Hættulegt afstöðuleysi

Leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir skellti sér í Þjóð­leik­húsið – og undrað­ist afstöðu­leysi í upp­færslu á verk­inu Mútta Courage og börnin eftir Bertolt Brecht og Marg­ar­ete Steffin. Þá sér­stak­lega nú á átaka­tímum.

Hættulegt afstöðuleysi
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Kjarn­orku­kraftur Stein­unnar Ólínu dugar ekki til í lit­lausri sýn­ingu.
Leikhús

Mutter Courage og börnin

Niðurstaða:

Mútta Courage og börnin - ** 1/2

eftir Bertolt Brecht og Margarete Steffin

Þjóðleikhúsið

Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir

Leikarar: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Hildur Vala Baldursdóttir, Almar Blær Sigurjónsson, Oddur Júlíusson, Atli Rafn Sigurðarsson, Ernesto Camilo Aldazábal Valdés, Guðrún S. Gísladóttir, Hilmar Guðjónsson, Sigurður Sigurjónsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir

Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir

Búningar: Filippía I. Elísdóttir

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Dramatúrg: Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir

Tónlist: Valgeir Sigurðsson og Helgi Hrafn Jónsson

Myndband: Ásta Jónína Arnardóttir

Hljóðhönnun: Þóroddur Ingvarsson og Valgeir Sigurðsson

Þýðing: Bjarni Jónsson

Gefðu umsögn

Anna Fierling, öðru nafni Mútta Courage, er hörku­tól. Hún ferð­ast um stríðs­hrjáð lönd með sölu­vagn­inn sinn, dreg­inn áfram af börn­unum hennar, með það að mark­miði að hagn­ast á átök­unum. Hana skiptir engu hver vinnur eða tapar á meðan aur­inn ratar í hennar vasa.

Sögu­sviðið er þrjá­tíu ára stríðið í Evrópu 1618 til 1648 þar sem stríð­andi kristi­legar fylk­ingar murk­uðu lífið úr 12 millj­ónum ein­stak­linga og skildu eftir sig sviðna jörð. Sögu­sviðið gæti verið sam­tím­inn. Stríð er enn þá vett­vangur skelf­ingar og gróða. Mútta Courage og börnin eftir Bertolt Brecht og Marg­ar­ete Steffin er eitt af stór­virkjum leik­hús­bók­mennta tutt­ug­ustu ald­ar­innar og orðið tíma­bært að íslenskt atvinnu­leik­hús taki leik­ritið til sýn­ingar. Þjóð­leik­húsið stígur nú fram og gefur Múttu Courage loks­ins sviðið.

Sýninguna skortir pólitískan brodd

Leik­stjór­inn Una Þor­leifs­dóttir heldur um stjórn­ar­taumana á vagn­inum og stýrir honum þráð­beint eftir miðju vegar frá byrjun til enda. Engar áhættur eru teknar og …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár