„Ég held að þetta sé nú einn af okkar bestu fjármálaráðherrum, örugglega fyrr og síðar“

Bryn­dís Har­alds­dótt­ir, þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tel­ur það hafa ver­ið kór­rétt ákvörð­un hjá Bjarna Bene­dikts­syni að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. Hún seg­ir hann gríð­ar­lega öfl­ug­an stjórn­mála­mann, einn besta fjár­mála­ráð­herra sem set­ið hef­ur, og finnst vel koma til greina að hann taki nú ein­fald­lega við ráð­herra­emb­ætti í öðru ráðu­neyti.

„Ég er nú bara svo­lítið sjokkeruð og sorg­mædd,“ segir Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, úr ráð­herra­emb­ætti. „Ég held að þetta sé nú einn af okkar bestu fjár­mála­ráð­herrum, örugg­lega fyrr og síðar, þannig að ég er bara frekar sorg­mædd yfir þessu,“ segir hún. 

„Ég er bara frekar sorg­mædd yfir þessu“

Bjarni sagði af sér emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á blaða­manna­fundi í morgun. Það gerði hann eftir að Umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi verið van­hæfur til að að selja félagi í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði sem fram fór í mars í fyrra.

Þarf að vera ákvörðun Bjarna

Ekkert hefur verið gefið út um fram­haldið hjá Bjarna en ýmsar til­gátur hafa verið í umræð­unni í dag. Ein þeirra er að Bjarni fari ein­fald­lega í annað ráðu­neyti, nokkuð sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa sagt vera frekar ódýrt.

En hvað finnst Bryndísi um þá hug­mynd? „Mér finnst það vel koma til greina en þetta verður fyrst og fremst að vera ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar sem hann svo ræðir við okkur og sína sam­starfs­flokka,“ segir hún.

Bryndís er sann­færð um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Bjarna að segja af sér og aðspurð seg­ist hún vona að það veiki ekki rík­is­stjórn­ina að for­maður eins af stjórn­ar­flokk­unum þremur segi af sér ráð­herra­emb­ætti í kjöl­far nið­ur­stöðu um van­hæfi hans í emb­ætt­is­verkum.

Öflugur stjórnmálamaður og öflug forysta

„Nei, það vona ég ekki. Ég held að þessi við­brögð hjá Bjarna Bene­dikts­syni í dag hafi verið kór­rétt þó að manni kunni að finn­ast það sárt og leið­in­legt, og það sýnir í raun­inni bara hversu öfl­ugur stjórn­mála­maður Bjarni Bene­dikts­son er. Þannig að ég hef fulla trú á því að rík­is­stjórnin haldi áfram störfum með þessa öfl­ugu for­ystu sem hún hefur í dag.,“ segir Bryndís. 

Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja fund­uðu fyrr í dag en ekk­ert hefur verið gefið upp um hvað þar var rætt eða nið­ur­stöðu fund­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Sem Mosfellingur þá hefði eg viljað sjá einbeittari afstöðu Bryndísar sem eg tel vera með betri þingmönnum SJálfstæðisflokksins.
    Því miður axlaði Bjarni enga ábyrgð. Hann kom sér undan ábyrgðinni og afglöp hans eru enn í dagsljósinu enda sagði hann ekki af sér embætti eins og tilhlýðilegt hefði verið í öllum þeim löndum þar sem stjórnmálamenn vita upp á sig skömmina og segja raunverulega af sér embætti. Vonandi sjá fuyrrum kjósendur Sjálfstæðisflokksins að formannsnefnan er ekki í tenglsum við raunveruleikann og kjósi annan flokk sem sýnir af sér meiri ábyrgð en að hafa stólaskipti.
    0
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Það er þessi siðferðisskortur sem veldur mér óhug
    0
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Ótrúlega fáránlegt þetta leikrit, dáður sem aldrei fyrr og leikur fórnarlamb og kór íhaldsins kyrjar með honum og vill held ég, fá hann tekinn í dýrðlingatölu.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ætli framtíðin telji BB ekki fremur vera einn af þeim verstu fjármálaráðherrum sögunnar. Hann sem æðsti yfirmaður skattrannsókna virðist lítið aðhafst við spillingu fyrri tíma. Það má lesa nánar í grein í Heimildinni
    0
  • Jack Danielsson skrifaði
    Aumingjans heiladauða og heimska kona sem þekkir ekki söguna.
    Bófinn er einhver sá alversti fjármálaráðherra sem þjóðin hefur fengið yfir sig, gjörspilltur raðlygari, þjófur, svikari og hefur minna en ekkert vit á fjármálum, það sannar 150 þúsund milljón króna gjaldþrotasaga bófans þar sem almenningur var látinn borga 130 þúsund milljónir fyrir þennan ótýnda glæpahund.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár