Kvikugangurinn kominn undir bæinn og fólk flutt á brott

Skjálfta­virknin hefur fært sig beint undir byggð­ina í Grinda­vík. Stór kviku­gangur er kom­inn undir bæinn. Allur bær­inn rýmdur á tveimur til þremur tímum.

Kvikugangurinn kominn undir bæinn og fólk flutt á brott
Eldri borg­arar flýja dval­ar­heim­ilið í Grinda­vík. Mynd: Golli

Almanna­varnir hafa boðað rým­ingu á öllum íbúum í Grinda­vík. Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, kynnti rým­ing­una á blaða­manna­fundi almanna­varna rétt í þessu. 

Stór kviku­gangur er tal­inn teygja sig frá Sund­hnúka­gígum og undir byggð­ina í Grinda­vík. „Þarna er á ferð­inni mjög mikil kvika,“ segir Víðir.

„Ég ítreka það að þetta er ekki neyð­ar­rým­ing. Það er ekki bráð hætta yfir­vof­andi og rým­ingin er fyrst og fremst fyr­ir­byggj­andi örygg­is­ráð­stöfun. Akið var­lega, það er dimmt, og margir verða á ferð­inni. Förum okkur í engu óðs­lega.“

Hann ítrek­aði að fólk ætti að gæta að nágrönnum sínum og merkja heim­ili sín rýmd. „Takið upp gang­andi fólk ef rými er í bílnum.“

Atburður sem þessi hefur ekki átt sér stað síðan í Vest­manna­eyja­gos­inu 1973.

Eins og Heim­ildin greindi frá fyrr í kvöld hafði skjálfta­virknin á Reykja­nesskag­anum færst beint undir fæt­urna á fólki í Grinda­vík og var henni lýst sem öldu­gangi. Fyrir skemmstu voru eldri borg­arar á dval­ar­heim­il­inu Miðgarði fluttir burt í snatri.

Ugg­væn­leg mynd af skjálfta­síðu Veð­ur­stofu Íslands sýnir hvernig jarð­skjálfta­virkni hefur smám saman flust undir byggð­ina í Grinda­vík síð­asta sól­ar­hring­inn. Síðustu fjórar klukku­stundir hafa skjálftar yfir 3 að stærð fyrst og fremst mælst beint undir bænum.

Ekki hafa borist svör frá almanna­vörnum um merk­ingu þess. Samkvæmt fréttum Vísis hefur verið tekin ákvörðun um að rýma Grinda­vík í heild sinni.

Eld­fjalla- og nátt­úru­vá­r­hópur Suð­ur­lands sagði að neyð­ar­stigi hefði verið lýst yfir, sem síðar var stað­fest.

„Vís­bend­ingar eru um að kviku­gang­ur­inn sé kom­inn undir Grinda­vík. Neyð­ar­stigi hefur verið lýst yfir og rým­ing er að hefj­ast.“

Fyrr í kvöld sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, í sam­tali við frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins að „ef það verður gripið til rým­inga þá mun það ekki fara á milli mála“.

Loftmynd af svæð­inuKviku­gang­ur­inn liggur frá Sund­hnúka­gígum og undir Grinda­vík.

Skjálftar fær­ast undir byggð­inaKortið sýnir skjálfta yfir 3 að stærð síð­ustu tólf tíma. Blái lit­ur­inn táknar skjálfta fyrir 10 til 12 tímum en sá rauði nýleg­ustu skjálft­ana, frá tveimur til fjórum tímum. Á kort­inu sjást þeir beint undir byggð­inni í Grinda­vík.

Almanna­varnir greindu frá því fyrr í kvöld að kviku­gangur væri að brjóta sér leið í átt að yfir­borð­inu nærri Sund­hnúka­gígum, sem liggja um 3 kíló­metrum frá byggð­inni. Sprungan liggur í átt að bænum.

Björg­un­ar­sveitin Þorbjörn sendi fá sér eft­ir­far­andi til­kynn­ingu á Facebook rétt í þessu. 

„Aðstæður í Grinda­vík þessa stund­ina eru ekki eðli­legar. Það er gríð­ar­lega löng og öflug jarð­skjálfta­hrina í gangi núna sem sér ekki fyrir endan á.

Okkar fólk ásamt öfl­ugum hópum frá öðrum björg­un­ar­sveitum á Suð­ur­nesjum eru til taks í Grinda­vík og hafa verið að sinna minni­háttar verk­efnum. Mikill fjöldi fólks hefur yfir­gefið heim­ili sín en sem stendur er engin rým­ing í gangi og fólki óhætt að snúa til baka eins og þeim hentar.

Íþrótta­húsið í Grinda­vík er opið og þar getur fólk safn­ast saman.

Ef fólk situr heima í Grinda­vík og getur ekki yfir­gefið heim­ili sitt vegna ein­hvers en vill kom­ast í burtu þá er fólk beðið að hafa sam­band við 112 og óska eftir aðstoð. Fjölda­hjálp­ar­stöðvar hafa verið opn­aðar í Reykja­nesbæ, Kópavogi og á Selfossi og hvetjum við fólk til þess að leita þangað ef því vantar sama­stað.

Að lokum hvetjum við alla Grind­vík­inga til þess að kanna ástandið á sínu nán­asta fólki og nágrönnum.“

Rým­ing­ar­á­ætlun fyrir Grinda­víkAthugið að norð­ur­leiðin eftir Grinda­vík­ur­vegi er lokuð.
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár