Eldgos Gosið er mikið sjón­ar­spil en gangan að því er ekki gerð fyrir hvern sem er. Mynd: AFP

Erfið ganga að stórbrotnu útsýni

Um 4.000 manns hafa nú þegar gengið Mera­dala­leið upp að gos­inu við Litla Hrút, sam­kvæmt mæl­ingu Ferða­mála­stofu. Göngu­leiðin er lokuð sem stendur vegna meng­unar frá gróð­ur­eldum á svæð­inu.

Þó hægt sé að ganga að eld­gos­inu við Litla-Hrút á Reykja­nesi úr mörgum áttum mæl­ast almanna­varnir til þess að fólk gangi ein­ungis Mera­dala­leið sem hefst við bíla­stæðið við Suð­ur­strand­ar­veg. 

Umferð almenn­ings um svæðið er óheimil sem stendur vegna meng­unar frá gróð­ur­eldum á svæð­inu sem getur verið fólki hættu­leg, hættu­legri en gosmeng­unin sjálf, að sögn Hjör­dísar Guð­munds­dóttur, sam­skipta­stjóra almanna­varna. Ákvörðun um það hvort göngu­leiðin verði opnuð að nýju verður tekin í fyrra­málið.

Hjördís segir að göngu­leiðin geti verið erfið. Hún er um níu kíló­metra löng aðra leið og tekur fimm til sjö klukku­stundir. Fólk hefur komið til baka örþreytt og jafn­vel lent í óhöppum á leið­inni. Hjördís segir því mik­il­vægt að fólk velji Mera­dala­leið svo við­bragðs­að­ilar viti alltaf hvar fólk er. 

Útsjón­ar­semiFólk gengur ekki ein­ungis að gos­s­töðv­unum. Sumir hjóla.

„Maður heyrir af því að fólk sé að mæla með öðrum göngu­leiðum, en það er ekki gott því þá hafa við­bragðs­að­ilar ekki sömu yfir­sýn,“ segir Hjördís. „Það þarf að hugsa þetta til enda. Það er eitt að kom­ast upp að eld­gos­inu en svo er annað að kom­ast líka til baka.“

Hvernig á fólk að vera búið?

„Eins og það sé að fara í alvöru göngu. Þó það sé gott veður þegar þú byrjar þá þýðir það ekki að það verði gott veður þegar þú labbar til baka,“ segir Hjördís og biðlar til fólks að taka með sér vatn, enda er ekk­ert slíkt á leið­inni. 

Ekki staður fyrir lítil börn

Nokkuð hefur verið um að fólk hafi ætlað að taka með sér ung og jafn­vel ómálga börn að gos­s­töðv­unum. Hjördís segir það ekki skyn­sam­legt. „Þetta er ekki staður fyrir lítil börn til að vera á.“

Ástæðan er fyrst og fremst gasmeng­unin sem getur farið illa í við­kvæm ung lungu. 

En í bili er meng­unin á svæð­inu hættu­leg öllum og því óheim­ilt að ganga upp að gos­inu. Hvort helg­ar­ferðir að gos­inu verði mögu­legar er enn ómögu­legt að segja til um.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldgos við Litla-Hrút

Fóru á rafmagnshjólastólum í átt að glóandi hrauninu
FréttirEldgos við Litla-Hrút

Fóru á raf­magns­hjóla­stólum í átt að gló­andi hraun­inu

Andri Val­geirs­son og Hall­grímur Eymunds­son lögðu af stað í ferða­lag í átt að eld­gos­inu við Litla-Hrút á raf­magns­hjóla­stólum um síð­ustu helgi. Ferðin gekk stór­á­falla­laust fyrir sig, þó þeir hafi kast­ast aðeins til í stól­unum vegna tor­færs lands­lags og hleðslan á raf­hlöðum stól­anna hafi klár­ast á baka­leið­inni. Andri kallar eftir því að aðgengi að íslenskum nátt­úruperlum verði bætt, svo fólk sem not­ast við hjóla­stól geti fengið að sjá landið eins og gang­andi fólk.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár