Hleypa fólki að gosinu

Fólk sem vill berja eld­gosið við Litla Hrút augum þarf að ganga sam­tals um 20 kíló­metra. Einungis er hægt að ganga frá Suð­ur­strand­ar­vegi en ekki frá öðrum vegum eða vega­slóðum. Göngu­fólk er beðið um að vera sér­stak­lega vel und­ir­búið.

Hleypa fólki að gosinu
Nýtt hraun Göngu­fólk getur nú lagt leið sína að sér­stökum útsýn­is­stað þar sem hægt er horfa á eld­gosið sem hófst í gær. Mynd: AFP

Búið að er opna fyrir ferðir fólks að sér­stökum útsýnis­p­unkti þar sem hægt er að horfa yfir eld­gosið sem hófst síð­degis á mánu­dag. Einungis er hægt að ganga frá Suð­ur­strand­ar­vegi en ekki frá öðrum vegum eða vega­slóðum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Úlfari Lúð­víks­syni lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum.

Við­bragðs­að­ilar kalla leið­ina sem um ræðir Mera­dala­leið en hún er merkt inn á kortið hér að neðan með bláum lit. Ganga fram og til baka er um 20 kíló­metrar í heild­ina og sér­stak­lega er tekið fram að hún henti þar af leið­andi ekki öllum. Í til­kynn­ing­unni segir að Veð­ur­stofan muni fljót­lega gefa út upp­fært hættu­kort af svæð­inu.

Mera­dala­leiðGöngu­fólk þarf að ganga frá Suð­ur­stranda­vegi eftir bláu lín­unni, hinni svoköll­uðu Mera­dala­leið, að sér­stökum útsýn­is­stað.

„Mik­il­vægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættu­legt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndi­lega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gos­s­töðv­unum vegna gasmeng­unar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífs­hættu­legar gas­teg­undir safn­ast í dældum og geta reynst ban­vænar. Nýjar gossprungur geta opn­ast með litlum fyr­ir­vara og gló­andi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndi­leg fram­hlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjót­ast fram sem erfitt getur verið að forð­ast á hlaupum,“ segir í til­kynn­ingu lög­regl­unnar.

Göngufólk fari að öllu með gát

Þeim til­mælum er beint til fólks að klæða sig eftir veðri, að hafa með sér nesti og ekki síst vel hlað­inn far­síma. Þó er ekki hægt að tryggja öruggt sam­band far­síma á svæð­inu. Göngu­fólk er enn fremur beðið um að fylgj­ast vel með frétta­flutn­ingi og upp­lýs­ingum frá Almanna­vörnum og Veð­ur­stofu Íslands. Þar að auki megi finna upp­lýs­ingar á safetra­vel.is.

Hægt er að fylgj­ast með loft­gæðum á vef sem Umhverf­is­stofnun heldur úti, loft­gaedi.is. Þar má einnig finna hlekk á texta­spá frá Veð­ur­stofu Íslands fyrir gasmengun.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldgos við Litla-Hrút

Fóru á rafmagnshjólastólum í átt að glóandi hrauninu
FréttirEldgos við Litla-Hrút

Fóru á raf­magns­hjóla­stólum í átt að gló­andi hraun­inu

Andri Val­geirs­son og Hall­grímur Eymunds­son lögðu af stað í ferða­lag í átt að eld­gos­inu við Litla-Hrút á raf­magns­hjóla­stólum um síð­ustu helgi. Ferðin gekk stór­á­falla­laust fyrir sig, þó þeir hafi kast­ast aðeins til í stól­unum vegna tor­færs lands­lags og hleðslan á raf­hlöðum stól­anna hafi klár­ast á baka­leið­inni. Andri kallar eftir því að aðgengi að íslenskum nátt­úruperlum verði bætt, svo fólk sem not­ast við hjóla­stól geti fengið að sjá landið eins og gang­andi fólk.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár