Áreynslulaus fjölbreytileiki

Í þess­ari bók birt­ist fjöl­breyti­leik­inn einna helst í því að Úlf­ur á tvær mömm­ur og er það kynnt á áreynslu­laus­an hátt í upp­hafi og enda bók­ar­inn­ar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tvær mömm­ur rata inn í ís­lensk­ar barna­bók­mennt­ir en góð vísa er aldrei of oft kveð­in.

Áreynslulaus fjölbreytileiki
Höfundar Höfundar verksins, þær María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir, hafa í mörg ár verið ötular við að benda á hversu órjúfanlegur hluti hinseginleikinn er af samfélaginu.
Bók

Úlf­ur og Ylfa: Æv­in­týra­dag­ur­inn

Höfundur Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir
Salka
44 blaðsíður
Gefðu umsögn

Úlfur vaknar spenntur á sólríkum morgni því hann ætlar í ævintýraferð með vinkonu sinni, henni Ylfu, og hundinum Bósa Ljóshári. Úlfur og Ylfa nýta síðan ímyndunaraflið til hins ítrasta og eiga saman skemmtilegan dag fullan af hættulegum villidýrum og árásargjörnum nammipokum. 

Ævintýradagurinn er fyrst í flokki bóka fyrir yngstu lesendurna um Úlf og Ylfu og ævintýri þeirra. Markmið bókaflokksins er að „fagna fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð“, eins og segir í bókakápu. Í þessari bók birtist fjölbreytileikinn einna helst í því að Úlfur á tvær mömmur og er það kynnt á áreynslulausan hátt í upphafi og enda bókarinnar, enda er það sennilega markmiðið: að skrifa skemmtilegar og grípandi sögur fyrir börn þar sem fjölbreytt fjölskylduform og einstakir einstaklingar eru svo sjálfsagt mál að ekki er nokkur þörf að ávarpa það neitt frekar.

Þetta tekst vel í þessari fyrstu bók enda hafa höfundar textans í mörg ár verið ötular að benda á hversu órjúfanlegur hluti hinseginleikinn er af samfélaginu og hversu ástæðulaust er að gera eitthvað sérstakt veður út af þvi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tvær mömmur rata inn í íslenskar barnabókmenntir en góð vísa er aldrei of oft kveðin og mikilvægt að fjölbreytileiki samfélagsins sjáist sem oftast í bókum og kannski sérstaklega þeim sem eru ætlaðar börnum.

Myndir Auðar Ýrar Elísabetardóttur eru fallegar og litríkar, flæða kringum textann og styðja söguna vel. Eitt aðalsmerki góðra myndlýsinga í barnabókum er að þær bæti einhverju við söguna, einhverjum smáatriðum sem hægt er að finna og tala um, til dæmis þegar sagan er lesin fyrir börn og slíkt má sannarlega finna í þessari bók. Ævintýradagurinn er hugljúf og skemmtileg saga sem auðvelt er fyrir börn að samsama sig við og  byrja strax að hlakka til fleiri ævintýra Úlfs og Ylfu. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
2
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár