálp­ar­stöðvum skrá sig við kom­una þangað.“

Almenn­ingur hefur í kvöld sýnt Grind­vík­ingum mikla sam­stöðu. Margt fólk hefur á Facebook í kvöld boðið Grind­vík­ingum gist­ingu á heim­ilum sínum. Þá hefur verið stofn­aður hópur á sam­fé­lags­miðl­unum sem ber heitið Aðstoð við Grind­vík­inga. 

„Laust her­bergi hér með einu 140cm rúmi. Einnig sófi í stof­unni. Hring­braut í Reykja­nesbæ. ❤️“ skrif­aði Halldóra Hreins­dóttir. 

Bjóða fram aðstoðFjöl­margir Vest­manna­ey­ingar bjóða Grind­vík­ingum húsa­skjól.

„Ef íbúa úr Grinda­vík vantar gist­ingu næstu daga og vikur getum við lagt hana til fyrir 15-20 manns í Skarði - Skeið - Gnúp (34 km frá Selfossi á leið að Flúðum) 8 Selfossi og 6 manns í Stykk­is­hólmi. Hús í Skarði sem tekur 10, laust á sunnu­dag­inn, tvær íbúðir fyrir 4 á Selfossi, 3 smá­hýsi sem geta verið í 2-4 í Skarði. Í Stykk­is­hólmi íbúð fyrir 6 manns, þrjú tveggja manna her­bergi, laus á sunnu­dag­inn. 34 gisti­rými í heild­ina á þessum 3 stöðum,“ skrif­aði Björgvin G. Sig­urðs­son.

„Ég er með her­bergi innan íbúðar með tví­breiðum svefn­sófa og tv á meðan rým­ing stendur yfir. Bý í Mosó,“ skrifar Margrét Björk Ólafs­dóttir.

Íris Dröfn Krist­jáns­dóttir seg­ist vera með „upp­á­búið 90 cm rúm í sér her­bergi og svefn­sófa inn í stofu. Hundur og 2 kisur á heim­il­inu. Datt í hug að bjóða fram aðstoð ef ein­hver er með hund/a með sér og vantar aðstöðu/gist­ingu. Er á Selfossi.“ 

Þá voru í hópnum, sem stofn­aður var til stuðn­ings Grind­vík­ingum, birt skjá­skot af síð­unni Heima­klettur í Vest­manna­eyjum þar sem Vest­mann­ey­ingar og fleiri bjóða Grind­vík­ingum húsa­skjól. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár