„Þetta er búið, því miður“

Birna Sig­munds­dóttir hefur glatt íbúa Laug­ar­dals­ins í ára­tug með fal­legum jóla­skreyt­ingum. Nú hefur Birna sest í helgan stein. Nágranna hennar líkar ekki við skreyt­ing­arnar og lög­reglan hefur verið kölluð til í fjór­gang vegna ósættis um jóla­skrautið.

„Þetta er búið, því miður“
Sest í helgan stein Birna Sig­munds­dóttir mun mest sakna leik­skóla­barn­anna sem skoð­uðu jóla­húsið hennar og glöddu með jóla­söng og brosum á myrkum morgnum. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

„Þetta er leið­inda­mál. Mjög erfitt mál. Ég er búin að búa hérna lengi og byggja þetta allt saman upp,“ segir Birna Sig­munds­dóttir, íbúi á Draga­vegi í Laug­ar­dal. Í meira en ára­tug hefur hún skreytt hús sitt og garð ríku­lega af jóla­skrauti sem hún hefur nostrað við. Nú hefur hún tekið ákvörðun um að setj­ast í helgan stein þar sem nágrannar hennar eru ekki hrifnir af jóla­skraut­inu. 

Birna fékk nýja nágranna í des­em­ber í fyrra. Húsið og garð­ur­inn voru þá full­skreytt en hún hefst handa við jóla­skreyt­ingar í nóv­em­ber, stundum fyrr. Hún neydd­ist hins vegar til að taka niður skrautið áður en aðfanga­dagur rann upp. „Þau flytja inn í des­em­ber og segja að þeim líki þetta ekki og þá var ekk­ert annað að gera en að taka þetta í burtu. Sem ég og gerði,“ segir Birna. 

„Ég vil ekki standa í látum og rifr­ildum“

Í vik­unni ákvað Birna að byrja smátt og skreyta garð­inn með dýrum. Ekki leið á löngu þar til nágrann­inn var búinn að fjar­lægja þau. „Ég var farin að setja dýrin mín út, fyrir börnin, og svo sé ég hann koma niður og hreinsa garð­inn. Ég bara skildi þetta ekki. Hann fer með þetta hérna á bak við. Ég setti dótið aftur út en það leið ekki langur tími þar til búið var að hreinsa allt í burtu aftur.“ Lög­reglan hefur fjórum sinnum verið kölluð út vegna þess­ara erja. „Mér finnst svo sárt að eyði­leggja fyrir öllu þessu fólki sem er búið að koma ár eftir ár eftir ár að skoða, börnin og gamla fólkið. Nágrann­arnir eru að skemma fyrir öllum. Mér finnst það sár­ast,“ segir Birna. 

Jóla­húsið á Draga­vegiBirna hefur skreytt húsið og garð­inn ríku­lega í um ára­tug með jóla­ljósum, dúkkum og dýrum, allt frá hrein­dýrum til flamingóa. Vegna nágranna­erja hefur hún nú losað sig við allt skrautið.

Hún hefur nú ákveðið að segja þetta gott. „Ég vil ekki standa í látum og rifr­ildum. Þetta er ekki í boði lengur. Ég er alltaf með eitt­hvert þema og hanna skraut fyrir hver jól. En ég á ekk­ert í dag. Ég lét þetta allt frá mér, það verður ekk­ert meira. Ég bæði gaf það og seldi. Þetta var skelfi­legt og er skelfi­legt.“

Birna segir ákvörð­un­ina átak­an­lega og að hún muni sakna heim­sókna frá leik­skóla­börnum sem glöddu hana með söng á myrkum des­em­bermorgnum. „Þau sungu fyrir mig jóla­lög og svo fengu þau það sem ég kalla ömm­unammi, ávexti eða brjóst­sykur, eftir því hvort þau vildu. Það var svo gaman að búa til öll þessi ævin­týri sem eru búin að ger­ast hérna. En þetta er búið, því miður.“

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Er ekki rétt að fjölmenna við hús nágrannans og láta hann vita hvað okkur finnst um svona fávitaskap?
    Frekjuhundar fá alltof oft að komast upp með yfirganginn á Íslandi.
    0
  • EA
    Erna Alfreðsdóttir skrifaði
    Þvílíkir nágrannar oj bara þvílík sjálfhverfa og frekja ekki vildi ég hafa svona nágranna.
    0
  • Osk Magnusdottir skrifaði
    Getur hver sem er vaðið inn í garð hjá öðrum og gert það sem þeim sýnist?
    T.d ef nágrannanum líkar ekki við sumarblóm í næsta garði, má þá slíta þau upp og henda bak við hús?
    1
  • Ásdís Thoroddsen skrifaði
    Einhliða grein. Var talað við nágrannana, sem hafa þurft að þola þetta?
    4
  • Jónína Hjartardóttir skrifaði
    ég hef oft gengi þarna og þú skreyti rosalega flott en ekki hætta
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hver er trú þessa fólks ?
    -3
    • JGG
      Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir skrifaði
      Ekkert með trú að gera, bara vera leiðinlegur og sína vald...
      0
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Enn eitt dæmið um fólk sem leyfir öðrum ekki að lifa, eyðileggur fyrir öðrum!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár