Fóru á rafmagnshjólastólum í átt að glóandi hrauninu

Andri Val­geirs­son og Hall­grímur Eymunds­son lögðu af stað í ferða­lag í átt að eld­gos­inu við Litla-Hrút á raf­magns­hjóla­stólum um síð­ustu helgi. Ferðin gekk stór­á­falla­laust fyrir sig, þó þeir hafi kast­ast aðeins til í stól­unum vegna tor­færs lands­lags og hleðslan á raf­hlöðum stól­anna hafi klár­ast á baka­leið­inni. Andri kallar eftir því að aðgengi að íslenskum nátt­úruperlum verði bætt, svo fólk sem not­ast við hjóla­stól geti fengið að sjá landið eins og gang­andi fólk.

Streymi að gosi
Streymi að gosi 20 manns fylgd­ust með för Hall­gríms og Andra upp að gos­s­töðv­unum í beinu streymi síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

Það var logn og blíða þegar Hall­grímur Eymunds­son og Andri Val­geirs­son lögðu af stað ásamt aðstoð­ar­mönnum sínum og Eru Buenafranciscu, eig­in­konu Andra, upp að eld­gos­inu við Litla-Hrút. Um 20 manns fylgd­ust með þeim í beinu streymi sem þeir sendu út á net­inu á meðan ferð þeirra á raf­magns­hjóla­stólum stóð.

Laus möl í upp­hafi ferðar gerði hjóla­stólum þeirra aðeins erfitt fyrir, en hóp­ur­inn lét það ekki á sig fá og Hall­grímur dró ein­fald­lega upp sér­stök bönd úr bak­pok­anum og fékk aðstoð­ar­menn­ina til að draga sig þegar hann fest­ist í möl­inni. 

Þeir komust upp bröttu brekk­una sem tekur snemma við veg­far­endum á leið E, og þá var ekk­ert annað að gera en að halda áfram.

Stíg­ur­inn varð í kjöl­farið auð­farn­ari, en samt svo tor­fær að þeir köst­uð­ust til og frá í stól­unum. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem þeir fóru í tor­færur á raf­magns­hjóla­stól­unum og raunar ekki …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldgos við Litla-Hrút

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár